Skessuhorn - 08.05.2019, Side 31
MIÐVIKUDAGUR 8. MAÍ 2019 31
Klettagörðum 15 | 525 7700 | flytjandi.is
DAGLEGA Á FERÐINNI MEÐ
VÖRUR UM ALLT LAND
Eimskip Flytjandi veitir samræmda flutningaþjónustu
um land allt og eru áfangastaðirnir 80 talsins.
Skallagrímsmenn hófu leik í 3.
deild karla í knattspyrnu á laugar-
daginn þegar þeir tóku á móti Ein-
herja á Skallagrímsvelli. Sumarið
byrjar vel hjá Borgnesingum, sem
sigruðu leikinn 2-1.
Einherji náði forystunni á 22.
mínútu leiksins þegar Jareo Jolon
Bennett skoraði fyrir liðið. Fimm
mínútum fyrir hálfleik jafnaði
Cristofer Rolin fyrir Borgnesinga
og staðan 1-1 þegar liðin gengu til
búningsherbergja í hléinu. Cristo-
fer var síðan aftur á ferðinni á 61.
mínútu þegar hann kom Skallagrími
yfir. Fleiri mörk voru ekki skoruð í
leiknum og 2-1 sigur Borgnesinga
staðreynd.
Skallagrímur situr í öðru sæti
deildarinnar eftir sigur í fyrsta leik.
Reynir Sandgerði er á toppnum en
KV og Kórdrengirnir, sem einnig
unnu í fyrstu umferð, eru í sætunum
fyrir neðan Borgnesinga. Næst leikur
Skallagrímur gegn Álftanesi á morg-
un, fimmtudaginn 9. maí. Sá leikur
fer einnig fram í Borgarnesi. kgk
ÍA og Fylkir skildu jöfn, 2-2, þeg-
ar liðin mættust í Pepsi Max deild
karla í knattspyrnu á sunnudags-
kvöld. Leikið var í Árbænum.
Skagamenn byrjuðu leikinn af
krafti og komust yfir strax á 13.
mínútu leiksins. Eftir langt innkast
skölluðu Fylkismenn boltann út úr
teignum. Hörður Ingi Gunnarsson
lagði boltann fyrir sig með einni
snertingu og þrumaði honum síð-
an upp í þaknetið. Skagamenn voru
sterkari í fyrri hálfleik og sköpuðu
sér fjölmörg færi, þar af nokkur
dauðafæri sem ekki tókst að nýta og
staðan því 0-1 í hálfleik.
Fylkismenn fóru rækilega yfir sín
mál í hléinu og mættu ákveðnir til
síðari hálfleiks. Þeir jöfnuðu met-
in strax á 52. mínútu þegar Einar
Logi Einarsson varð fyrir því óláni
að skora sjálfsmark þegar hann ætl-
aði að skalla boltann frá eftir horn-
spyrnu. Heimamenn efldust við
markið og stjórnuðu gangi mála
inni á vellinum. Þeir komust síðan
í forystuna á 71. mínútu. Góð sókn
endaði með því að Sam Hewson
sendi boltann inn fyrir vörnina á
Geoffrey Castillion sem lagði hann
snyrtilega framhjá Árna Snæ Ólafs-
syni í marki ÍA.
Fylkismenn voru sterkari eftir
markið en Skagamenn reyndu að
setja meira púður í sóknina til að
freista þess að jafna metin þegar
færðist nær leikslokum. Þeir vildu
fá vítaspyrnu í uppbótartíma þeg-
ar boltinn fór í hönd Fylkismanns
og þaðan aftur fyrir endamörk
en ekkert var dæmt nema horn-
spyrnu. Upp úr henni tókst Skaga-
mönnum hins vegar að jafna met-
in og réttlætinu þar með fullnægt
að mati stuðningsmanna ÍA. Bolt-
inn var sendur frá hægri til vinstri
inn í teiginn þar sem Lars Marcus
Johansen stýrði honum inn á mark-
teig fyrir Óttar Bjarna Guðmunds-
son sem henti sér á boltann og jafn-
aði metin fyrir ÍA. Fylkismenn voru
síðan nálægt því að stela sigrinum
eftir hornspyrnu á lokaandartök-
um leiksins en þrumuðu boltanum
framhjá. Jafntefli varð því niður-
staðan og eitt stig á hvort lið.
ÍA situr í þriðja sæti deildarinnar
með fjögur stig eftir fyrstu tvo leiki
sumarsins, jafn mörg og Fylkir og
KR í sætinum fyrir ofan og Breiða-
blik í sætinu fyrir neðan. Næst leika
Skagamenn á laugardaginn, 11.
maí, þegar þeir mæta Íslandsmeist-
urum Vals á útivelli. kgk
Víkingur Ó. bar siguorð af Gróttu í
fyrstu umferð Inkasso-deildar karla
í knattspyrnu, 2-0. Leikið var á
Ólafsvíkurvelli á sunnudaginn.
