Skessuhorn


Skessuhorn - 15.05.2019, Blaðsíða 13

Skessuhorn - 15.05.2019, Blaðsíða 13
MIÐVIKUDAGUR 15. MAÍ 2019 13 • Bílasprautun • Bílaréttingar • Framrúðuskipti BÍLASPRAUTUN VESTURLANDS S: 860-0708 • Smiðjuvellir 7, Akranesi • bv.sprautun@gmail.com Vinnum fyrir öll tryggingafélög Heimildarmynd um vellíðan eldri borgara Föstudaginn 24. maí kl. 13:30 verður í Tónbergi sýnd myndin „Leitin að hamingjunni“. Í heimildarmyndinni var rætt við 13 einstaklinga á aldrinum 70-91 árs um það hvernig þeir hafa skapað sér hamingjuríka tilveru. Ingrid Kuhlman, ráðgjafi hjá Þekkingarmiðlun, mun fræða okkur um hamingjuna áður en myndin hefst og eftir myndina verða umræður. Ókeypis inn og allir velkomnir. Leitin að hamingjunni SK ES SU H O R N 2 01 9 Innritun á haustönn 2019 – Umsóknarfrestur er til 7. júní 2019 Nánari upplýsingar veita: Nánari upplýsingar má nálgast á heimasíðu skólans www.menntaborg.is, á menntaborg@menntaborg.is og í síma 433-7700 Stúdentsprófsbrautir: Félagsfræðabraut Náttúrufræðibraut Náttúrufræðibraut – búfræðisvið, í samstarfi við Lbhí Íþróttabraut (félagsfræða- eða náttúrufræðisvið) Opin Braut Annað nám: Framhaldsskólabraut Starfsbraut Viðbótarnám til stúdentsprófs Nemendagarðar Skólinn rekur nemendagarða þar sem pláss er fyrir 8 nemendur Fjarnám Mögulegt er að stunda fjarnám við Menntaskóla Borgarfjarðar Leiðsagnarmat – engin hefðbundin lokapróf Verkefnamiðað nám Félagið Íslenskir eldsmiðir held- ur hina árlegu eldsmíðasamkomu á Byggðasafninu í Görðum á Akra- nesi um næstu mánaðamót. Boðið verður upp á örnámskeið í eldsmíði fimmtudaginn 30. maí og laugar- daginn 1. júní. Íslandsmótið í eld- smíði verður síðan haldið sunnu- daginn 2. júní og hefst klukkan 10. Að sögn Ingvars Matthíassonar, meðlims Íslenskra eldsmiða, er von á að hátt í 30 manns taki þátt í Íslandsmóti eldsmiða. Félagið fær einnig til landsins svissneska eld- smiðinn Simon Beyeler og mun hann halda námskeið fyrir eld- smiði. Ingvar hvetur áhugasama til að mæta á eldsmíðamótið. Þá hafa Íslenskir eldsmiðir, í samstarfi við æskulýðsmiðstöðina Þorpið, geng- ist fyrir námskeiðum fyrir börn og unglinga í eldsmíði. „Við viljum mjög gjarnan auka þekkingu á þess- ari fornu og skemmtilegu iðngrein og bæði námskeiðin fyrir börn og mótið nú um mánaðamótin er liður í því,“ segir Ingvar. Nánari upplýsingar má finna á Facebook síðu Íslenskra eldsmiða. mm/ Ljósm. úr safni. Eldsmíðasamkoma á Akranesi um mánaðamótin Nemendur í Fjölbrautaskóla Snæ- fellinga settu upp glæsilega sýningu á síðasta skóladegi þessarar ann- ar. Ýmist voru nemendur að kynna lokaverkefni sín eða sýna afrakstur vetrarins. Margir gestir lögðu leið sína í skólann enda margt forvitni- legt að sjá. tfk Lionsklúbbur Grundarfjarðar af- henti á dögunum Dvalarheimilinu Fellaskjóli peningagjöf að upphæð 1.200.000 krónur. Þetta var ágóð- inn af kútmagakvöldinu sem haldið var 23. febrúar síðastliðinn. Mikl- ar framkvæmdir hafa staðið yfir á Fellaskjóli undanfarið en sex ný dvalarrými verða tekin í notkun á næstu vikum. Peningagjöfin mun duga til að fullbúa tvö til þrjú her- bergi í nýrri viðbyggingu heimilis- ins. “Stjórn Lionsklúbbs Grund- arfjarðar þakkar öllum þeim sem lögðu leið sína á kútmagakvöldið og gerðu þar með kleift að styrkja þetta verðuga verkefni.” tfk Árni Ásgeirsson er hér lengst til hægri að sýna gestum smásjánna en hún vakti mikla lukku á sýningunni. Glæsileg verkefnasýning í FSN Hildur Sæmundsdóttir tekur við gjöfinni fyrir hönd Fellaskjóls. F.v. Vineta Karimova hjúkrunarfræðingur, Hildur, Patricia M Laugesen forstöðumaður Fella- skjóls, María Ósk Ólafsdóttir formaður Lionsklúbsins, Sigurlaug R Sævarsdóttir, Unnur Birna Þórhallsdóttir og Valgerður Gísladóttir. Íbúar fyrir aftan fylgjast með. Lionsklúbbur Grundarfjarðar styrkir Fellaskjól

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.