Skessuhorn - 24.07.2019, Side 17
MIÐVIKUDAGUR 24. júLí 2019 17
Félag aldraðra í Borgarfjarðardölum fór í sína hefð-
bundnu sumarferð dagana 15. – 17. júlí sl. í þetta sinn
var farið á Vestfirðina í blíðskaparveðri og góðum fé-
lagsskap. Meðfylgjandi mynd var tekin á Þingeyri þar
sem hópurinn gisti.
ah
Á Lágafelli í Eyja- og Miklaholts-
hreppi búa hjónin Áslaug Sigvalda-
dóttir og Þórður Runólfsson og
reka þau saman Ræktunarstöðina
Lágafell við Vegamót á Snæfells-
nesi. „Við erum fyrst og fremst að
rækta salat fyrir veitingahús og hót-
el á Snæfellsnesi sem við keyrum út
tvisvar í viku,“ segir Áslaug í sam-
tali við Skessuhorn. „Við byrjuðum
að rækta garðplöntur og sumar-
blóm árið 1992, heima á Lágafelli.
Árið 2002 færðum við aðstöðuna
að Vegamótum þar sem við skipt-
um yfir í skógarplöntuframleiðslu
og einbeittum okkur að henni þar
til við hófum salatræktunina. Við
höfum þó alltaf verið með sumar-
blómaræktun með,“ segir hún.
Léttur matseðill
Aðspurð segir Áslaug mikla eftir-
spurn eftir sumarblómunum og að
þau hjónin stefni á að koma aftur
af stað garðplöntusölu. „Við vor-
um að byggja hús sem við ætlum
meðal annars að nota undir garð-
plöntusölu en það verður þó fyrst
og fremst kaffi- og handverkshús,“
segir Áslaug og bætir því við að það
húsið hafi fengið nafnið Hjá góðu
fólki. Þau hjónin hyggja á opnun
þess á næstu vikum. „Ég er sjálf
myndlistarkona og í húsinu verða
myndirnar mínar, sem og hand-
verk eftir fólk hér af svæðinu, ætt-
ingja mína og vini og fólk sem hef-
ur tengingu hingað vestur á Snæ-
fellsnes,“ segir Áslaug.
Húsið er 100 fermetrar að stærð
og verður að stærstum hluta salur
undir handverkið og afgreiðslu fyr-
ir kaffihúsið. „Við erum með lítinn
skála við húsið þar sem fólk getur
fengið sér sæti með kaffibollann og
horft á fjöllin í kring,“ segir hún.
Aðspurð segir hún að á kaffihús-
inu verði hægt að fá kökur, brauð
og aðrar léttar veitingar. „Þetta
verður ekki veitingastaður með
þunga og stóra kjötrétti eða annað
í þeim dúr heldur meira svona létt-
ari réttir og kaffiveitingar. En þetta
er enn að þróast við erum ekki
búin að setja saman matseðil. Hjá
góðu fólki verður í samstarfi við
Ræktunarstöðina. Ætlunin er að
tengja veitingarnar inn í gróður-
húsið með því að bjóða upp á sal-
atið okkar, æt blóm sem við erum
að rækta og krydd sem notuð verða
í te,“ segir Áslaug og bætir því við
að kaffihúsið verður í umsjá dóttur
þeirra hjóna og tengdasonar. „Þau
heita Silja Ósk og Tumi Ferrer,
hann er kaffibarþjónn og veit því
hvað hann er að gera,“ segir Ás-
laug og hlær.
Listasýning
Ræktunarstöðin Lágafelli er í sum-
ar einn af fjölmörgum áfangastöð-
um á Snæfellsnesi sem tekur þátt í
listasýningunni Nr. 3 Umhverfing,
sem er stór hóplistasýning víðsveg-
ar um Snæfellsnes með verkum eftir
71 listamann. Verður sýningin opin
til 31. ágúst. „Það eru sex listamenn
með verk hjá okkur.“ Aðspurð seg-
ir hún ágætt rennirí hafa verið af
fólki frá því sýningin var opnuð 22.
júní síðastliðinn. „Það hefur verið
ágætt að gera og fólk er að koma
hingað og skoða. Það er líka nokk-
uð um að fólk sé að koma hingað
til að kíkja í gróðurhúsið,“ segir Ás-
laug en áhugasamir um ræktunina
eru velkomnir í heimsókn í gróður-
húsið. „Við tökum á móti gestum
í heimsóknir í gróðurhúsið og er
hægt að panta sér smakkferð ef fólk
vill kynnast ræktuninni og jurtun-
um betur. Það eru bæði ferðamenn
og heimamenn að koma til okkar
en heimamenn eru mest að koma
til að kaupa sér sumarblóm,“ segir
Áslaug að endingu. arg
Föstudaginn 12. júlí síðastliðinn
lögðu nokkrir galvaskir skátar úr
Grundarfirði af stað í óvenju langt
ferðalag. Ferðinni var heitið til
London en þar var skátamótið Gill-
well 24 á dagskrá frá klukkan níu á
laugardagsmorgninum til klukkan
níu á sunnudagsmorgninum. Þetta
er sólarhringsmót þar sem stans-
laus keyrsla er allan sólarhringinn.
Það var því lítið sofið á þessu ferða-
lagi en þó sást það á hópnum að
töluverð þreyta var í mannskapn-
um á sunnudeginum þegar lagt var
í hann heim. Allt fór þetta vel fram
og ekki annað að sjá en að allir hafi
skemmt sér konunglega í London.
tfk
Náttúrubarnahátíð á Ströndum var
haldin helgina 19.-21. júlí á Sauð-
fjársetrinu í Sævangi á Ströndum.
Náttúrubarnaskólinn stendur fyr-
ir fjölbreyttum námskeiðum yfir
sumartímann sem miða að því að
fræða börn á öllum aldri um ólík-
ar hliðar náttúrunnar. Hátíðin er í
anda skólans og einkennist af úti-
vist og náttúruskoðun. Dagrún Ósk
jónsdóttir þjóðfræðingur er skipu-
leggjandi Náttúrubarnahátíðarinn-
ar og er hæst ánægð með helgina.
„Þetta gekk bara eins og í sögu.
Veðrið var æðislegt, mætingin var
mjög góð og skemmtiatriðin frá-
bær,“ segir Dagrún, en hún áætlar
að rúmlega 300 manns hafi sótt há-
tíðina í ár. mm
Eldri Borgfirðingar á faraldsfæti
Mikið fjör á Náttúrubarnahátíð um helgina
F.v. Margrét Helga Guðmundsdóttir, Írist Birta Heiðarsdóttir, Gabríel Ómar Her-
mannsson og Kristján Freyr Tómasson á Gillwell 24.
Grundfirskir skátar
lögðu land undir fót
Kaffi- og handverkshúsið Hjá góðu fólki verður opnað í þessu húsi á næstu vikum.
Fyrirhugað að opna kaffi- og handverkshús við Vegamót
Áslaug Sigvaldaóttir og Þórður Runólfsson á Lágafelli.
Í Gróðrarstöðinni Lágafelli er fyrst og
fremst ræktað salat fyrir veitingahús á
Snæfellsnesi. Sumarblóm í gróðrarstöðinni.