Skessuhorn - 15.05.2019, Blaðsíða 21
MIÐVIKUDAGUR 15. MAÍ 2019 21
Skipulagsauglýsing hjá Borgarbyggð
Sveitarstjórn Borgarbyggðar hefur á 183. fundi sínum þann 9. maí 2019, samþykkt að auglýsa
eftirfarandi tillögur. Borgarbyggð auglýsir hér með skv. 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr.
123/2010 eftirtalda tillögu að breytingu á deiliskipulagi:
Bifröst í Borgarbyggð – tillaga að breytingu á deiliskipulagi.
Tillagan gerir ráð fyrir sameiningu lóða við Hamragarð, heildarstærð nýrrar lóðar verður 2.369m².
Heimilt verður að byggja tengibyggingu á einni hæð að hámarki 125m². Tengibygging er á milli
Hamragarðs og fyrrum verslunarbyggingar, sem mun hýsa móttöku og sali. Tillagan gerir ráð fyrir
nýjum aðkomuvegi í framhaldi af Víðihrauni, norðaustur af leikskóla, sem tengir norðurbyggð við
háskólasvæðið. Vesturhluti vegar er að hluta til á lóð leikskólans.
Sólbakki í Borgarnesi – tillaga að breytingu á deiliskipulagi.
Um er að ræða breytingu á deiliskipulagi athafnasvæðis við Sólbakka sem tók gildi 5. mars
2001. Eftirspurn er eftir minni athafnalóðum í Borgarnesi. Í tillögu er gert ráð fyrir að skipta
tveimur óbyggðum lóðum, nr. 24 og 26, upp í fjórar lóðir; 24a, 24b, 26a og 26b. Nýtingarhlutfall
lóða verður að hámarki 0,2. Lóðir nr. 30 til 31 stækka lítilsháttar.
Ofangreindar skipulagstillögur liggja frammi í Ráðhúsi Borgarbyggðar, Borgarbraut 14 í Borgar-
nesi frá 16. maí 2019 til 27. júní 2019 og eru einnig aðgengilegar á heimasíðu Borgarbyggðar
www.borgarbyggd.is.
Hverjum þeim aðila sem hagsmuna á að gæta er gefinn kostur á að gera athugasemd við
skipulagstillögur. Athugasemdir og ábendingar skulu vera skriflegar og berast eigi síðar en
fimmtudaginn 27. júní 2019 í Ráðhús Borgarbyggðar, Borgarbraut 14, 310 Borgarnesi eða á net-
fangið borgarbyggd@borgarbyggd.is.
Þriðjudaginn 28. maí 2019 milli kl. 17:00 og 18:00 verða starfsmenn umhverfis- og skipulags-
sviðs Borgarbyggðar með opið hús í Ráðhúsi Borgarbyggðar, Borgarbraut 14 í Borgarnesi
þar sem tillögur verða kynntar þeim sem þess óska.
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
9
Skipulagsauglýsing hjá Borgarbyggð
Sveitarstjórn Borgarbyggðar hefur á 183. fundi sínum þann 9. maí 2019, samþykkt að auglýsa
eftirfarandi skipulagslýsingar. Borgarbyggð auglýsir hér með skv. 30. gr. og 40.gr. skipulags-
laga nr. 123/2010:
Dílatangi í Borgarnesi – lýsing á skipulagsverkefni.
Fyrirhugað er að vinna nýtt deiliskipulag fyrir fyrir Kveldúlfsgötu, Þórðargötu, Dílahæð, Ánahlíð
og nokkrar lóðir við Borgarbraut. Í gildi er deiliskipulag frá 2006, fyrir lóðirnar Borgarbraut 65 og
65A. Þar er hjúkrunarheimili, heilsugæsla og íbúðarhús fyrir aldraða. Markmið tillögu er m.a. að
staðfesta núverandi skipulag lóða og byggðarinnar sem risið hefur. Skoða á hvort mögulegt er
að bæta við byggingarlóðum og jafnframt þarf að lagfæra lóðamörk í kringum hjúkrunarheimili
og heilsugæslu. Gert er ráð fyrir nýjum stígum, meðal annars meðfram strönd, og tengingum við
núverandi stígakerfi.
Borgarvogur í Borgarnesi – lýsing á skipulagsverkefni.
Fyrirhugað er að vinna nýtt deiliskipulag fyrir íþróttasvæðið í Borgarnesi ásamt Þorsteinsgötu,
Kjartansgötu, Skallagrímsgötu og hluta Borgarbrautar. Ekkert deiliskipulag hefur verið í gildi á
stærstum hluta svæðisins þó svæðið sé í raun fullbyggt. Í deiliskipulaginu verður gert ráð fyrir
viðbyggingu við íþróttahúsið á fyllingu norðan/vestan megin við núverandi hús. Skoða á hvort
mögulegt sé að staðsetja nýjan leikskóla innan skipulagssvæðisins. Einnig er gert ráð fyrir nýjum
stígum og tengingum við núverandi stígakerfi. Hluti af stígakerfinu er möguleg fylling undir stíg í
vík sunnan Kjartansgötu sem tengist við íþróttasvæðið.
Kárastaðir í Borgarbyggð – lýsing á breytingu á Aðalskipulagi Borgarbyggðar 2010-2022
Fyrirhugað er að breyta Aðalskipulagi Borgarbyggðar 2010-2022, þ.e. breyta landnotkun
svæðis úr landbúnaðarlandi í athafnasvæði. Breytingin mun taka til 2,4 ha svæðis, þannig að
athafnasvæði (A2) stækkar sem því nemur. Ástæða breytingar er að fyrirhugað er að stækka
lóð fyrirtækjanna Loftorku og Borgarverks. Með fyrirhugaðri breytingu munu þéttbýlismörk
Borgarness stækka um 2,4 h. Svæðið afmarkast af athafnsvæði (A2) (Sólbakki) að austanverðu,
iðnaðarsvæði (I1) að sunnanverðu og landbúnaðarlandi að norðan- og vestanverðu. Aðkoma að
svæðinu er frá Vesturlandsvegi. Á Kárastaðalandi er stundaður frístundabúskapur. Þar er íbúðar-
hús og hlaða. Nokkrar fornminjar eru á svæðinu.
