Skessuhorn - 24.07.2019, Qupperneq 18
MIÐVIKUDAGUR 24. júLí 201918
Mikil golfmenning ríkir á Ís-
landi og fer golfspilurum fjölg-
andi eins og lesa má í annarri
frétt hér í blaðinu í dag. Fjöld-
inn allur af Íslendingum stund-
ar sportið af mikilli ástríðu all-
an ársins hring, en aðalvertíð-
in er þó á sumrin. Hamarsvöll í
Borgarnesi sækja þúsundir kylf-
inga hvert einasta sumar en að-
sókn á völlinn hefur farið stig-
vaxandi síðustu ár, meðal annars
vegna stækkunar vallarins úr níu
holum í átján og vegna flutnings
klúbbhússins úr gamla Hamars-
húsinu í Hótel Hamar síðast-
liðið sumar. Flutningurinn gjör-
breytir þeim möguleikum að
taka á móti hópum og fyrirtækj-
um sem halda vilja mót á eigin
vegum á vellinum eða sem vilja
halda eigin stórmót en á Ham-
arsvelli voru um 220 manns að
keppa á móti um liðna helgi svo
dæmi sé tekið.
í ár er annað golftímabilið frá því
þessi breyting var gerð, þ.e. eftir að
Icelandair Hótel Hamar og Golf-
klúbbur Borgarness ákváðu að sam-
eina krafta sína og færa klúbbhúsið
úr gömlu Hamarshúsunum í hús-
næði hótelsins. Sjá má stóraukn-
ingu á komu gesta á völlinn og al-
menna ánægju með ákvörðunina að
sögn framkvæmdastjórans.
„Þetta er rosaleg lyftistöng fyrir
golfklúbbinn og hótelið að sameina
þetta svona, áhrifin eru svo mikil,“
sagði jóhannes Ármannsson, fram-
kvæmdastjóri Golfklúbbs Borgar-
ness, þegar blaðamaður Skessu-
horns kíkti við á völlinn og spurði
út í hvaða áhrif sameiningin hefur
haft á rekstur og aðsókn á völlinn.
Rætt var um það ásamt þeim tæki-
færum sem nauðsynlegt er að grípa
á lofti og mikilvægi þess að hafa
skýra framtíðarsýn.
Gríðarleg aðsókn
á völlinn
„í dag eru um það bil 7.700 kylfing-
ar sem hafa leikið hring á vellinum
það sem af er sumri,“ segir jóhann-
es ánægður með tölurnar. „1.480
hringir hafa verið spilaðir af fé-
lögum klúbbsins og hringir spilaðir
í mótum eru um 1.800. Þetta þýðir
að yfir helmingurinn eru almennir
gestir sem koma á völlinn og spila á
honum,“ bætir hann við.
Hamarsvöllur var opnaður fyrir
almenningi í lok apríl í vor og hefur
völlurinn verið vel bókaður flesta
daga en er yfirleitt fullbókaður
um helgar, frá föstudegi til sunnu-
dags. Framkvæmdastjórinn seg-
ir mikla aukningu á aðsókn miðað
við í fyrrasumar, en að veðrið spili
einnig stóra rullu í því dæmi, sem
og sameining klúbbhússins og hót-
elsins. „Ég finn mikinn mun eftir
breytinguna. Það er kannski ekki
alveg að marka síðasta sumar þar
sem veðrið var okkur ekki hliðhollt.
Þrátt fyrir það náðum við að skila
rekstrinum með hagnaði. í fyrra
voru um 2.100 hringir komnir á
þessum tíma svo þetta er rúmlega
þreföld aukning í ár. Núna er þetta
eins og þetta á eðlilega að vera, sem
er bara sprenging.“
Einn sinnar tegundar
á landinu
jóhannes lýsir sameiningunni sem
frábærum samruna hagsmuna þar
sem klúbburinn og hótelið njóta
bæði góðs af. Næturgestir hótelsins
fara flestir snemma á morgnana af
hótelinu að skoða landið og koma
síðan seint inn á daginn, kannski
rétt fyrir kvöldmat, sem þýðir að
stór hluti dagsins á hótelinu er laus
fyrir aðra starfsemi.
„Hér eru starfsmenn, þjónar og
kokkar, svo það var tilvalið að sam-
eina þetta svona, fá alla umferð
kylfinga sem kemur hingað á svæð-
ið til þess að spila golf, í gegnum
hótelið. Um leið hækkar þjónustu-
stigið fyrir þá sem leika völlinn og
þiggja okkar þjónustu góðfúslega.
Það er enginn golfklúbbur á land-
inu með þetta þjónustustig sem við
erum að bjóða upp á, ég get lofað
þér því. Þegar aðstaðan er orðin
eins góð og hún er, að erlendri fyr-
irmynd, þá kemur fólkið,” útskýrir
jóhannes.
í dag sér starfsfólk hótelsins um
alla skráningu inn á völlinn. Með
því móti er aukið svigrúm fyrir
klúbbinn sem þyrfti annars að hafa
manneskju í fullu starfi á skrifstof-
unni að taka við vallargjöldum. í
staðinn getur klúbburinn haft sína
starfsmenn til að hlúa að vellinum
sjálfum við slátt og almenna um-
hirðu.
„Náum að láta
þetta ganga“
Golfklúbbur Borgarness hefur frá
upphafi verið undirmannaður og
það er því með ólíkindum hvern-
ig völlurinn hefur náð að komast á
þann stall sem hann er í dag miðað
við takmarkaðan fjölda starfsfólks
og skort á fjármagni og tækjum sem
klúbburinn hefur búið við í gegn-
um tíðina. í dag eru átta manns
sem starfa hjá golfklúbbnum en
samkvæmt framkvæmdastjóranum
væri eðlilegur fjöldi starfsfólks fyrir
völl eins og Hamarsvöll að minnsta
kosti tólf manns. „Við náum ein-
hvern vegin að láta þetta ganga
upp. Miðað við aðra átján holu velli
á íslandi þá erum við að tala um að
það eru yfirleitt 14-16 starfsmenn á
þessum stærstu og vinsælustu völl-
um landsins. Hamarsvöllur er vel
á pari við þessa velli hvað aðsókn
varðar og gæði,“ segir jóhannes.
„Við höfum síðustu ár náð að
Gríðarleg aðsókn kylfinga á Hamarsvöll í Borgarnesi
Jóhannes Kristján Ármannsson, framkvæmdastjóri Golfklúbb Borgarness, ræðir um golfsumarið
Jóhannes Kristján Ármannsson, framkvæmdastjóri Golfklúbbs Borgarness.
Horft frá gamla bænum niður eina brautina á Hamarsvelli í áttina að Hafnarfjalli.