Skessuhorn - 08.05.2019, Page 28
MIÐVIKUDAGUR 8. MAÍ 201928
Vörur og þjónusta
R E S T A U R A N T
Upplýsingar í síma: 430 6767
R E S T A U R A N T
Upplýsingar í síma: 430 6767
H P Pípulagnir ehf.
Alhliða pípulagnaþjónusta
Hilmir 820-3722
Páll 699-4067
hppipulagnir@gmail.com
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
8
Fyrir alla vigtun
Húsarafmagn
Töflusmíði
Iðnaðarrafmagn
Bátarafmagn
Bílarafmagn
RAFMAGN
vogir@vogir.is Sími 433-2202
VOGIR
Bílavogir
Kranavogir
Skeifuvogir
Pallvogir
Aflestrarhausar
Hönnun prentgripa
& alhliða prentþjónusta
Drei bréf - Boðsbréf
Ritgerðir - Skýrslur
Reikningar - Eyðublöð
Umslög - Bréfsefni
Fjölritunar- og
útgáfuþjónustan
Getum við
aðstoðað þig?
sími: 437 2360
olgeirhelgi@islandia.is
• Bílasprautun • Bílaréttingar • Framrúðuskipti
BÍLASPRAUTUN VESTURLANDS
S: 860-0708 • Smiðjuvellir 7, Akranesi • bv.sprautun@gmail.com
Vinnum fyrir öll tryggingafélög
„Jöfnum kjörin – samfélag fyrir alla,“ var yfirskrift baráttu laun-
þega á vinnumarkaði á 1. maí. Í ávarpi Drífu Snædal, forseta ASÍ,
sagði hún að samfélög þar sem jöfnuður er mikill eru undantekn-
ingalaust betri samfélög en hin þar sem ójöfnuður er ríkjandi.
„Ekki bara njóta sín fleiri einstaklingar í slíku umhverfi heldur
blómstra fyrirtæki líka, nýjar hugmyndir ná að skjóta rótum og
menningin blómstrar. Barátta verkalýðshreyfingarinnar er því
ekki barátta einstakra hópa fyrir betri kjörum heldur barátta fyrir
betri heild og betra samfélagi. Það er okkur öllum í hag að börn
hafi jöfn tækifæri til að mennta sig, njóta tómstunda og annarra
lífsgæða. Ef við takmörkum möguleika einstakra hópa á því að
þroskast og þróast erum við að búa til vandamál,“ sagði Drífa.
Hátíðarhöld á 1. maí fóru fram víðs vegar um Vesturland í
prýðilegu veðri. Meðfylgjandi myndir voru teknar við það tæki-
færi. mm
Jöfnun kjara og samfélag fyrir alla er
krafa verkalýðshreyfingarinnar
„Jöfnun kjara - samfélag fyrir alla,“ var yfirskriftin að þessu sinni. Svipmynd frá Akranesi. Ljósm. mm
Prýðileg mæting var í Hjálmakletti í Borgarnesi á samkomu sem Stéttarfélag
Vesturlands boðaði til. Hátíðarræðu dagsins flutti Sigursteinn Sigurðsson, en hér
eru Gleðigjafar, kór eldri borgara, að syngja. Þá söng Soffía Björg Óðinsdóttir
einnig og Ronja Ræningjadóttir kíkti í heimsókn. Ljósm. gaj.
Það var létt yfir þeim Ásmundi Una og Kristjáni sem völdu sér kröfuspjald með
áletruninni; „Verum jákvæð“. Ljósm. mm.
Trommusveit Tónlistarskólans á Akranesi fór fyrir göngunni, á eftir fánaberum og
formanni VLFA. Ljósm. mm.
Í Grundarfirði flutti Vignir Smári
Marinósson, formaður Vlf. Snæfellings,
ávarp og tónlistaratriði voru frá tón-
listarskólanum. Þórunn Lárusdóttir og
Karl Olgeirsson fluttu einnig nokkur lög
og kaffiveitingar voru að hætti Kven-
félagsins Gleym ér ei. Ljósm. sk.
Hjúkrunarfræðingar áttu sína fulltrúa í kröfugöngu verkalýðsfélaganna á
Akranesi. Ljósm. mm.
Diskódrottningin Helga Möller steig á
svið í Dalabúð í Búðardal og afrekaði
að slíta gesti frá tertuveitingum og
láta þá dilla sér svolítið. Það var
nýbreytni á 1. maí samkomu en þótti
skemmtilegt. Ljósm. sm.
Svipmynd af samkomu í félagsheimilinu Klifi í Ólafsvík. Að hátíðinni stóðu Verka-
lýðsfélag Snæfellinga, Starfmannafélag Dala- og Snæfellsnessýslu og Sameyki
stéttarfélag í almannaþjónstu. Var hátíðin með hefðbundum hætti og kynnir
hennar og ræðumaður var nýkjörinn formaður Verkalýðsfélags Snæfellinga,
Vignir Smári Maríasson. Hér flytja nemendur úr Tónlistarskóla Snæfellsbæjar tón-
listaratriði. Ljósm. þa.
Félag eldri borgara í
Snæfellsbæ sá um að
reiða fram kökur á
samkomunni í Ólafsvík
ásamt því að félagið
stóð fyrir sýningu á
handavinnu félags-
manna sinna.
Ljósm. þa.