Skessuhorn - 08.05.2019, Page 30
MIÐVIKUDAGUR 8. MAÍ 201930
MT: Stefán Gísli með verðlauna-
gripinn síðastliðinn sunnudag.
Hvað er það besta við vorið?
Spurni g
vikunnar
(Spurt í Hyrnutorgi í Borgarnesi)
Jóhanna Marín Björnsdóttir
„Veðrið.“
Viktor Már Jónasson
„Fótboltinn byrjar.“
Dóra Hermannsdóttir
„Birtan.“
Ástvaldur Pétursson
„Þegar vorið kemur þá bíður
maður eftir að komast norður á
Strandir á handfæri.
Monica Gomez
„Það er meiri gleði og léttleiki
yfir fólki.“
Flugbjörgunarsveitin á Hellu og
Akstursíþróttanefnd Umf. Heklu
héldu Sindratorfæruna á laugardag-
inn í blíðskaparveðri á Hellu. Mót-
ið laðaði marga að því 5500 mættu
til að fylgjast með. Það var Geir
Evert Grímsson á Sleggjunni sem
hreppti Helluna með því að standa
efstur að stigum eftir daginn. Hann
sýndi glæsileg tilþrif og ók öruggt í
gegnum alla keppnina auk þess að
klára ána og mýrina með stæl. Aðr-
ir ökumenn sýndu einnig góð til-
þrif. Aron Ingi Svansson á Stormi
hreppti tilþrifaverðlaunin í sérút-
búna flokknum eftir mikla flug-
sýningu í brautunum og frábæra
björgun frá veltu í tímabraut. Jak-
ob Nielsen Kristjánsson á Pjakkn-
um í götubílaflokki setti flokkinn á
annað „level“ og lét vaða á barðið
í fyrstu braut og flaug bókstaflega
upp og fékk tilþrifaverðlaunin að
launum. Haukur Viðar Einarsson á
Heklu náði mesta hraðanum á ánni
98 km og var 4 km frá heimsmet-
inu. Íslandmeistarinn og heims-
metshafinn Þór Þormar Pálsson
náði sér ekki á strik en sýndi frá-
bæra takta og velti eins og hon-
um einum er lagið! Óskar Jóns-
son á Úlfinum kom sá og sigraði í
götubílaflokki í sinni fyrstu keppni
á nýsmíðuðum bíl. Það verður að
teljast góður árangur. Bresku hetj-
urnar frá Topgear, þeir Cristopher
Harris og Freddie Flintoff, end-
uðu ofan við miðju sem verður að
teljast þokkalegt enda báðir í sinni
fyrstu keppni og annar þeirra sett-
ist fyrst undir stýri 30 mínútur fyr-
ir keppni.
Helstu úrslit urðu þessi:
Götubílar
1. sæti 1382 Óskar Jónsson,
Úlfurinn
2. sæti 1365 Steingrímur Bjarna-
son, Strumpurinn
3. sæti 1151 Jakob Nielsen Krist-
jánsson, Pjakkurinn
Sérútbúnir
1. sæti 1774 Geir Evert Grímsson,
Sleggjan
2. sæti 1712 Ingólfur Guðvarðars-
son, Guttinn
3. sæti 1638 Haukur Viðar Einars-
son, Hekla. mm
„Sumarið leggst bara vel í okkur.
Við mætum náttúrulega til leiks með
töluvert breyttan hóp frá síðasta ári.
Við erum búnar að missa reynslu-
bolta sem spiluðu stór hlutverk í lið-
inu í fyrra. Bergdís Fanney skipti yfir
í Val, Unnur fyrirliði er ófrísk, Mar-
en Leós tók sér frí frá boltanum og
Heiðrún Sara og Aldís Ylfa eru hætt-
ar. Allar spiluðu þær stórt hlutverk í
liðinu í fyrra. Bara Unnur og Berg-
dís Fanney skoruðu ein 30 mörk fyr-
ir okkur í fyrra, það munar öll lið
um það,“ segir Helena Ólafsdóttir,
þjálfari ÍA, í samtali við Skessuhorn.
„Engu að síður erum við bjartsýnar
á sumarið. Ungar stelpur fá tækifæri
í staðinn fyrir þær sem eru ekki með
okkur núna. Það er svolítið þeirra að
grípa tækifærið og ég er ekki í vafa
um að þær geri það. Mér finnst þær
hafa sýnt það og sannað á undirbún-
ingstímabilinu að þær eru tilbúnar
að leggja sig fram,“ bætir hún við.
