Skessuhorn - 24.07.2019, Síða 8
MIÐVIKUDAGUR 24. júLí 20198
Aflatölur fyrir
Vesturland
13.-19. júlí
Tölur (í kílóum)
frá Fiskistofu
Akranes: 16 bátar.
Heildarlöndun: 45.511 kg.
Mestur afli: Ebbi AK: 27.155
kg í þremur löndunum.
Arnarstapi: 10 bátar.
Heildarlöndun: 26.067 kg.
Mestur afli: Bárður SH:
11.648 kg í þremur róðrum.
Grundarfjörður: 20 bátar.
Heildarlöndun: 398.686 kg.
Mestur afli: Breki VE:
123.729 kg í einni löndun.
Ólafsvík: 34 bátar.
Heildarlöndun: 32.377 kg.
Mestur afli: Björn Kristjóns-
son: 1.661 kg í tveimur róðr-
um.
Rif: 17 bátar.
Heildarlöndun: 22.759 kg.
Mestur afli: Valdimar SH:
2.660 kg í fjórum róðrum.
Stykkishólmur: 20 bátar.
Heildarlöndun: 102.936 kg.
Mestur afli: Blíða SH: 17.187
kg í sex löndunum.
Topp fimm landanir á tíma-
bilinu:
1. Breki VE - GRU: 123.729
kg. 15. júlí.
2. Hringur SH - GRU:
67.181 kg. 16. júlí.
3. Steinunn SF - GRU:
66.367 kg. 17. júlí.
4. Helgi SH - GRU: 44.144
kg. 16. júlí.
5. Friðrik Sigurðsson ÁR -
GRU: 30.465 kg. 16. júlí.
-kgk
Héraðið, ný íslensk kvikmynd eft-
ir leikstjórann Grím Hákonarson,
verður frumsýnd miðvikudaginn
14. ágúst í bíóhúsum um allt land.
Grímur leikstýrði m.a. hinni marg-
verðlaunuðu kvikmynd Hrútum
og heimildamyndunum Hvelli og
Litlu Moskvu. Héraðið gerist í litlu
samfélagi og segir sögu Ingu, mið-
aldra kúabónda, sem gerir uppreisn
gegn kaupfélaginu á staðnum. Hún
reynir að fá aðra bændur í lið með
sér en það gengur erfiðlega þar sem
kaupfélagið hefur sterk ítök í sveit-
inni. Kvikmyndin Héraðið var að-
allega tekin upp á Rjómabúinu
Erpsstöðum í Dölum, á Hvamms-
tanga og Blönduósi.
Arndís Hrönn Egilsdóttir fer með
hlutverk Ingu í myndinni. Hún hef-
ur meðal annars leikið í sjónvarps-
þáttunum Pressu og Föngum og í
kvikmyndinni Þröstum en hún var
tilnefnd til Edduverðlaunanna fyr-
ir hlutverkið í þeirri síðastnefndu.
Með önnur hlutverk í myndinni
fara þau Sveinn Ólafur Gunnars-
son, Sigurður Sigurjónsson, Hinrik
Ólafsson, Hannes Óli Ágústsson og
Edda Björg Eyjólfsdóttir.
Myndin er íslensk-, dönsk-,
þýsk-, og frönsk samframleiðsla en
aðalframleiðandi myndarinnar er
Grímar jónsson hjá Netop Films,
sem framleiddi bæði Hrúta og
Undir trénu. mm
Héraðsdómur Vesturlands verð-
ur lokaður frá 1. júlí til og með 30.
ágúst vegna framkvæmda við hús-
næði dómsins. Verið er að breyta
því og stækka skjalageymslu í hús-
inu. Að sögn Guðfinns Stefánsson-
ar, aðstoðarmanns héraðsdómara
Vesturlands, þá var ákveðið að loka
skrifstofunni á meðan sumarleyfi
stæðu sem hæst og gefa verktök-
um á sama tíma nóg svigrúm til að
ljúka verkinu. Allur daglegur rekst-
ur er þó enn í fullum gangi og öll-
um fyrirspurnum sem berast stofn-
uninni er svarað þrátt fyrir fram-
kvæmdirnar. glh
Olíuverzlun íslands hefur kolefn-
isjafnað allan rekstur félagsins en
um er að ræða akstur, flug og dreif-
ingu eldsneytis til viðskiptavina
félagsins um allt land. Verkefnið er
unnið í samstarfi við Landgræðsl-
una en Olís og Landgræðslan hafa
átt í samstarfi undanfarin 30 ár og
undirrituðu sl. föstudag samstarfs-
samning til næstu fimm ára.
