Skessuhorn


Skessuhorn - 15.05.2019, Blaðsíða 2

Skessuhorn - 15.05.2019, Blaðsíða 2
MIÐVIKUDAGUR 15. MAÍ 20192 Lokakeppni Eurovision söngva- keppninnar verður á laugardaginn, 18. maí. Það er nú ekki úr vegi að draga fram leðrið og gaddaólarnar til að skreyta sig með í tilefni dags- ins, hvort sem þið eruð Eurovision elskendur - eða hatarar. Á morgun er spáð sunnanátt 3-8 m/s og víða léttskýjað norðan- og austanlands, en rigning með köfl- um sunnan- og vestanlands. Hiti 8-18 stig, hlýjast norðaustanlands. Á föstudag og laugardag er útlit fyr- ir suðaustlægri átt 3-8 m/s og víða léttskýjað á norðaustanverðu land- inu, annars rigning með köflum. Hiti 8-18 stig, hlýjast norðaustanlands. Á sunnudag verður hæg austlæg- eða breytileg átt, skýjað og lítilsháttar væta vestantil, en skýjað með köfl- um austantil. Hiti 8-18 stig, svalast við sjóinn. Á mánudag verður hæg breytileg átt og skýjað við sjóinn en bjart inn til landsins. Hiti 6-16 stig. Í síðustu viku voru lesendur á vef Skessuhorns spurðir hvaða ferða- máta þeir nota venjulega til að fara til vinnu eða skóla. Flestir, eða 53% segjast fara akandi. 18% svarenda fara gangandi, 12% eru ekki í vinnu og 8% svarenda fara á hjóli. Það er misjafnt hvernig 6% svarenda fara í vinnu eða skóla og 3% vinna heima hjá sér. Í næstu viku er spurt: Hvenær ferðu að sofa? Undanfarið hafa fjölmargir Vest- lendingar farið út og hreinsað nær- umhverfið, sem gerir bæjar- og sveitarfélögin okkar fín fyrir sum- arið auk þess sem það fer vel með jörðina. Þeir sem hafa tekið þátt og farið út að hreinsa eru Vestlending- ar vikunnar. Spurning vikunnar Til minnis Veðurhorfur Vestlendingur vikunnar Drónadóni AKRANES: Stúlkur höfðu samband við Lögregluna á Vesturlandi í vikunni og greindu frá dróna á flugi við útisturtur á Langasandi á Akranesi. Lögregla seg- ir ekki æskilegt að drónum sé flogið yfir útisturtum þar sem fólk er fáklætt að baða sig. Talið er vitað hver flaug drónanum en málið er enn til rannsóknar. -kgk Brunað framhjá Bifröst BORGARFJ: Mikið var um hraðakstur í umdæmi Lög- reglunnar á Vesturlandi í vikunni sem leið. Áhersla var lögð á að fylgjast með um- ferðinni, því hættan á hrað- akstri eykst eftir því sem veðrið batnar, eins og áður hefur komið fram. Lögregla hafði uppi eftirlit með öku- hraða við Bifröst milli kl. 16 og 18 á sunnudaginn, á þeim kafla þar sem hámarkshrað- inn er tekinn niður úr 90 km/ klst í 70 km/klst. Þar reynd- ust ansi margir aka of geyst. Alls fóru 480 ökutæki um götuna þessar tvær klukku- stundir sem lögregla var við eftirlit. Þar af voru hvorki fleiri né færri en 333 yfir leyfilegum hámarkshraða, eða 69%. Af þeim voru 232 kærðir fyrir of hraðan akst- ur, eða 48% allra ökutækja. Meðalhraði kærðra var 87,8 km/klst og sá sem hraðast ók var á 109 km/klst. Lögregla minnir á að ástæða er fyrir því að hámarkshraði er lækk- aður þegar ekið er framhjá Bifröst. Þar er skóli og þar býr fólk með fjölskyldur sín- ar auk þess sem útivistar- svæði er sitt hvorum megin við þjóðveginn. Fyrr í vik- unni var lögregla við hraða- eftirlit á Borgarbraut í Borg- arnesi, eða á föstudaginn. Alls fór 391 ökutæki um götuna á þeim tíma sem lögregla vakt- aði hana. Þar af voru 36 öku- menn kærðir fyrir of hraðan akstur, eða 9%. Sá sem hrað- ast ók var mældur á 74 km/ klst en hámarkshraði göt- unnar er 50 km/klst. -kgk Sprakk á kerru í göngunum HVALFJSV: Ökumanni var komið til aðstoðar í Hval- fjarðargöngum í liðinni viku þegar dekk sprakk á kerru sem hann hafði í eftirdragi. Lögregla aðstoðaði manninn við að skipta um dekkið og fylgdi honum upp úr göng- unum. Lögregla hvetur bíl- stjóra til að hringja strax og láta vita ef þeir lenda í vand- ræði í göngunum. Þá er þeim lokað í öryggisskini, því ekki er hægt að mætast alls staðar í Hvalfjarðargöngum ef öku- maður þarf skyndilega að nema staðar og kemst ekki að útskoti. -kgk Að kvöldi þriðjudags í liðinni viku kom upp eldur í húsi Fjöliðjunn- ar við Dalbraut 10 á Akranesi. Allt tiltækt lið Slökkviliðs Akraness og Hvalfjarðarsveitar var kallað á stað- inn. Mikill eldur var í miðhluta hússins þegar slökkvilið bar að garði og lagði reyk yfir nærliggjandi hús. Slökkvistarf gekk greiðlega og Lagafrumvarp sem heimilar inn- flutning á hráu ófrosnu kjöti, eggj- um og ógerilsneyddri mjólk og mjólkurafurðum er nú til umfjöll- unar á Alþingi. Bændasamtök Ís- lands hafa í umsögnum sínum og umfjöllun um málið lagst gegn samþykkt þess. Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra hefur kynnt aðgerðaáætlun í fimmtán liðum sem ætlað er að efla matvælaöryggi, tryggja vernd búfjárstofna og bæta samkeppnisstöðu innlendrar mat- vælaframleiðslu. „Nú þegar stefnir í afgreiðslu málsins er ljóst að óraunhæft er með öllu að aðgerðaáætlun ráð- herra hafi einhver raunveruleg áhrif fyrir gildistöku laganna sem áætluð er 1. september næstkom- andi. Mikil vinna er eftir til þess að útfæra og innleiða tillögur sem þar að finna og jafnframt á eftir að svara veigamiklum spurningum um fjármögnun s em ekki liggur fyrir,“ segir í tilkynningu frá Bændasam- tökunum. Í ljósi stöðu málsins fara þau fram á að gildistöku laganna verði frestað í að minnsta kosti þrjú ár og um leið að gripið verði til ákveðinna aðgerða til að lág- marka það tjón sem hlotist getur af. „Í fyrsta lagi að tryggja fjármögn- un og framkvæmd þeirra mót- vægisaðgerða sem ráðherra hefur lagt til. Í öðru lagi er nauðsynlegt er að þar til bærri stofnun verði á aðlögunartíma falið að gera grein- ingarmörk vegna sýklalyfjaónæmra baktería í matvælum (þ.á.m. kjöti og grænmeti) og að markaðssetn- ing á afurðum sem í ræktast sýkla- lyfjaónæmar bakteríur verði gerð óheimil. Ljóst er að skilgreint og aukið fjármagn þarf í þá vinnu og eftirlit. Að öðru leyti þarf að fara í stórátak til að draga úr eða stöðva aukningu á útbreiðslu á sýklalyfja- ónæmi í landbúnaðarafurðum.“ mm Mikið tjón í eldsvoða í húsi Fjöliðjunnar við Dalbraut liðu ekki nema um tuttugu mínútur þar til búið var að ráða niðurlögum eldsins og hægt var að hefja reyk- hreinsun. Reyk hafði þá lagt um alla bygginguna og skemmdir eru því víðtækar af völdum elds, reyks og vatns. Mestar skemmdir urðu á miðrými hússins. Engin starfsemi eða mannskapur var í húsinu þeg- ar eldurinn kom upp. Rannsókna- deild Lögreglunnar á Vesturlandi rannsakar orsakir brunans, en ljóst er að margir mánuðir muni líða þar til viðgerðum verður lokið. Eðli málsins samkvæmt var brun- inn áfall fyrir starfsfólkið í Fjöl- iðjunni, en þar eru að jafnaði um fjörutíu manns að störfum. Til að halda starfsfólki sem best upplýstu og ræða saman, var fólkinu boðið morguninn eftir á heimili Ástu Pálu Harðardóttur yfirþroskaþjálfa. „Við áttum afskaplega góða stund saman og það var gagnlegt að geta rætt við fólkið í rólegheitunum, ekki síst til að draga úr óvissu sem skapast við svona atburð,“ sagði Guðmundur Páll Jónsson forstöðumaður Fjöl- iðjunnar í samtali við Skessuhorn. „Þar sem ljóst er að starfsemi verð- ur ekki í húsinu um hríð verður lögð áhersla á að finna húsnæði til bráðabirgða. Við höfum fjölda viðskiptavina; almenning og fyrir- tæki, sem við vinnum ýmis verk- efni fyrir og munum leggja áherslu á að koma starfsemi okkar í gang eins fljótt og auðið er. Fólkið sem hjá okkur starfar vill auk þess kom- ast sem fyrst til vinnu,“ sagði Guð- mundur Páll. Akraneskaupstaður á húsnæði Fjöliðjunnar við Dalbraut 10. For- svarsmenn bæjarins hófu strax leit að hentugu húsnæði sem hægt væri að fá til leigu til að koma hluta starfsemi Fjöliðjunnar í gang að nýju. Sú leit skilaði þeirri niður- stöðu að starfseminni verður komið fyrir til bráðabirgða í leiguhúsnæði í Akurshúsinu við Smiðjuvelli með- an viðgerð stendur yfir á húsinu við Dalbraut 10. Sjá viðtal þessu tengt á bls. 16 mm Bæjarstjórn Akraneskaupstaðar ákvað um helgina að taka á leigu húsnæði hjá Trésmiðjunni Akri við Smiðjuvelli 9 til að hýsa starfsemi Fjöliðjunnar. Sævar Freyr Þráinsson bæjarstjóri staðfesti í samtali við Skessuhorn að ákvörðun lægi fyrir og að gengið verði frá leigusamningi í þessari viku. Mikinn reyk lagði frá brunanum. Hér er slökkvistarf vel á veg komið. Skemmdir eru miklar á miðhluta hússins en auk þess reyk- og sótskemmdir um allt húsið. Myndin er tekin skömmu eftir að slökkvistarfi lauk um kvöldið. Bændasamtökin fara fram á þriggja ára aðlögunartíma

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.