Skessuhorn - 24.07.2019, Side 11
MIÐVIKUDAGUR 24. júLí 2019 11
Við Borgarbrautina í Borgarnesi var
ný gangstétt hægt og rólega að taka
á sig mynd í liðinni viku. Vakti at-
hygli vegfarenda að einungis ungar
stelpur voru þar að störfum. Þessar
öflugu stelpur eru starfsmenn Sigur-
garða sf. á Laufskálum í Borgarfirði
sem er rótgróið skrúðgarðyrkjufyr-
irtæki sem býður ýmsa þjónustu við
lóðir, innkeyrslur og athafnasvæði í
samfélaginu. Verk fyrirtækisins má
sjá víða um land enda er starfssvæðið
býsna stórt um Vesturland og Vest-
firði en auk þess austur í Bláskóga-
byggð og á höfuðborgarsvæðinu, svo
dæmi séu tekin. Fagna margir Borg-
nesingar framkvæmdunum við Borg-
arbrautina en gangstéttin sem fyrir
var var orðin ansi lúin og hrópaði á
lagfæringar. Vinnufélagarnir og vin-
konurnar Klara Ósk Kristinsdóttir,
Ester Alda Hrafnhildar Bragadóttir,
Inga Rósa jónsdóttir og Erla Ágústs-
dóttir voru að störfum þegar blaða-
maður Skessuhorns kíkti við í vik-
unni sem leið og gáfu þær sig á stutt
tal við blaðamann.
Ferðamenn undrast
„Það er búið að ganga rosalega vel,“
sagði Klara Ósk um verkið og horf-
ir upp eftir nýju stéttinni. „Þegar við
erum búnar hérna þá höldum við
áfram niður eftir,“ bætir hún við og
horfir niður Borgarbrautina í áttina
að Hyrnutorgi. Stelpurnar, sem allar
eru Borgnesingar, hafa ekki einung-
is vakið athygli fyrir vel unnin störf
heldur fá þær töluverða athygli út á
það að vera konur. Konur í starfi sem
margir vilja halda fram að sé einung-
is fyrir karla. „Við erum svolítið til
sýnis hérna við aðalgötuna í bænum,
í hálfgerðu fiskabúri. Það getur ver-
ið óþægilegt og ekki,“ útskýrir Klara.
„Það eru sérstaklega ferðamönnum
sem finnst þetta óhefðbundið, að sjá
ungar konur leggja hellur. Það var
til dæmis einn maður frá Asíu sem
staldraði við og spurði okkur hvern-
ig við færum að því að vinna svona
starf og sagði okkur að í sínu heima-
landi þá sæjust ekki konur í svona
störfum, slík störf væru eingöngu
fyrir karla. Sumir hafa hreinlega
stoppað til að taka sjálfu með okk-
ur og aðrir hafa virkilega hægt á sér
í bílunum sem ekið er hérna framhjá
til þess að taka myndir af okkur að
störfum. Það getur verið óþægilegt.
Einn var svo djarfur að hann opnaði
rennihurðina á bílnum sínum og tók
eina mynd á ferðinni niður brekk-
una hérna. Við myndum miklu frek-
ar vilja að fólk spyrði okkur áður en
þau tæki myndir af okkur.“
Mæla, saga, leggja
og sanda
Klara Ósk hefur unnið hjá Sigur-
görðum síðastliðin fjögur sumur
og er verkstjóri í sínum hópi. Hún
er þó hógvær að kalla sig yfirmann
og segir að þær vinkonur vinni fyrst
og fremst saman sem heild. Á vet-
urna býr hún á Akureyri þar sem
hún stundar nám í lögfræði við Há-
skólann á Akureyri. Ester Alda hefur
starfað hjá fyrirtækinu í þrjú sumur
en á veturna stundar hún nám í Hol-
landi. Inga Rósa og Erla eru nýjasta
viðbótin í teyminu og eru þær báðar
í Menntaskóla Borgarfjarðar. Allar
eiga stelpurnar það sameiginlegt að
hafa engan sérstakan bakgrunn haft
í hellulögn og segir Klara Ósk að öll
handtök hafi þær lært í starfinu. Ekki
er að sjá annað en fagleg vinnubrögð
þegar nýja stéttin er skoðuð. Þær sjá
um að mæla út stéttina, leggja hell-
urnar, saga þær ef þörf krefur og sópa
svo sandi yfir að endingu til að hell-
urnar festi sig rækilega á sínum stað.
„Okkur er sett verkefni í vinnunni
og við reynum að vinna verkin vel,
eins og til dæmis þessa stétt. Við get-
um vel unnið þetta eins og strákar,
alveg eins og strákar geta allt sem
við getum, þetta á ekki að vera ann-
að hvort eða. Svo er þetta bara svo
rosalega skemmtilegt, dagurinn þýt-
ur hjá í svona útivinnu,“ segir Klara
að endingu. glh
Klara Ósk sagar hér eina helluna svo hún smellpassi á sinn stað í gangstéttinni.
Fegra bæinn um eina hellu í einu
Öflugar í hellulögn í Borgarnesi
Vinnufélagar, vinkonur og Borgnesingar. Erla, Klara Ósk, Ester Alda og Inga Rósa.
Inga Rósa við frágang að sópa sandi í
raufarnar á milli hellnanna. Ester Alda passar hér að hellurnar séu beinar og í réttri línu.