Skessuhorn - 08.05.2019, Qupperneq 11
MIÐVIKUDAGUR 8. MAÍ 2019 11
Af
re
ks
-
íþ
ró
tt
ir
O
pi
n
st
úd
en
ts
-
br
au
t
Sj
úk
ra
lið
a-
br
au
t
St
ar
fs
br
au
t
Tr
é i
ðn
-
gr
ei
na
r
Fr
am
ha
ld
s-
sk
ól
ab
ra
ut
Fé
la
gs
-
fræ
ða
br
au
t
Ra
fið
n -
gr
ei
na
r
Ná
tt
úr
u-
fræ
ða
br
au
t
M
ál
m
ið
n-
gr
ei
na
rNánari upplýsingar veita:
Guðrún Sigríður Guðmundsdóttir, náms- og starfsráðgjafi, gudruns@fva.is
Jónína Víglundsdóttir, áfangastjóri, jonina@fva.is
Dagskóli
Innritun fyrir nám í dagskóla
á haustönn 2019 fer fram raf-
rænt á menntagatt.is eða á
skrifstofu skólans. Umsóknar-
frestur er til 7. júní 2019.
Heimavist
Við skólann er starfrækt
heima vist með plássum fyrir
60 nemendur.
Dreifnám
Opnað hefur verið fyrir um-
sóknir í húsasmíðanám, vél-
virkjanám og sjúkraliðanám í
dreifnámi fyrir haustönn 2019.
Hægt er að sækja rafrænt um
dreifnám á menntagatt.is eða
á umsóknareyðublaði sem er
að finna á heimasíðu skólans
www.fva.is. Umsóknum skal
skilað á skrifstofu skólans fyrir
7. júní 2019.
Stúdentsbrautir
Félagsfræðabraut
Náttúrufræðabraut
Opin stúdentsbraut
Íþrótta- og heilsusvið
Opið svið
Tónlistarsvið
Tungumálasvið
Viðskipta- og hagfræðisvið
Annað nám
Framhaldsskólabraut
Viðbótarnám eftir iðn- og starfsnám
Starfsbraut
Iðn- og starfsnám
Tréiðngreinar
Húsasmíði
Húsgagnasmíði
Málmiðngreinar
Vélvirkjun
Grunndeild málm- og
bíliðngreina
Rafiðngreinar
Rafvirkjun
Grunndeild rafeindavirkjunar
Sjúkraliðabraut
Afreksíþróttasvið
Námsbrautir
Fjölbrautaskóli Vesturlands
á Akranesi
Fjölbrautaskóli Vesturlands • Vogabraut 5, 300 Akranes • 433 2500 • skrifstofa@fva.is
Innritun á haustönn 2019
Þorgrímur Einar Guðbjartsson og
Helga Elínborg Guðmundsdóttir á
Rjómabúinu Erpsstöðum hafa verið
tilnefnd til hinna norrænu Emblu-
matarverðlauna. Eru þau fulltrúar
Íslands í flokknum Matvælaiðnað-
armaður Norðurlanda 2019. Verð-
launin verða afhent í Reykjavík 1.
júní næstkomandi. Auglýst var eft-
ir tilnefningum á öllum Norður-
löndunum. Alls bárust 320 tilnefn-
ingar, þar af meira en 50 frá Ís-
landi. Embluverðlaunin voru fyrst
veitt í Kaupmannahöfn 2017 og
er ætlað að hampa norrænni mat-
armenningu. Verðlaunin eru hald-
in af norrænum bændasamtökum
með stuðningi Norrænu ráðherra-
nefndarinnar. Bændasamtök Ísland
sjá um framkvæmdina í ár, en þau
eru haldin á tveggja ára fresti.
Fulltrúar allra Norðurlandanna
koma saman nú í lok maí og dóm-
nefndir velja sigurvegara í hverjum
flokki. Verðlaunaafhendingin sjálf
fer síðan fram í Hörpu 1. júní, í
samvinnu við Norrænu kokkasam-
tökin sem halda ársþing sitt á sama
tíma.
kgk
Í kjölfar fréttar
í síðasta Skessu-
horni þar sem
sagt var frá því
að nýlegu ein-
taki af Skessu-
horni hafi ver-
ið komið fyr-
ir í húsvegg til
glaðnings fyrir
ókomnar kyn-
slóðir, varð hús-
ráðandi á Akra-
nesi einmitt
þeirrar gæfu
aðnjótandi að
finna gamalt
dagblað inni í
vegg í húsi sínu
þegar unnið var
við breytingar.
