Skessuhorn


Skessuhorn - 15.05.2019, Side 23

Skessuhorn - 15.05.2019, Side 23
MIÐVIKUDAGUR 15. MAÍ 2019 23 Sýning Fornbílafjelags Borgarfjarðar og Bifhjólafjélagsins Raftanna var haldin í Brákarey á laugardaginn. Félögin tvö hafa staðið að þessari sýningu í sameiningu undanfarin ár en Raftar héldu sína fyrstu sýningu 2001. Gríðarlegur fjöldi fólk á öllum aldri lagði leið sína í eyjuna og fjölmargir sem komu akandi á eðaltækjum, mótorhjólum eða eldri bílum. Komu gestir m.a. af höfuðborgarsvæðinu, Vesturlandi og norðan úr landi. Sýningin hefur þá sérstöðu að frítt er á hana og af þeim sökum er algengt að heilu fjölskyldurn- ar komi þarna saman. Í gömlu fjárréttinni voru fjölmargir aðilar með kynningu á ýmsum tækjum og búnaði, til sölu eða sýnis. Í sól og góðu veðri nutu sín gljáfægðir vélfákar af ýmsu tagi. Að sögn Gunnars Gauta Gunnarssonar sem sæti á í stjórn Fornbílafjelagsins voru á fjórða hundrað mótor- hjól í eyjunni þegar mest var, en mun fleiri komu yfir dag- inn, því þegar einhverjir óku burt bættust aðrir við. Stöð- ugur straumur mótorhjóla var þannig á Vesturlandsvegi um tíma. Ef marka má þétt setin bílastæði í eyjunni sem og í landi má áætla að þessi árlega sýning hafi verið betur sótt en oft áður. mm Fjölmenni mætti í Brákarey á árlega stórsýningu Horft yfir portið um miðjan daginn. Glæsibílar; Willysar, Rússar og Land Roverar. Hver öðrum fallegri. Hér er einn nýjasti uppgerði bíllinn á landinu. Land Rover Gísla Einarssonar frétta- manns. Við hlið hans er Willys Andrésar Kjerúlf sem Pétur Jónsson á Hvanneyri gerði sem nýjan. Það var létt yfir mannskapnum í vöfflukaffinu í sal Fornbílafjelagsins. Þrír eiturhressir Snæfellingar. Jón Þór Lúðvíksson, Kristberg Jónsson og Ólafur Rögnvaldsson. Þessi amerísku eðalvagnar eru í eigu Snorra Jóhannessonar og Sæmundar Sigmundssonar. Röð Chevrolet Camaro bíla og undir húddhlífinni má sjá hvar öll þessi hestöfl verða til. Bílar og önnur tæki sem ekki er búið að gera upp sem ný vekja jafnan mikla athygli. Meðal annars þessi. Rússneska deildin. Svíar áttu sína glæsilegu fulltrúa á svæðinu. Þessi glæsilegi Morris árgerð 1964 er boðinn til sölu og lýst eftir tilboðum. Þetta gerðarlega fjórhjól var til sýnis. Þegar mest var í eyjunni um klukkan tvö voru talin 309 hjól, en samanlagt yfir daginn var komið á mun fleiri hjólum. Bedford og Dodge á útisvæðinu næst Grímshúsinu. Í húsnæði Raftanna var Vintage Enduro. Þar gaf að líta endurohjól eða torfæruhjól að megninu til frá því upp úr 1970 og eitthvað fram á níunda áratuginn. Svo sem gamlar Montesur, Maico, Honda XL og fleiri gerðir.

x

Skessuhorn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.