Skessuhorn - 24.07.2019, Síða 1
arionbanki.is Arion appið
Nú geta allir notað
besta bankaappið*
*MMR 2018
FRÉTTAVEITA VESTURLANDS – www.skessuhorn.is 30. tbl. 22. árg. 24. júlí 2019 - kr. 750 í lausasölu
Ert Þú í áskrift?
Sími 433 5500
www.skessuhorn.is
Vinnufélagarnir og vinkonurnar Erla Ágústsdóttir, Klara Ósk Kristinsdóttir, Ester Alda Hrafnhildar Bragadóttir og Inga Rósa Jónsdóttir starfa hjá Sigur-görðum sf. á
Laufskálum í Borgarfirði. Þær voru í liðinni viku að vinna við hellulagningu gangbrautar á móts við Menntaskóla Borgarfjarðar. Þessar öflugu stúlkur segja að verkefni
þeirra fái mikla athygli, ekki síst útlendinga sem aldrei segjast hafa séð stúlkur vinna við verk sem þessi. Spjallað er við þær í Skessuhorni í dag. Ljósm. glh.
Víða á Snæfellsnesi féllu met í
fjölda ferðamanna síðastliðinn
mánudag. Stór hluti gesta kom úr
þremur skemmtiferðaskipum sem
lágu samtímis í Grundarfirði með
hátt í fjögur þúsund farþega inn-
anborðs, sem margir þeirra fóru
í skoðunarferðir um Snæfellsnes.
En burtséð frá skemmtiferðaskip-
unum voru óvenjulega margir á
ferð um Snæfellsnes um og eftir
helgina. Bæði erlendir og innlend-
ir ferðamenn. Þannig var stappfullt
á öllum tjaldstæðum um helgina og
mikið annríki á öllum þjónustu-
stöðum. Veðurblíða og sumarleyf-
istími í hámarki er helsta skýring-
in, en svo virðist sem landinn hafi
almennt stimplað sig út úr vinnu í
vikunni sem leið og haldið á vit ís-
lenskra ævintýra.
Sem dæmi um gestafjöldann var
met slegið í komu ferðamanna í
Gestastofunni á Malarrifi á Snæ-
fellsnesi á mánudaginn, þegar
1.353 gestir voru taldir. Einnig
var talsverður erill á Djúpalóns-
sandi og þegar mest var þá voru
átta rútur í einu bæði á Malarrifi
og Djúpalónssandi. Þá skapaðist
hálfgert umferðaröngþveiti á bíla-
stæðum við Kirkjufellsfoss, en lög-
regla var þar um tíma til aðstoðar
við umferðarstjórnun. mm
Stappfullt á fjölförnum ferðamannastöðum
Horft yfir tjaldsvæðið í Grundarfirði síðastliðið sunnudagskvöld. Ljósm. tfk.
Hátt í fjögur þúsund ferðamenn komu með þremur skemmtiferðaskipum til Grundarfjarðar á mánudaginn. Ljósm. tfk.
Á tjaldstæðinu í Stykkishólmi var yfirfullt um helgina.
Ljósm. sá.
Erill á bílastæðinu við Djúpalónssand.
Ljósm. Þjóðgarðurinn/ Guðmundur Jensson.