Skessuhorn - 08.05.2019, Side 21
MIÐVIKUDAGUR 8. MAÍ 2019 21
Afmæli
Jóhannes
Sigurbjörnsson
Jóhannes Sigurbjörnsson frá
Vogalæk fagnar 80 ára afmæli.
Afmælisboð verður í Brákarhlíð í
Borgarnesi frá klukkan 16-18
á afmælisdeginum hans
fimmtudaginn 9. maí.
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
9
FRUMHERJI HF. – ÞEGAR VEL ER SKOÐAÐ
www.frumherji. is
Búðardalur 2019
Bifreiðaskoðun verður hjá K.M. þjónustunni ehf.
Vesturbraut 20
miðvikudaginn 15. maí
fimmtudaginn 16 maí
föstudaginn 17 maí.
Allir gerðir ökutækja skoðaðir
Lokað í hádeginu kl. 12.00 – 13.00
Tímapantanir í síma 570 – 9090
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
9
RARIK Vesturlandi
Tilkynning um straumleysi
Ágætu raforkunotendur.
Rafmagnslaust verður sunnan Skarðheiðar föstudaginn 10. maí frá kl. 00:00 til kl.
07:00 vegna vinnu í aðveitustöð við Brennimel.
Um er að ræða allt svæðið sunnan Skarðsheiðar, þ.e. Melasveit, Leirársveit, Melahverfi,
Hvalfjörð, Hlíðarbæ, Hvalfjarðargöng, Innri Akraneshrepp og Kjósina.
Hafið ekki viðkvæm raftæki í notkun þegar rafmagnið fer af og hugið að
endurstilla öll tímastillt raftæki sem kunna að hafa breytt sér.
Rarik biðst velvirðingar á þeirri röskun sem
rafmagnsleysið hefur í för með sér fyrir notendur.
Nánari upplýsingar má finna á heimasíðu Rarik www.rarik.is
Bilanasími: 528 9390
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
9
Snyrtistofan Daladekur var opn-
uð við Vesturbraut 8 í Búðardal
síðla í mars. Það er snyrtifræðing-
urinn og fjárbóndinn Þórunn Elva
Þórðardóttir á Kjarlaksvöllum í
Saurbæ sem á og rekur snyrtistof-
una en með henni er Þórey Björg
Þórarinsdóttir á Leiðólfsstöðum.
Þórunn er fædd og uppalin á Ak-
ureyri en flutti í Saurbæinn þeg-
ar hún kynntist manninum sínum,
Bjarka Reynissyni frá Kjarlaksvöll-
um. Hún lærði snyrtifræði í Snyrti-
akademíunni og lauk sveinsprófi
2007. Hún vann í eitt ár á snyrti-
stofu á Akureyri áður en hún flutti
í Dalina. „Mig hefur alltaf langað
að opna stofu hér en aldrei fundið
heppilegt húsnæði, fyrr en núna,“
segir hún í samtali við Skessuhorn.
Aðspurð segir Þórunn Da-
ladekur vera fyrstu snyrtistofuna
sem hún viti til að hafi verið opnuð
í Búðardal. Þar býður hún upp á al-
lar hefðbundnar snyrtingar eins og
litun og plokkun, vaxmeðferðir,
fótsnyrtingu, handsnyrtingu og an-
dlitsbað auk þess sem Þórey Björg
býður upp á Bowen. Einnig er hægt
að kaupa bæði snyrtivörur og förðu-
narvörur á stofunni. „Aðsókn hefur
verið nokkuð góð. Ég er með opið
einn dag í viku, á fimmtudögum,
og það hefur bara verið góð eftir-
spurn og ágætt að gera,“ segir hún.
Auk þess að reka snyrtistofu er Þó-
runn húsvörður í Tjarnarlundi, fé-
lagsheimili í Saurbæ, er fjárbóndi,
nemandi í BS námi í búvísindum
við Landbúnaðarháskóla Íslands á
Hvanneyri auk þess sem hún sér um
að elda á Silfurtúni, dvalarheimili-
nu í Búðardal. Allar helstu upplýs-
ingar um Daladekur er að finna á
Facebook síðu stofunnar. arg
Nú í vor lét Akraneskaupstað-
ur setja upp tíu bekki með jöfnu
millibili við göngustíginn meðfram
Langasandi, frá Dvalarheimilinu
Höfða að Faxabraut. Nú geta íbú-
ar á Höfða því notið þess að ganga
meðfram Langasandi og tyllt sér á
bekkina til að hvíla sig á leiðinni.
Að sögn Sindra Birgissonar, um-
hverfisstjóra hjá Akraneskaupstað,
er það vilji bæjarins að aðgengi
allra að þessu svæði verði gott og
eru bekkirnir liður í því.
„Við eigum aðeins eftir að klára
frágang við bekkina en það er mik-
ilvægt að það verði gott aðgengi
að bekkjunum fyrir alla,“ seg-
ir Sindri. Þá segir hann ýmislegt
á dagskrá til að lífga upp á svæð-
ið, bæta gæði svæðisins og auka af-
þreyingarmöguleikana. „Við þyrft-
um að hækka og breikka stíginn og
bæta lýsinguna, en þetta þarf allt að
vera skoðað í heild,“ segir Sindri.
Fyrirhugað er á næstu vikum að
setja upp hreystigarð fyrir neðan
Akraneshöllina, hjá ærslabelgnum.
„Hreystitækin henta öllum, óháð
aldri eða daglegum venjum. Sett
verða upp átta líkamsræktartæki
með upplýsingaskilti þar sem hægt
verður að sjá hvernig megi nota
tækin til líkamsræktar. „Við mun-
um líka setja niður plöntur hér í
kring og gera fínt og vonandi skapa
skjól,“ segir Sindri.
Þá var einnig komið fyrir nýju
húsi við Guðlaugu á þriðjudaginn
í síðustu viku, en þar á að vera að-
staða fyrir starfsmenn Guðlaugar
og salerni fyrir gesti. „Það verð-
ur afgreiðsla í húsinu og tvö sal-
erni, þar af eitt með aðgengi fyr-
ir hjólastóla,“ segir Sindri. Áætlað
er að húsið verði tekið í notkun í
byrjun júní. Aðspurður segir Sindri
aðsókn í Guðlaugu hafa verið mjög
góð frá opnun og segist hann bjart-
sýnn fyrir sumrinu. „Ég hef ekki
nákvæmar tölur um heimsóknir í
Guðlaugu en ég veit að það hefur
verið mjög góð aðsókn, betri en
búist var við,“ segir hann.
arg
Unnið að bættu útivistarsvæði við Langasand
Nýju þjónustuhúsi hefur verið komið fyrir við Guðlaugu.
Sindri Birgisson, umhverfisstjóri hjá Akraneskaupstað, tyllti sér á einn bekkinn við
göngustíginn meðfram Langasandi.
Opnaði Daladekur í Búðardal
Svipmynd úr Daladekri.
Þórunn Elva Þórðardóttir.