Skessuhorn - 15.05.2019, Page 20
MIÐVIKUDAGUR 15. MAÍ 201920
Anna Þórhildur Gunnarsdóttir er
upprennandi píanisti frá Brekku
í Norðurárdal. Hún hélt fyrir
skömmu útskriftartónleika og jafn-
framt sína fyrstu einleikstónleika
fyrir gesti sem er liður í aðdraganda
útskriftar frá Listaháskóla Íslands
þar sem hún hefur stundað nám
síðustu þrjú ár. Tónleikarnir voru
þýðingamiklir fyrir Önnu Þórhildi.
„Þetta eru fyrstu einleikstónleikar
mínir og undirbúningurinn fyr-
ir þá var ómetanlegur lærdómur.
Efnisskráin fyrir þá krafðist mik-
illar undirbúningsvinnu en þetta
voru meðal stærstu tónverka sem
ég hef tekið fyrir. Þó svo að þetta
sé stórt og mikilvægt verkefni þá er
mikilvægt að muna að þetta er ekki
„duga eða drepast“ augnablik,“ seg-
ir Anna um undirbúninginn. Margt
gekk vel í aðdraganda tónleikanna
en Anna segir að sumt hafi geng-
ið betur á æfingum, og að svoleið-
is væri það bara. „Maður lærir svo
mikið af þessum fyrstu tónleikum.
Þetta er ótrúlegur spenningur. Svo
hlakkar manni alltaf til framhalds-
ins til að gera enn betur og læra af
því sem betur hefði mátt fara.“
Lærði fyrst Óðinn til
gleðinnar
Anna byrjaði sjö ára gömul að læra
á píanó hjá Dóru Ernu Ásbjörns-
dóttur við Tónlistarskóla Borgar-
fjarðar. „Bróðir minn lærði á píanó
þegar ég var yngri og ég vildi allt-
af æfa mig með honum. Hann
kenndi mér fyrst Óðinn til gleðinn-
ar og mér fannst það svo ótrúlega
skemmtilegt að ég þurfti að halda
áfram,“ útskýrir hún og hlær. Að
spila á hljóðfæri hefur kennt Önnu
meira en henni hefði nokkurn tím-
ann grunað, bæði sem tónlistar-
konu og manneskju ásamt því að
tónlistin hefur fært henni allskyns
tækifæri. „Ég hef dregið ótrúlegan
lærdóm af fólkinu í kringum mig,
ég hef kynnst kraftmiklu tónlistar-
fólki og þau eiga það öll sameigin-
legt að vera yndislegar manneskjur,
Lærir margt
í gegnum
tónlistina
Anna Þórhildur
Gunnarsdóttir.
Skagamærin Lára Magnúsdótt-
ir, eða Lolly Magg eins og hún er
stundum kölluð, fer ótroðnar slóðir
og reynir fyrir sér sem uppistand-
ari. Lolly fer einu sinni til tvisv-
ar í viku til Reykjavíkur og er með
uppistand á ensku fyrir ferðamenn
og Íslendinga. „Ég skráði mig í
uppistand fyrir algjöra slysni. Vinur
minn sem var með mér í leiklistinni
var búinn að skrá sig í uppistand og
spurði hvort ég vildi ekki skrá mig
líka. Við áttum þetta samtal á einu
bjórkvöldinu í Kvikmyndaskólan-
um þar sem við stunduðum nám
við leiklist. Ég var þá búin með
nokkra bjóra og svaraði auðvitað
játandi eins og maður gerir stund-
um við slíkar aðstæður og skráði
mig,“ segir Lolly og hlær. „Dag-
inn eftir áttaði ég mig svo betur á í
hvað ég hefði komið mér og fór um
leið að skrifa niður efni til að grín-
ast með. Ég nýtti mér skrítna og
skemmtilega karaktera úr fjölskyld-
unni minni ásamt góðum sögum til
að nota í uppistandinu, æfði þetta
sjúklega vel, lagði allt á minnið og
stillti öllu saman upp eins og um
einræðu í leikriti væri að ræða. Ég
fór því vel undirbúin á mitt fyrsta
uppistand, fékk meira að segja hlát-
ur! Það gekk rosalega vel. Það var
þá sem ég uppgötvaði að þetta væri
eitthvað sem ég gæti gert, en það
hafði aldrei hvarflað að mér fyrr en
þarna.“
Bakgrunnur í leiklist
Lolly býr á Skaganum ásamt kær-
asta sínum og eins og hálfs árs syni
þeirra. Hún ólst upp í Bolungarvík
en flutti þaðan á Akranes um 12 ára
aldurinn. Þar kláraði hún grunn-
skólann ásamt einu ári við Fjöl-
brautaskóla Vesturlands en flutti
þvínæst til Reykjavíkur þar sem
hún kláraði stúdentinn af leikara-
braut Fjölbrautaskólans í Garða-
bæ. Því næst flutti Lolly til Dan-
merkur þar sem hún nam leiklist í
eitt ár í Kaupmannahöfn. Eftir árið
þar kom Lolly aftur heim til Ís-
lands og kláraði leiklistarnámið við
Kvikmyndaskólann í Reykjavík og
flutti svo aftur á Akranes í kjölfar-
ið. „Leiklistin er góður bakgrunnur
fyrir uppistandara. Það hefur reynst
mér vel þegar ég stend fyrir framan
fullan sal af fólki og fer með grín í
aðstæðum sem vilja oft vera stress-
andi. Ég hugsa samt sem áður að ég
myndi verða ansi stressuð ef ég væri
að fara með fyrirlestur um alvarleg
málefni. Mér líður mun betur að
grínast,“ segir Lolly brosandi.
