Skessuhorn - 08.05.2019, Page 22
MIÐVIKUDAGUR 8. MAÍ 201922
Starfsfólkið á Skessuhorni ákvað á
föstudaginn að breyta út frá lokum
hefðbundinnar vinnuviku. Skrif-
stofunni var því lokað eftir hádeg-
ið og átta manns brunuðu í bílferð
á Snæfellsnes. Fyrst var komið við
á kaffihúsinu á Rjúkanda við Vega-
mót en síðan haldið yfir Vatnaleið
og stefnt á gististað á nýlegu Hót-
el Fransiskus. Snæddur var dýr-
indis matur á Narfeyrarstofu og
tímanum varið í að skoða lands-
lagið á og við Súgandisey. Til-
efni ferðarinnar var hin árlega út-
koma Ferðablaðsins Vesturlands.
Hluti starfsfólks hafði ekki ferðast
um Snæfellsnes áður og því þótti
bæði sjálfsagt og rétt að slá saman
heimildaferð um svæðið með því
að gerast ferðamenn í eigin landi.
Á laugardagsmorgni var svo hald-
ið sem leið lá rangsælis um Nesið,
komið við í Bjarnarhöfn og þeg-
in leiðsögn um safnið, þá með ís-
stoppi í Grundarfirði, frábærum
mat á Sker veitingahúsi í Ólafsvík,
stórbrotin grafíklistaverkin á Hell-
issandi skoðuð, vöfflur snæddar
í Fjöruhúsinu á Hellnum og loks
var viðkoma á Arnarstapa, einum
fegursta stað landsins. Hringnum
var lokað síðdegis og frá Vega-
mótum brunað suður á bóginn
undir kvöld. Allir höfðu gaman af
að kynnast töfrum Snæfellsness,
náttúrufegurð og gestrisni heima-
fólks. Meðfylgjandi myndir voru
teknar í ferðinni og fá að tala sínu
máli. Takk fyrir okkur! mm/ Ljósm.
glh/kgk/mm
Ferðast um fagurt Snæfellsnesið