Þar kom í ljós
eintak af dag-
blaðinu Tím-
anum frá 6. maí
1956. „Hér var
hlegið upphátt,
aðallega því
einhvern veg-
inn hefur fátt
breyst hjá blessuðu íhaldinu, meira
að segja nöfnin þau sömu, enda
hefur krúnan gengið í erfðir,“ sagði
húsráðandinn í skeyti til Skessu-
horns.
Í þessu Tímablaði er m.a. frétt
með fyrirsögninni „Leizt ekki á
söngvarann Bjarna Ben.“ Og þar
segir: „Kátlegur atburður skeði á
fundi Sjálfstæðismanna í Kefla-
vík fyrir nokkrum dögum. Sjálf-
stæðismenn höfðu boðað til kjós-
endafundar í ungmennafélagshús-
inu, en sama kvöld og á sama tíma
var haldinn samsöngur karlakórs
í öðru samkomuhúsi í bænum.
Fundur Sjálfstæðismanna var illa
sóttur, eða 94 þegar flest var, en
þeir kenndu um söngskemmtun-
inni. Þegar fundur átti að hefjast,
tóku menn eftir því, að fólk er sat á
fremsta bekk hússins, var með blöð
í höndum. Var fundur síðan sett-
ur, og Bjarni Benediktsson dóms-
málaráðherra, gekk virðulega upp
á leiksviðið. Þá leit fólk þetta undr-
andi upp, eins og það hefði ekki
búist við þessu, leit síðan á söng-
skrár þær sem það hafði í hönd-
um, stóð hvatvíslega á fætur og
gekk út. Skýringin á þessu var sú,
að fólk þetta hafði ætlað á karla-
kórsskemmtunina en ekki íhalds-
fundinn en farið húsavillt og leizt
hreint ekki á „söngvarann“ þegar
hann kom fram á sviðið.“
Já, það leynist margt í veggjun-
um. mm
Þorgrímur við osta-
gerð á Rjómabúinu
Erpsstöðum.
Ljósm. Rjómabúið
Erpsstaðir.
Rjómabúsbændur tilnefndir
til Embluverðlauna
Margt leynist í veggjunum
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
9
Skipulags- og umhverfissvið Akraneskaupstaðar óskar
eftir tilboðum í verkið: Fimleikahús á Akranesi - Búnaður
Nýtt fimleikahús er í byggingu á Akranesi og verður tekið í notkun í
lok desember 2019. Verkefnið felst í því að útvega og setja upp fim-
leikabúnað tilbúinn til notkunar í nýju fimleikahúsi sem er í byggingu
við Háholt, Brekkubæjarskóla á Akranesi.
Um er að ræða að skaffa og setja upp fyrir fimleika ýmsan búnað
í gryfjur sem er lyftanlegur að hluta, ásamt trampolínbraut
(fasttrack) í gryfju.
Einnig skal skaffa stærri og minni áhöld og tæki til þjálfunar fimleika
ásamt fjaðrandi gólfdúk, rafdrifnum skilrúmstjöldum o.fl.
Verktaki sem fær verkefnið mun þurfa að gera ráð fyrir og taka tillit
til m.a. nágranna, umferð íbúa sem og annarra verktaka í og við
framkvæmdasvæðið og sérstaklega mikilvægt er að verktaki taki
tilliti til og lágmarki rask á skóla- og íþróttastarfi.
Útboðsform
Um opið útboð er að ræða og er það því almennt útboð eins og lýst
er í grein 1.2.2 í ÍST30. Útboð þetta er einnig auglýst á hinu evrópska
efnahagssvæði (EES).
Verkinu skal að fullu lokið 30. desember 2019
Útboðsgögn verða afhent áhugasömum frá og með þriðjudeginum 7.
maí 2019. Senda skal óskir um útboðsgögn á netfangið omar@vso.is.
Tilboðum skal skilað í afgreiðslu bæjarskrifstofu Akranes, Stilliholti
16-18, 1. hæð, eigi síðar en þriðjudaginn 11. júní 2019 kl.11:00 og þau
opnuð að viðstöddum þeim bjóðendum sem þess óska.
Auglýsing um útboð