Skessuhorn - 08.05.2019, Qupperneq 19
MIÐVIKUDAGUR 8. MAÍ 2019 1910x10 DBL Kubbur
Álfurinn er
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
9
Opið hús / kynningafundur vegna fyrirhugaðra breytinga á
deiliskipulagi Skógarhverfis 2. áf. verður fimmtudaginn 9. maí
nk. frá kl. 12:30 til 16:00 á 1. hæð að Stillholti 16-18.
Breytingin felst í að 7 lóðum fyrir einbýlishús við
Fagralund er breytt í 12 lóðir fyrir rað- og parhús.
Breyting á Akralundi 8, 10, 12 og 14 felst í að heimila að í
hverju húsi má vera 4-6 íbúðir í stað fjögurra.
Eftir kynningu á ofangreindum skipulagsbreytingum verða
þau lögð fyrir skipulags- og umhverfisráð og bæjarstjórn til
frekari afgreiðslu. Ákveði bæjarstjórn að auglýsa ofangreindar
skipulagsbreytingar mun frestur til að gera athugasemdir við
þær vera að minnsta kosti 6 vikur.
Sviðstjóri skipulags- og umhverfissviðs
Opið hús / kynningarfundur
Sumarstarf í Upplýsingamiðstöð Vesturlands
Óskum eftir að ráða sumarstarfsmann í Upplýsingamiðstöð Vesturlands í Borgarnesi í júní, júlí og ágúst 2019
• Hæfnikröfur:
• Góð íslensku og ensku kunnátta – fleiri tungumál eru kostur
• Góð tölvuþekking og hæfni í að nýta sér upplýsingatækni
• Frumkvæði og skipulögð vinnubrögð
• Rík þjónustulund og hæfni í mannlegum samskiptum
• Þekking á staðháttum á Vesturlandi
• Reynsla af sambærilegum störfum er kostur
• Áhugi á að taka þátt í þróun upplýsingamiðstöðvar
• Helstu verkefni:
• Upplýsingagjöf til ferðamanna
• Samskipti og samvinna við ferðaþjónustuaðila
• Upplýsingaöflun
• Skráning gesta
• Önnur tilfallandi verkefni
Umsóknarfrestur er til 20. maí
Nánari upplýsingar og umsóknir: maggy@west.is

Nánari upplýsingar og umsóknir: maggy@west.isSK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
9
Bæjarstjórnarfundur
1294. fundur bæjarstjórnar Akraness verður haldinn í
bæjarþingsalnum að Stillholti 16-18,
þriðjudaginn 14. maí kl. 17:00.
Fundirnir eru öllum opnir og eru bæj rbúar hvattir til að mæta
og kynna sér bæjarmálin. Vakin er athygli á því að hægt er
að hlusta á fundinn á FM 95,0 og horfa á beina útsendingu á
facebooksíðu Akraneskaupstaðar.
Bæjarmálafundir flokkanna verða sem hér segir:
Samfylkingin í Stjórnsýsluhúsinu, 1. hæð, Stillholti 16-18,
mánudaginn 13. maí kl. 20:00.
Framsókn og frjálsir í Stúkuhúsinu,
mánudaginn 13. maí kl. 20:00.
Sjálfstæðisflokkurinn á Gamla Kaupfélaginu að Kirkjubraut 11,
laugardaginn 11. maí kl. 11:00.
Síðastliðinn laugardag fór að-
alfundur Vesturlandsvaktarinn-
ar - Hollvinasamtaka Heilbrigð-
isstofnunar Vesturlands fram á
Akranesi. Gestur á fundinum var
Janus Guðlaugsson sem flutti
áhugavert erindi um heilsueflingu.
Á fundinum var sagt frá yfirstand-
andi söfnunarátaki um sjúkrarúm.
Búið er að tryggja að átta rúm
verða keypt. Vilhjálmur Birgisson
tilkynnti að Verkalýðsfélag Akra-
ness myndi leggja fram framlög
til kaupa á þremur sjúkrarúmum.
Vignir G. Jónsson ehf. tilkynnti
um kaup á einu rúmi, einn aðili
sem óskaði nafnleyndar lagði fram
framlag til kaupa á einu rúmi og
Lionsklúbbur Borgarness fram-
lag í annað. Halldór Hallgrímsson
steig í pontu og afhenti afrakstur
gjafa, á þriðja hundrað þúsunda
króna, úr stórafmæli hans nýver-
ið þar sem hann afþakkaði gjafir,
en óskaði eftir framlögum til holl-
vinasamtakanna. Jafnframt var til-
kynnt að fyrirtækin Dala Jörv-
ar, Sigurgarðar sf, Bifreiðastöð
ÞÞÞ og Akraneskaupstaður hafa
hvert um sig lagt fram framlög
um kaup á sjúkrarúmum. Auk þess
hefur ÞÞÞ boðist til að flytja öll
rúm fyrir hollvinasamtökin end-
urgjaldslaust.
„Stjórn hollvinasamtakanna vil
færa þakkir til þessara einstaklinga
og til forsvarsmanna fyrirtækja og
félagasamtaka sem hafa sýnt Holl-
vinasamtökum HVE þennan ein-
staka hlýhug og gjafmildi. Án
framlaga þessara aðila og þeirra
sem hafa lagt hollvinasamtök-
unum lið á síðustu árum, ásamt
félagsmönnum, þá væru engin
samtök. Rúmin sem nú eru gefin
kostar hvert um sig 500 þúsund
krónur en með þeim fimm rúmum
sem búið er að afhenda þá nema
gjafir hollvinsamtakanna meira en
70 milljónum króna frá stofnun
félagsins árið 2014.“
Loks er einstaklingum sem vilja
styðja við samtökin bent á að ár-
gjald er einungis 3.000 krónur og
til að gerast félagsmaður er hægt
að senda skilaboð á Facebook síðu
Vesturlandsvaktarinnar.
mm/ Ljósm. Guðmundur
Bjarki Halldórsson. Janus Guðlaugsson flutti erindi um heilsueflingu.
Hollvinasamtök HVE héldu aðalfund
Gestir skoða eitt af hinum nýju sjúkrarúmum.
Stjórn HVE.