Skessuhorn - 15.05.2019, Blaðsíða 11
MIÐVIKUDAGUR 15. MAÍ 2019 11
Snorrastofa hóf á loft kefli barna-
menningar miðvikudaginn 8. maí
þegar 170 nemendur úr grunnskól-
um nágrennisins mættu á höfuð-
ból höfðingjans Snorra Sturluson-
ar, kynntu með líflegum tilþrifum
eigin afurðir sem til urðu í vetrar-
náminu um hann og miðaldir. Að
því búnu tókust þau á við ýmsa
þætti þess lífs, sem lifað var á hans
tíma, sem framreiddir voru af góð-
um gestum, handverks- og lista-
fólki. Þetta voru miðstigsnemendur
í Reykhólaskóla, Auðarskóla, Laug-
argerðisskóla, Grunnskóla Borgar-
ness og Grunnskóla Borgarfjarð-
ar ásamt kennurum sínum og leið-
beinendum. Frumkvæði og stuðn-
ingur við hátíðina kemur úr menn-
ingarhluta Uppbyggingarsjóðs
Vesturlands.
Eftir sambærilega hátíð árið 2016
var ákveðið að bjóða miðstigsnem-
endum af Vesturlandi til hátíðar á
þriggja ára fresti þannig að hver og
einn komi einu sinni á námstíman-
um í sérstaka heimsókn í Reykholt
eftir að hafa fengist við ævi og störf
frægasta höfðingja og sagnaritara
staðarins í námi sínu.
Dagurinn hófst með því að nem-
endur kynntu hver fyrir öðrum
ýmis skemmtileg og frumleg verk-
efni úr skólastarfinu sem gáfu til
kynna að mikið hefur verið starfað í
vetur og börnin vel að sér um mál-
efnin. Þar má nefna hreyfimynd-
ir með kyrrum og leiknum mynd-
skeiðum, myndverk af ýmsu tagi,
áþreifanlega muni eins og vatn úr
Hvammsá í Dölum, bækur fyrir
ungt fólk í dag, sem sækja efnivið
í smiðju Snorra og alls kyns sam-
antektir, sem gefa innsýn í ævi og
örlög hans. Eftir hádegishressingu
setti sveitarstjóri Borgarbyggðar,
Gunnlaugur Júlíusson, hátíðina í
Reykholtskirkju og í kjölfarið steig
Elfar Logi Hannesson á stokk og
sýndi einleik sinn um Gísla Súrs-
son. Það var magnað að sjá, hvað
krakkarnir fylgdust vel með þess-
ari framandi sögu frá miðöldum og
héldu svo galvösk í hópum til ým-
issa búða, sem biðu víða um staðinn
með upplifun og tilraunum.
Í einni þeirra gátu nemendur
tekið þátt í að mala korn, hnoða
brauðdeig og fá ljúfmetið steikt yfir
eldi. Það voru þau Bryndís Geirs-
dóttir og Guðni Páll Sæmundsson
sem réðu ríkjum í brauðgerðinni
með aðstoð Gíslínu Jensdóttur. Ein
búðin bauð nemendum að kynnast
miðaldatónlist, hlusta á fjölbreytt
hljóðfæri, kveða rímur og dansa.
Þar réðu ferðinni tónlistarkonurnar
Kristín Lárusdóttir, Diljá Sigur-
sveinsdóttir og Helga A. Jónsdóttir.
Í ritstofu Svanhildar M. Gunnars-
dóttur frá Árnastofnun fengu nem-
endur að draga til stafs með fjöð-
urstaf og jurtableki á lítinn bút af
kálfskinni og í fjórða lagi beið nem-
enda að fara í ratleik um staðinn
með appinu Snorra, í umsjá Stein-
unnar Gunnlaugsdóttur frá Loca-
tify í Borgarnesi. Líklega gerði þó
„kakótjaldið“ einna mesta lukku
þar sem hægt var að koma við og fá
sér heitt kakó og eiga næðisstund á
tjaldbekk eða í faðmi náttúrunnar.
