Skessuhorn - 24.07.2019, Qupperneq 10
MIÐVIKUDAGUR 24. júLí 201910
„já, við erum í Brennunni og það
gengur frekar rólega í laxinum, en
þess betur í sjóbirtingnum,“ sagði
Harpa Hlín Þórðardóttir en Brenn-
an hafði þá gefið 130 laxa í sum-
ar og fjöldan allan af sjóbirtingi.
„Brennan er svakalega lituð þessa
dagana í hlýindunum, en laxinn er
að sýna sig en hefur ekki veiðst síð-
ustu daga. En við erum að fá flotta
sjóbirtinga. Við ætlum náttúrlega
að ná í lax áður en við hættum að
veiða hérna,“ bætti Harpa við.
Tíðindamaður hitti tvo veiði-
menn við Gljúfurá síðastliðinn
fimmtudag og þar var verulega ró-
legt, en aðeins höfðu þá veiðst 15
laxar í ánni. gb
Stjórn Veitna ohf. hefur ráðið Gest
Pétursson, forstjóra Elkem ís-
land, sem framkvæmdastjóra fyrir-
tækisins. Veitur eru stærsta veitu-
fyrirtæki landsins og dótturfyrir-
tæki Orkuveitu Reykjavíkur. Sam-
kvæmt tilkynningu frá fyrirtækinu
mun það skýrast von bráðar hvenær
Gestur hefur störf.
„Það er mikil tilhlökkun að til-
heyra brátt öflugu teymi hjá traustu
fyrirtæki með skýra og metnaðar-
fulla framtíðarsýn um þá mikilvægu
lífsgæðaþjónustu sem fyrirtækið
veitir einstaklingum, fjölskyldum,
fyrirtækjum og stofnunum. Orku-
skiptin framundan, orkusparnaður,
orkuframboð hverju sinni, hrein-
leiki vatnsins, gæði fráveitunnar og
alls kyns áskoranir í umhverfismál-
um eru og verða daglegt viðfangs-
efni þess öfluga teymis sem starfs-
fólk Veitna myndar. Á sama tíma
horfi ég með þakklæti til þeirrar
reynslu sem starfið hjá Elkem hef-
ur veitt mér og með söknuði til alls
þess frábæra starfsfólks sem mér
hefur hlotnast sá heiður að vinna
með á þeim vettvangi,“ segir Gest-
ur Pétursson.
mm
Það sem af er veiðitímanum hafa
veiðst nokkrir hnúðlaxar á nokkr-
um stöðum á landinu. Einn slíkur
kom á land úr Hvítá í Borgarfirði
um helgina, nánar tiltekið á Flóða-
tangasvæðinu skammt frá ármótum
Norðurár og Hvítár. úlfar Reynis-
son var við veiðar í Hvítá þegar fisk-
urinn tók. „Við fengum fiskinn á
Flóðatanganunum í Hvítá, neðst við
ármótin,“ sagði úlfar. Auk hnúð-
laxins fengum við hefðbundinn lax
og tvo sjóbirtinga. Hnúðlaxinn tók
rauða Franses,“ bætti úlfar við.
Hnúðlax hefur m.a. veiðst í sumar
í Soginu, Ölfusá og norður í Mikla-
vatni í Fljótum. Virðist sem hnúð-
laxi sé að fjölga og hann orðinn
býsna útbreiddur í ám landsins.
gb
Víkingur AK kom til
Vopnafjarðar síðdeg-
is á fimmtudaginn með
um 790 tonn af makríl.
Þetta var önnur veiði-
ferð skipsins á vertíð-
inni, en áður hefur Ven-
us NS landað í tvígang
á Vopnafirði þannig
að makrílvinnsla skipa
HB Granda er komin
í fullan gang fyrir aust-
an. ,,Vertíðin fer betur
af stað nú en í fyrra,“
segir Hjalti Einarsson, skipstjóri á
Víkingi á fréttavef fyrirtækisins, en
hann segir þó erfitt að ráða í ver-
tíðarbyrjunina. ,,Hitaskilin eru nú
mun vestar en fyrri ár en við höf-
um mest verið að veiðum suður af
Vestmannaeyjum. Sjávarhitinn er
um 11-12 gráður og aflinn hefur
sveiflast mjög mikið. Stundum höf-
um við fengið góð hol en svo lítið
sem ekkert þess á milli. Við hefðum
gjarnan viljað finna mak-
ríl í veiðanlegu magni
austar en menn hafa ekki
gefið sér nægan tíma til
að leita nægilega vel. Svo
liggur munurinn milli ára
e.t.v. í því að sumarið í ár
er mun bjartara og hlýrra
en sumarið í fyrra,“ sagði
Hjalti Einarsson.
Líkt og undanfarin ár
gengur makríllinn upp
með vestur- og austur-
strönd landsins. Vart hef-
ur orðið við makríl inni á höfnum á
Suðurnesjum en ekki hefur heyrst
af því að uppsjávarskip hafi fengið
afla vestan við landið eða á Faxa-
flóa. mm
Stjórn HB Granda hefur samþykkt
að leggja það til, fyrir hluthafafund
í félaginu um miðjan næsta mán-
uð, að breyta nafni og vörumerki
félagsins í Brim og Brim Seafood.