Bæði lið fengu álitleg marktæki-
færi í upphafi leiks, en öll fóru þau
þó forgörðum. Eftir því sem leið
á fyrri hálfleikinn náðu Ólafsvík-
ingar betri tökum á leiknum og
sókn þeirra þyngdist. Þeir komust
yfir á 34. mínútu eftir snarpa sókn.
Grétar Snær Gunnarsson átti skot
í varnarmann, þaðan sem boltinn
barst á Jacob Andersen sem skor-
aði af öryggi. Fleiri mörk voru ekki
skoruð í fyrri hálfleik og Víkingur
því 1-0 yfir í hléinu.
Heimamenn voru áfram sterkari
í síðari hálfleik. Þeir fengu nokk-
ur sæmileg tækifæri til að bæta
við marki framan af. Gestirnir úr
Gróttu fengu fá færi en voru ná-
lægt því að jafna á 79. mínútu þeg-
ar Ólafsvíkingar björguðu á mark-
línu. Liðsmenn Víkings sneru vörn
í sókn og tókst loks að gulltryggja
sigurinn á 89. mínútu leiksins. Sal-
lieu Tarawallie vann þá boltann
af varnarmanni Gróttu og renndi
honum fyrir fætur Harleys Will-
ards sem kláraði færið vel. Lokatöl-
ur á Ólafsvíkurvelli urðu 2-0, Vík-
ingi í vil.
Ólafsvíkingar hafa þrjú stig í
þriðja sæti deildarinnar eftir fyrsta
leik sumarsins, en athygli vekur að
ekkert jafntefli varð í fyrstu um-
ferðinni. Því hafa sex lið þrjú stig
eftir einn leik og önnur sex eru án
stiga.
kgk
Skagamenn eru komnir í 16 liða
úrslit Mjólkurbikars karla í knatt-
spyrnu eftir öruggan 3-0 sigur á
Augnabliki á miðvikudag. Leikið
var í Fífunni í Kópavogi.
Skagamenn fengu algera óska-
byrjun því Steinar Þorsteinsson
skoraði strax á upphafsmínútunni
og ÍA komið yfir. Óttar Bjarni Guð-
mundsson bætti öðru marki við á
15. mínútu leiksins og þannig stóðu
leikar þegar liðin gengu til bún-
ingsherbergja í hléinu. Viktor Jóns-
son bætti síðan þriðja marki Skaga-
manna við á 77. mínútu og þannig
urðu lokatölur leiksins. Skagamenn
sigruðu 3-0 og eru komnir í 16 liða
úrslit bikarsins.
kgk/ Ljósm. úr safni/ gbh.
Snæfellingar eru sigurvegarar í C
deild Lengjubikars karla í knatt-
spyrnu eftir sigur á GG í úrslita-
leiknum á sunnudag. Leikurinn fór
fram á Grindavíkurvelli. Hann var
bæði jafn og spennandi og augljóst
að bæði lið vildu vinna.
Snæfellingar fengu draumabyrj-
un í leiknum þegar Matteo Tuta
kom Stykkishólmsliðinu yfir strax
á 10. mínútu leiksins. Þannig var
staðan í hálfleik og allt þar til Ivan
Jugovic jafnaði metin fyrir GG á
72. mínútu.
Fleiri mörk voru ekki skoruð í
venjulegum leiktíma. Þá var farið
beint í vítaspyrnukeppni. Snæfell-
ingar tóku fyrstu spyrnuna og skor-
uðu. GG menn tóku næstu spyrnu
en þrumuðu henni yfir markið. Það
reyndist dýrkeypt, því allar spyrnur
eftir það lágu í netinu og Snæfell-
ingar því sigurvegarar Lengjubik-
arsins. kgk
Skagamenn áfram í bikarnum
Sigur í fyrsta leik
Danski framherjinn Jacob Andersen sækir að marki Gróttu í leiknum á sunnudag.
Ljósm. þa.
Borgnesingar byrja á sigri
Liðsmenn Skallagríms fagna öðru marka Cristofers Rolins. Ljósm. sas.
Sigri hrósandi Snæfellingar með Lengjubikarinn. Ljósm. Snæfell.
Snæfellingar sigruðu
í Lengjubikarnum
Jöfnuðu í uppbótartíma
Óttar Bjarni Guðmundsson sem skoraði jöfnunarmark ÍA gegn Fylki þegar
venjulegur leiktími var liðinn. Ljósm. gbh.