Skriflegum ábendingum vegna framangreindra skipulaslýsinga skal komið á framfæri bréflega
eða með tölvupósti við umhverfis- og skipulagssvið Borgarbyggðar, í Ráðhúsi Borgarbyggðar,
Borgarbraut 14, Borgarnesi eða á netfangið borgarbyggd@borgarbyggd.is eigi síðar en fimmtu-
daginn 13. júní 2019.
Skipulagslýsing liggur frammi í Ráðhúsi Borgarbyggðar, Borgarbraut 14 í Borgarnesi frá 16.
maí til 13. júní 2019 og verður einnig aðgengileg á heimasíðu Borgarbyggðar www.borgar-
byggd.is.
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
9
dugnaðarforkar og eljusöm. Maður
lítur upp til svona fólks og vill læra
af þeim í tónlistinni sem og í lífinu
sjálfu.“
Fjölbreytt verkefni
Það sem kemur Önnu mest á óvart
þegar hún lítur til baka yfir stuttan
píanóferil sinn, sem er nú bara rétt
að hefjast, er hvað hún hefur tek-
ið þátt í mörgum skemmtilegum
og fjölbreyttum verkefnum, bæði
á vegum skólans og utan hans. „Ég
hef spilað inn á plötu, frumflutt
bæði nýleg verk eftir samnemendur
mína sem og eldri verk eftir önn-
ur tónskáld, spilað erlendis og tek-
ist á við mun fjölbreyttari tónlist en
áður.“ Hún bætir við: „Draumur-
inn í sjálfu sér breytist aldrei, held-
ur frekar leiðin að honum sem tek-
ur sífelldum stakkaskiptum. Þegar
maður kemur í nýtt umhverfi eins
og Listaháskólann og kynnist öllu
fólkinu þar þá allt í einu sér mað-
ur margar nýjar dyr opnast og tæki-
færi á hverju strái. Plön eru fljót að
breytast í þessu umhverfi. Helsta
þróunin er kannski sú að maður
verður sveigjanlegri og meira opinn
með tímanum og aukinni reynslu.“
Ætlar út í framhalds-
nám
Það sem tekur við hjá Önnu að út-
skrift lokinni er áframhaldandi nám
og ætlar Anna að halda hiklaust
áfram á sömu braut og hamra járnið
á meðan það er heitt. „Næsta skref
er að fara út í framhaldsnám. Ég
er enn í umsóknarferli með nokk-
ur prógrömm og á eftir að heyra
niðurstöðurnar, en ég er að líta til
nokkurra skóla í Evrópu,“ segir
Anna spennt. „Maður þarf að láta
hendur standa fram úr ermum. Ég
mun svo ferðast fyrir sum inntöku-
próf til Evrópu sem og fara til Kan-
ada að hitta vinkonu mína í sum-
ar.“ Nú býr Anna í Reykjavík og
hefur gert síðan hún hóf nám við
Listaháskólann. Á sumrin kemur
hún í Borgarnes og hefur verið að
vinna hjá Safnahúsi Borgarfjarðar
og núna í vetur kenndi hún á píanó
í Varmalandsskóla og í Borgarnesi
hjá Tónlistarskóla Borgarfjarðar.
glh/ Ljósm. aðsendar
Svipmynd frá útskriftartónleikum Önnu Þórhildar.
ofan af fyrir ferðalöngum og tala
um eitthvað sniðugt þegar norður-
ljósin létu ekki sjá sig. Þá greip hún
oftar en ekki í efnið sem hún hefur
nýtt sér í uppistandið sitt við góðar
undirtektir norðurljósagesta.
Hvað er fyndið í dag?
Hægt er að finna efni til að grínast
með allstaðar og segist Lolly stöð-
ugt vera að punkta niður hjá sér
efni sem hún gæti mögulega not-
að og gert grín að. „Það fer mik-
ið eftir áhorfendum og tilfinning-
unni í salnum hvað ég grínast með
hverju sinni. Ég kann djókana mína
það vel að það er ekkert mál fyr-
ir mig að endurraða þeim. Ég tala
til dæmis mikið um ákveðnar týp-
ur á bar og reyni að vera eins ósexý
og ég get þegar ég tala um að vera
sexý. Flestir geta tengt við það
sem ég er að grínast með,“ útskýr-
ir hún.
Þegar Lolly var unglingur þá
fannst henni mikilvægara að líta
vel út heldur en að hafa sterkan
persónuleika. „Ég þroskaðist, fékk
meira sjálfstraust. Það var leiklist-
in sem hjálpaði mér að rífa upp
sjálfstraustið. Maður þarf virkilega
að kíkja innávið og kynnast sjálf-
um sér. Það er hægara sagt en gert.
Með því að vera fullkomlega sátt-
ur í eigin skinni getur maður haft
húmor fyrir sjálfum sér. Fólk sér
nefnilega í gegnum tilgerð strax og
tilgerð í uppistandi er aldrei að fara
að virka til lengri tíma,“ segir hún
að endingu.
Hægt er að fylgjast með hvað
Lolly Magg er að bralla og hvar
hún er að koma fram á næstunni á
Facbook undir Lolly Magg.
glh
Lolly Magg grínast mikið um hvað það er að vera sexý.