Lét vaða
„Markmiðið hverju sinni sem uppi-
standari er að fá hlátur úr salnum
og þegar maður fær hláturinn þá
langar manni að halda áfram.“ Eftir
fyrsta giggið sitt dýfði Lolly rétt svo
tánum í þennan heim en tók aldrei
stökkið út í djúpu laugina. Á þess-
um tíma voru önnur verkefni fyrir-
ferðarmeiri og sat því uppistandið á
hakanum í einhvern tíma. Það var
ekki fyrr en snemma á þessu ári að
Lolly ákvað að prófa þetta af meiri
alvöru. „Ég setti mér markmið að
láta vaða. Ég færði allt efnið mitt
yfir á ensku, kem fram á ensku og
hef verið að þróa efnið mitt áfram
svoleiðis.“
Eins og fyrr kom fram þá gríp-
ur Lolly hvert tækifæri sem býðst
til að vera með uppistand og reynir
að fara tvisvar í viku til Reykjavík-
ur, annars vegar á Gaukinn á mánu-
dagskvöldum og Secret Cellar við
Lækjargötu á miðvikudagskvöld-
um. Lolly heldur einnig reglulega
uppistand á Skaganum fyrir heima-
menn. Hún, ásamt Ársæli Rafni Er-
lingssyni og Lovísu Láru Halldórs-
dóttur, sameinuðu krafta sínu og
stofnuðu fjöllistahóp undir nafninu
Pöbba-Rödd til að búa til vettvang
fyrir grínista og listafólk að koma
fram fyrir framan áhorfendur.
„Ég var pínu smeyk við Akranes
í fyrstu. Þetta er lítið samfélag og
maður er alltaf pínu hræddur um
að fólk dæmi mann. Hingað til hef-
ur gengið virkilega vel að skemmta
Skagamönnum,“ segir Lolly sem að
hélt uppistand hjá Skagaleikflokkn-
um fyrir ekki svo löngu þar sem
fullt var út úr dyrum.
Mikilvægt að æfa sig
Allt efni sem Lolly hefur tekið sam-
an fyrir uppistandið sitt æfir hún
vel. „Það er gott að æfa sig aftur og
aftur, þannig verður maður örugg-
ari og öruggari með allt og betur í
stakk búinn þegar eitthvað kemur
uppá í uppistandinu sjálfu. Það geta
verið einhver læti í salnum, ein-
hverjir að koma eða fara. Það getur
jafnvel einhver dottið, þá verð ég að
geta sýnt viðbrögð og farið örstutt
frá efninu, gert athugasemd við það
sem gerðist ef það á við, og kom-
ið svo til baka þar sem frá var horf-
ið. Þetta get ég bara gert því ég hef
þaulæft efnið mitt og þarf síður að
ríghalda í það og get komið fram
mun afslappaðri þannig að mér og
áhorfendum líði vel.“
Lolly nýtir að auki hvert tækifæri
til æfinga. Hún starfaði til að mynda
sem leiðsögumaður í norðurljósa-
ferðum í vetur og þurfti oft að hafa
„Uppgötvaði að þetta væri eitthvað sem ég gæti gert.“
Lára Magnúsdóttir er upprennandi uppistandari og gerir grín af því hvernig er að vera sexý
Lára Magnúsdóttir uppistandari, er betur þekkt sem Lolly Magg.