Dagurinn ljómaði í Reykholti á
miðvikudaginn þar sem gleði og
sköpun réðu ríkjum og börn og
menning áttu gjöfula samleið. Að
honum stóð gott fólk, bæði heima-
menn og aðkomumenn, sem sam-
einuðust um að hlúa að mikilvæg-
um þætti skólastarfsins, að enda
námsferlið með raunverulegri
tengingu við efni og inntak náms-
ins. Börnin sýndu svo ekki varð um
villst, að þeirra er framtíðin. Til
gamans má geta þess að Landinn,
með Gísla Einarsson í fararbroddi,
dvaldi á staðnum eftir hádegið og
fangaði andrúmsloftið í skemmti-
legri samantekt, sem birtist í RÚV
síðastliðinn sunnudag og finna má
á vef Ríkisútvarpsins.
Jónína Eiríksdóttir
Ljósmyndir: Guðlaugur Óskarsson
Allar líkur eru á að íslenska ríkið
þurfi að greiða fimm sveitarfélögum
samtals 683 milljónir króna eftir að
Hæstiréttur Íslands kvað upp dóm
í máli Grímsness- og Grafnings-
hrepps gegn ríkinu í gær, þriðju-
daginn 14. maí. Ríkinu er gert að
greiða hreppnum 234 milljónir, auk
vaxta. Málið snýst um greiðslur úr
Jöfnunarsjóði sveitarfélaga, ekki síst
vegna flutnings grunnskólanna til
sveitarfélaganna á sínum tíma. Rík-
ið skerti þær greiðslur til hrepps-
ins á árunum 2013 til 2016. Um
er að ræða jöfnunarframlög sem
tengjast tekjutapi vegna lækkun-
ar tekna af fasteignaskatti og vegna
launakostnaðar sveitarfélaga vegna
kennslu í grunnskólum auk annars
kostnaðar, svo sem vegna þjónustu-
samninga og sérþarfa bæði fatlaðra
nemenda og innflytjenda. Greiðsl-
urnar til Grímsnes- og Grafnings-
hrepps voru felldar niður þar sem
heildartekjur sveitarfélagsins af út-
svari og fasteignaskatti á hvern íbúa
var meira en 50% hærri en með-
altal miðað við fullnýtingu tekju-
stofnanna.
Niðurstaða Hæstaréttar var sú
að reglugerð veitti ríkinu ekki full-
nægjandi heimild til að fella greiðs-
lurnar niður. Til þess hefði þurft
að breyta lögunum. Ríkinu var því
gert að greiða hreppnum þá fjárhæð
sem um var deilt, eða 234 milljónir
sem fyrr segir.
Fjögur önnur sveitarfélög hafa
höfðað sambærilegt mál á hendur
íslenska ríkinu, þar af tvö á Vestur-
landi. Þau eru Hvalfjarðarsveit og
Skorradalshreppur en auk þeirra
Ásahreppur og Fljótsdalshreppur. Á
Vísi er haft eftir Óskari Sigurðssy-
ni lögmanni í gær, sem fer með
mál sveitarfélaganna fimm gegn
ríkinu, að gert hafi verið samko-
mulag um að eitt mál yrði flutt og
að niðurstaða þess myndi ráða hi-
num fjórum málunum. Á Óskar því
von á að mál hinna sveitarfélaganna
þurfi ekki að fara fyrir dóm heldur
muni ríkið gera upp við sveitarfé-
lögin eftir dóm Hæstaréttar í gær.
Hvalfjarðarsveit krafðist þess að
fá 303,6 milljónir króna yrðu en-
durgreiddar, Skorradalshreppur
35,5 milljónir, Ásahreppur 69,3
milljónir og Fljótsdalshreppur 40,4
milljónir. Alls nema kröfur sveitar-
félaganna á hendur ríkinu því um
683 milljónum króna, auk vaxta.
Þar að auki segir Óskar í samta-
li við Vísi að sveitarfélögin muni
krefjast þess að fá greiðslur vegna
sambærilegra skerðinga á árunum
2017 til 2019. Því sé viðbúið að sú
fjárhæð sem ríkið hefur verið dæmt
til að greiða sveitarfélögunum muni
hækka.
kgk
Börnin mæta miðöldum í Reykholti
Frá Hvalfirði. Myndin tengist efni fréttarinnar ekki með beinum hætti. Ljósm. úr safni.
Ríkið dæmt til að greiða hundruð milljóna
Fimm sveitarfélög höfðuðu mál vegna skerðingar greiðslna úr Jöfnunarsjóði