Góður andi í hópnum
Að sögn Helenu er stemningin í
hópnum góð núna þegar mótið er
rétt handan við hornið. „Við erum
nýlega komnar úr æfingaferð til
Spánar. Hún lukkaðist virkilega vel,
þjappaði liðinu vel saman og það er
góður andi í hópnum,“ segir hún.
„En við vitum alveg að mótið verð-
ur töff. Liðin sem við erum að spila
við eru alltaf að verða sterkari. Það
er stöðugt verið að leggja meiri og
meiri metnað í bestu liðin í Inkasso
deildinni, verið að sækja sterka leik-
menn, bæði Íslendinga og útlend-
inga. Pressan verður allavega ekki
á okkur,“ segir Helena. Aðeins er
einn erlendur leikmaður í herbúðum
Skagakvenna í ár, bandaríski mark-
vörðurinn Tori Ornella, en hún lék
einnig með liðinu á síðasta keppnis-
tímabili. „Síðan fengum við Ólöfu
Sigríði að láni frá Val. Hún er að-
eins 16 ára gömul og hefur komið
skemmtilega inn í liðið. Þar veðjum
við á ungan og efnilegan leikmann
sem fær ekki tækifæri með sínu liði.
Þá fengum við einnig til liðs við okk-
ur reynslubolta í Andreu og Klöru,
en liðið byggist að langstærstu leyti
á heimastelpum eins og vanalega,“
segir Helena.
Ætla að berjast
í efri hlutanum
ÍA hafnaði í 3. sæti deildarinnar í
fyrra og átti möguleika á sæti í deild
þeirra bestu þar til í lokaumferðun-
um. Þrátt fyrir miklar breytingar á
liðinu í ár segir Helena ætlun liðs-
ins að vera á svipuðum slóðum. „Við
erum með alls konar lítil markmið
fyrir mótið en heildarmarkmiðið fyr-
ir mótið er að vera í baráttunni fyr-
ir ofan miðju og stríða liðunum í efri
hluta deildarinnar,“ segir hún. „Við
göngum ekki að neinu vísu í sumar.
Við þurfum að vinna í okkar hlutum
og berjast fyrir hverjum bolta. Við
getum unnið öll lið í deildinni á góð-
um degi en að sama skapi getum við
tapað fyrir öllum liðum á slæmum
degi. Stelpurnar eru meðvitaðar um
það, tilbúnar að leggja sig fram og ég
vona að við fáum góðan stuðning á
pöllunum í vetur. Það skiptir máli og
gefur liðinu aukinn kraft inni á vell-
inum,“ segir Helena Ólafsdóttir að
endingu. kgk
Káramenn unnu 4-0 sigur á Völ-
sungi í fyrstu umferð 2. deildar
karla í knattspyrnu á laugardaginn.
Leikið var í Akraneshöllinni og
heimamenn voru mun sterkari frá
fyrstu mínútu.
Kári komst yfir á 28. mínútu með
marki Andra Júlíussonar. Fimm
mínútum síðar bætti Ólafur Karel
Eiríksson öðru marki við og staðan
var 2-0 í hálfleik. Káramenn héldu
uppteknum hætti eftir hléið. Hilm-
ar Halldórsson kom Kára í 3-0 á
52. mínútu og Eggert Kári Karls-
son rak síðan smiðshöggið á góðan
leik heimamanna með marki á 76.
mínútu.
Lokatölur urðu 4-0 og Kári tyllir
sér þar með í toppsæti deildarinnar
eftir fyrstu umferðina. Næst leikur
liðið á föstudaginn, 10. maí, gegn
Þrótti Vogum á Vogaídýfuvellinum
suður með sjó.
kgk/ Ljósm.
Knattspyrnufélag Kára.
„Getum unnið öll lið í deildinni á góðum degi“
- segir Helena Ólafsdóttir, þjálfari ÍA
Skagakonur fagna marki í deildinni síðastliðið sumar. Ljósm. úr safni/ sas.
Helena Ólafsdóttir á hliðarlínunni með ÍA síðasta sumar.
Ljósm. Knattspyrnufélag ÍA.
Kári
burstaði
Völsung
5500 manns á Sindratorfærunni