Skessuhorn - 15.05.2019, Blaðsíða 9
MIÐVIKUDAGUR 15. MAÍ 2019 9
Flamenco á Íslandi!
Flamenco Dúett
Landnámssetrið 21. maí kl 20:30
Mengi 22. maí kl 21:00
Hvanneyri Pub 23. maí kl 20:30
Forsala á Tix.is
Flamenco danssýning
Salurinn, Kópavogi 25. og 26. maí kl 21:00
Auðarskóli
Ábyrgð – Ánægja – Árangur
S
K
E
S
S
U
H
O
R
N
2
01
9
Auðarskóli óskar eftir að ráða
í eftirfarandi stöður skólaárið
2019-2020
Kennarar í Auðarskóla
Við Auðarskóla er laus 100% staða umsjónarkennara á unglingastigi og
100% staða umsjónarkennara á yngsta stigi fyrir skólaárið 2019-2020.
Umsjónarkennsla á unglingastigi, meðal kennslugreina eru:
Íslenska
Samfélagsfræði
Erlend tunugmál
Val
Umsjónarkennsla á yngsta stigi, meðal kennslugreina eru:
Stærðfræði
Íslenska
Náttúrufræði
Samfélagsfræði
Enska
Mikilvægt er að umsækjendur búi að:
Færni í samskiptum
Frumkvæði í starfi
Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
Góð íslenskukunnátta
Einnig þurfa umsækjendur að vera tilbúnir að vinna eftir stefnu
Auðarskóla í teymiskennslu.
Umsóknarfrestur er til 17.maí 2019
Umsækjendur þurfa að hafa leyfisbréf til þess að kenna í grunnskóla.
Umsóknir um starfið berist á netfangið keli@audarskoli.is. Í umsókninni
þurfa að vera ferilskrá og ábendingar um meðmælendur. Upplýsingar um
starfið veitir Þorkell aðstoðarskólastjóri í síma 4304757.
Kirkjukór Ólafsvíkur hélt árlega
vortónleika sína 9. maí í Ólafsvík-
urkirkju. Vel var mætt á tónleikana
enda á kórinn sína föstu tónleika-
gesti sem hann er þakklátur fyrir.
Á efnisskránni að þessu sinni voru
„Dýrleg lög“ en þema tónleikanna
var dýr. Ógrynni er til af text-
um um dýr af ýmsum tegundum
sem hafa verið samdir í gegnum
tíðina. Var efnisskráin skemmti-
lega samsett af dægur- og þjóð-
lögum sem flestir þekkja. Sigurð-
ur Höskuldsson flutti eigið lag við
texta Jóhanns Jónssonar sem heitir
Vögguvísur um krumma. Systurn-
ar Gerður og Aðalheiður Nanna
Þórðardætur sungu Kattardúett-
inn fræga eftir G. Rossini. Vero-
nica Osterhammer, stjórnandi
kórsins söng einsöng við undirleik
Elenu Maakev, organista kórsins
lögin Einsetumaður einu sinni, ís-
lenskt þjóðlag í útsetningu Ferdin-
and Rauter og Könguló eftir Aðal-
stein Ásberg Sigurðsson. Tónleik-
arnir voru styrktir af Sóknaráætl-
un Vesturlands, en kórinn fékk á
dögunum styrk þaðan til tónleika-
halds. Að loknum vel heppnuðum
tónleikum var gestum boðið upp
á kaffi og súkkulaði, áður en þeir
héldu út í vorkvöldið. þa
Dýraþema á
árlegum vortónleikum
Átaksverkefni Íþrótta- og Ól-
ympíusambands Íslands, Hjól-
að í vinnuna er nú hafið. Stend-
ur það yfir dagana 8. – 28. maí.
Verkefnið á að höfða til starfs-
fólks á vinnustöðum landsins
og hefur þátttakan stórauk-
ist á þeim 16 árum sem lið-
in eru frá því að verkefnið fór
af stað. „Undanfarinn áratug
hefur orðið gríðarleg vakn-
ing á hjólreiðum sem heilsu-
samlegum samgönguvalkosti.
Ætla má að margir þátttakendur
hafi tekið hjólreiðar upp sem lífstíl
í framhaldi af þátttöku sinni í verk-
efninu. ÍSÍ er stolt af því að hafa
stuðlað að bættri hjólamenningu á
Íslandi og orðið til þess að vinnu-
staðir og sveitafélög hafi bætt til
muna aðstöðu fyrir hjólandi fólk,“
segir í tilkynningu frá ÍSÍ.
Meginmarkmið Hjólað í vinn-
una er að vekja athygli á virk-
um ferðamáta sem heilsusam-
legum, umhverfisvænum og
hagkvæmum samgöngumáta.
Þátttakendur eru hvattir til
þess að hjóla, ganga, hlaupa
eða nýta annan virkan ferða-
máta til og frá vinnu. Keppt er
um fjölda þátttökudaga en lið
geta jafnframt skráð sig í kíló-
metrakeppnina þar sem keppt
er um heildarfjölda kílómetra.
Landsmenn hafa tekið átakinu
gríðarlega vel frá upphafi og verk-
efnið skapað alla jafna góða stemn-
ingu á vinnustöðum landsins. Allar
upplýsingar má sjá á: www.hjoladi-
vinnuna.is mm
Verkefnið Hjólað í vinnuna er hafið
Gyða Sól lagði línurnar þegar Hjólað í vinnuna fór
formlega af stað.