„Nýtt vörumerki og nafn þjóna vel
tilgangi félagsins sem er að mark-
aðssetja og selja afurðir, sem félagið
veiðir og vinnur, á verðmætum al-
þjóðamörkuðum. Nafni félags-
ins var síðast breytt fyrir 15 árum
og vísaði þá til sameiningar tveggja
félaga, Haraldar Böðvarssonar og
Granda, sem áður varð til við sam-
einingu ísbjarnarins og Bæjarút-
gerðar Reykjavíkur. Breytingarn-
ar að þessu sinni undirstrika aukna
áherslu félagsins á markaðs- og
sölumál sem birtist m.a. í kaupum
á sölufélögunum í Asíu,“ segir í til-
kynningu frá HB Granda í kjölfar
stjórnarfundar í dag.
jafnframt samþykkti stjórn
félagsins samninga um kaup á sölu-
félögum í Asíu að fjárhæð 31,1
milljón evra. Tilgangur kaupanna
er að styrkja sölu- og markaðs-
starf félagsins á alþjóðamörkuðum,
einkum í Asíu.
Brim kom fyrst til sögunnar árið
2003 sem sjávarútvegsfélag Eim-
skipafélagsins og átti þá Harald
Böðvarsson, Skagstrending og út-
gerðarfélag Akureyrar. Við samein-
ingu útgerðarfélags Akureyrar, sem
var þá komið í eigu útgerðarfélags-
ins Tjalds, við úT ári síðar varð
Brim nafnið á sameinaðu félagi. Á
síðasta ári var nafni Brims breytt
í útgerðarfélag Reykjavíkur sem
hefur nú afhent HB Granda nafnið
Brim til eignar og afnota. „Brim er
einfalt og þjált nafn sem er ásamt
vörumerkinu Brim Seafood þekkt
á alþjóðamörkuðum fyrir sjávar-
afurðir. Vörumerkið myndar þrjár
öldur. Öldurnar tákna annars veg-
ar brim, sem brýtur nýja leið í við-
skiptum, og hins vegar mynda þær
fisk, sem er tákn fyrir afurðir fyrir-
tækisins. Blái liturinn stendur fyr-
ir lit sjávarins og silfrið táknar þau
verðmæti sem Brim skapar. Emil
H. Valgeirsson Grafískur hönn-
uður/FíT, Hvíta Húsið hannaði
merkið.“
mm
Tilkynnt hefur verið um lok sam-
runa félaganna Loftorku Borgar-
nesi ehf., Hraun - Sands og Steypu-
stöðvarinnar. Eru félögin frá 1.
janúar síðastliðnum rekin undir
merkjum Steypustöðvarinnar. Eng-
ar hugmyndir eru uppi um að dreg-
ið verði úr starfsemi Steypustöðv-
arinnar í Borgarnesi en þar hefur
verkefnisstaða m.a. við húseininga-
framleiðslu verið afar góð undan-
farin ár.
mm
Veiðiþjófur var gripinn í Krossá
á Skarðsströnd þriðjudaginn 16.
júlí síðastliðinn. Trausti Bjarna-
son, bóndi á Á og veiðivörður við
Krossá, varð var við lítinn bláan bíl
sem stöðvaði við ána um hálf tvö
leytið og sá ungan mann með tösku
stíga út. „Ég hélt að þarna væru á
ferðinni leigutakarnir, sem ætluðu
bara að ganga í veiðihúsið frá veg-
inum. En síðan sá ég bílinn aka á
brott á miklum hraða og manninn
fara niður að ánni. Ég fer á stað-
inn að kanna málið og þar er mað-
urinn að veiða í rólegheitum und-
ir brúnni,“ segir Trausti í samtali
við Skessuhorn. „Ég veifa honum
og hann kemur til mín. Þá kemur
á daginn að maðurinn er Þjóðverji.
Ég tala ekki þýsku en tókst að gera
honum skiljanlegt að hann mætti
ekki veiða í ánni án leyfis,“ segir
Trausti og bætir því við að maður-
inn hafi brugðist ókvæða við því og
mótmælt harðlega. „Ég sagði hon-
um að ég myndi þá bara hringja á
lögregluna, en þá tók hann til fót-
anna,“ segir hann. Við svo búið
hafði Trausti samband við lög-
reglu. Á meðan beðið var eftir lög-
reglumanni frá Borgarnesi sást til
mannsins við veiðar í ánni. „Hann
var að veiða í rólegheitum þar til
löggan kom. Fólk sem er í sumar-
bústað hér frammi á dal sá hann fá
fisk,“ segir Trausti.
Verður sektaður
Lögregla kom á staðinn rúmum
tveimur klukkustundum síðar og
hafði hendur í hári veiðiþjófsins.
Að sögn jóns S. Ólasonar yfirlög-
regluþjóns bar maðurinn því við að
hann hefði leyfi til að veiða í ám og
vötnum á íslandi á grundvelli veiði-
korts sem hann hafði keypt í Þýska-
landi árið 2015.
Lagt var hald á veiðistöng manns-
ins, urriða sem hann hafði veitt úr
Krossá og tekin af honum skýrsla.
Maðurinn á yfir höfði sér peninga-
sekt, að sögn lögreglu.
kgk
Gestur Pétursson hverfur nú úr starfi forstjóra Elkem Ísland. Ljósm. úr safni.
Gestur úr Elkem til Veitna
Nafni HB Granda verður breytt í Brim
Samruni Loftorku Borgarnesi
og Steypustöðvarinnar
Búið er að koma stórum skiltum fyrir á sökkulveggjum við Loftorku þar sem
nafnið Steypustöðin blasir við vegfarendum um Vesturlandsveg. Ljósm. íg.
Makrílveiðar fóru vel af stað
Krossá á Skarðsströnd.
Ljósm. anglers.is.
Veiðiþjófur gripinn í Krossá
Taldi fjögurra ára gamalt þýskt veiðikort
gilda á Íslandi
Úflar Reynisson með hnúðlaxinn úr Hvítá.
Hnúðlax veiddist í Hvítá
Stefán Sigurðsson og Ingibjörg Arnardóttir með flottan sjóbirting úr Brennunni.
Ljósm. Harpa Hlín.
Brennan hefur
gefið vel í sumar