-fréttatilkynning
Liðsmenn í Slökkviliði Borgar-
byggðar voru kallaðir út á sjötta
tímanum síðdegis þriðjudaginn 16.
júlí vegna olíumengunar við elds-
neytisdælur Orkunnar á Brúar-
torgi í Borgarnesi. Einn viðskipta-
vinur hafði gleymt að taka dæl-
una úr stútnum áður en hann ók
af stað eftir að hafa dælt olíu á bíl-
inn. „Olíugildrur eru á bílastæðun-
um við dælurnar og þær tóku við
megninu af olíunni sem fór niður.
Slökkviliðsmenn komu á staðinn og
dreifðu lífrænum hreinsiefnum yfir
það sem var á planinu, en þau brjóta
niður olíuna. Hreinsiefnin voru lát-
in vinna í smá stund og síðan skol-
að niður í olíugildrurnar. Þær verða
síðan tæmdar,“ segir Bjarni Þor-
steinsson slökkviliðsstjóri í samtali
við Skessuhorn.
Að sögn Bjarna var ekki lokað
fyrir umferð framhjá dælunni al-
veg um leið og óhappið varð. Því
barst aðeins af olíu með bílum sem
óku um svæðið þar til slökkvilið
kom á vettvang. „Slíkt getur skap-
að hættu, ekki bara eldhættu held-
ur líka hálku. Olía og bleyta fer alls
ekki saman, heldur verða eins og
ísing á götunni. Því þarf að þrífa
eins vel og hægt er, kústa og skafa,
þannig að engin slikja verði eftir
neins staðar,“ segir hann. „En þrif-
in tókust bara mjög vel til og sex
slökkviliðsmenn höfðu lokið við
að hreinsa svæðið rúmum tveim-
ur klukkustundum eftir að útkallið
barst,“ segir Bjarni að endingu.
kgk
Brúnn hrafn stofnar til sambúðar
Verið er að breyta dómstólnum og stækka skjalageymslu í húsnæði Héraðsdóms
Vesturlands í Borgarnesi.
Héraðsdómur Vesturlands lokaður
Jón Ólafur Halldórsson forstjóri Olís
og Árni Bragason landgræðslustjóri.
Olís kolefnisjafnar
Héraðið frumsýnt í
bíóhúsum 14. ágúst
Slökkviliðsmenn að störfum á við eldsneytisdælurnar. Ljósm. bhs.
Ók af stað með dæluna í stútnum
Hvítir hrafnar eru afar sjaldgæfir á
íslandi enda segir máltækið; „Sjald-
séðir eru hvítir hrafnar“. Síðast er
vitað um hvítan hrafn við Stokks-
eyri á Suðurlandi í byrjun árs 2003.
Brúnir hrafnar eru sömuleiðis afar
fátíðir. Hrafn með þann lit hef-
ur þó verið á flækingi í Borgarfirði
á liðnum árum. Meðal annars hef-
ur hann sést í Andakíl og sömuleið-
is í Flókadal. Nú í vor hefur brúnn
hrafn haldið til í landi Kambshóls í
Svínadal og að líkindum er um sama
fugl að ræða. Að sögn Hallfreðs Vil-
hjálmssonar bónda sást brúni hrafn-
inn fyrst á bænum fyrir um þrem-
ur árum. Frá því í vor hefur hann
(eða hún) verið á ferð með fullorðn-
um svörtum hrafni og tveimur ung-
um. Meðfylgjandi mynd náðist af
hrafnaparinu í vikunni þar sem það
tyllti sér á grindverk við Kambshól.
mm/ Ljósm. Kristný
Vilmundardóttir.