Skessuhorn - 24.07.2019, Síða 23
MIÐVIKUDAGUR 24. júLí 2019 23
Víkingur Ó. og Grótta skildu jöfn,
2-2, í dramatískum leik í 13. um-
ferð Inkasso deildar karla í knatt-
spyrnu. Leikið var á Seltjarnarnesi
á laugardaginn var.
Fyrri hálfleikur var fjörugur í
meira lagi, opinn og skemmtileg-
ur. Besta færi fyrri hálfleiks fengu
Ólafsvíkingar á 28. mínútu. ívar
Reynir Antonsson átti frábæra
sendingu fyrir markið á Sallieu
Tarawallie sem skallaði boltann í
þverslána. Færin voru mun fleiri en
mörkin létu þó á sér standa og stað-
an var markalaus þegar flautað var
til hálfleiks.
Það átti hins vegar eftir að breyt-
ast og það snarlega, því heimamenn
komust yfir á 47. mínútu þegar
Axel Freyr Harðarson skoraði með
skalla eftir hornspyrnu.
Ólafsvíkingar voru ekki lengi
að jafna metin. Vidmar Miha tók
aukaspyrnu á 51. mínútu. Boltinn
fór af Sallieu og þaðan á fjærstöng
þangað sem Emmanuel Keke var
mættur og lagði boltann í netið.
Á 71. mínútu fengu Ólafsvíking-
ar vítaspyrnu eftir að brotið var á
Vidmar í teignum. Harley Willard
fór á punktinn, skoraði af miklu ör-
yggi og kom Víkingsliðinu yfir.
Eftir því sem leið varð leikurinn
daufari. Ólafsvíkingar féllu til baka
og leikurinn virtist vera að fjara út
þegar Sölvi Björnsson féll í vítateig
Víkings í uppbótartíma og víta-
spyrna var dæmd. Óliver Dagur
Thorlacius tók spyrnuna, skoraði
af öryggi og jafnaði metin á ögur-
stundu. Lokatölur á Seltjarnarnesi
urðu því 2-2.
Víkingur Ó. situr í fjórða sæti
deildarinnar með 21 stig, jafn mörg
og Leiknir í sætinu fyrir neðan en
fjórum stigum á eftir Grótt usem
vermir þriðja sætið. Næst leika
Ólafsvíkingar á morgun, fimmtu-
daginn 25. júlí, þegar þeir mæta
Þrótti R. á Ólafsvíkurvelli. kgk
Skallagrímsmenn gerðu fýluferð á
Vopnafjörð þegar liðið tapaði gegn
Einhverja í þrettándu umferð ís-
landsmóts þriðju deildar karla á
laugardag. Leikið var á Vopnafjarð-
arvelli. Borgnesingar hafa átt erf-
itt tímabil og ekki átt marga sig-
urleiki það sem liðið er leiktíð-
ar. Kom því ekkert á óvart þegar
heimamenn skoruðu fyrsta mark
leiksins á 14. mínútu og komu sér
yfir þegar Sigurður Donys Sigurðs-
son sendi knöttinn í mark gestanna.
Héldu þeir eins marks forystu inn í
síðari hálfleik. Vopnfirðingar bættu
við öðru markinu á 56. mínútu
þegar Todor Hristov skoraði fyr-
ir Einherja. Skallagrímsmenn náðu
ekki inn fyrir varnir heimamanna
og þurftu að sætta sig við tveggja
marka tap á Vopnafirði.
Borgnesingar verma botnsætið
í deildinni með einungis sex stig
í vasanum. Aftur á móti sitja Ein-
herjar í sjötta sæti með nítján stig
eftir þrettán umferðir. Næsti leik-
ur Skallagríms er gegn Augnabliki
á fimmtudaginn á Skallagríms-
velli í Borgarnesi og hefst leikurinn
klukkan 20:00. glh
íA mátti sætta sig við svekkjandi
1-2 tap gegn Tindastóli þegar lið-
in mættust í níundu umferð In-
kasso deildar kvenna í knattspyrnu
á Akranesi á föstudagskvöld. Gest-
irnir skoruðu tvö mörk á lokamín-
útunum og stálu sigrinum.
Skagakonur mættu ákveðnar
til leiks en það var engu að síður
Tindastólsliðið sem var heilt yfir
öflugra og fékk betri færi í fyrri
hálfleik. Maurielle Tiernan fékk
besta færi hálfleiksins þegar hún
slapp ein í gegn en Aníta Ólafsdótt-
ir lokaði á hana og varði vel. íA lið-
ið átti nokkrar álitlegar sóknir sem
ekki tókst að nýta og staðan því
markalaus í hálfleik.
jafnræði var með liðunum í upp-
hafi síðari hálfleiks. Dró til tíðinda
á 57. mínútu þegar María Dögg jó-
hannesdóttir var rekin af velli úr
liði Tindastóls. Eftir baráttu við
Erlu Karitas jóhannesdóttur virt-
ist María brjóta á henni en sparkaði
síðan viljandi í hana þar sem hún lá
á jörðinni. Uppskar hún verðskuld-
að rautt spjald fyrir vikið.
Skagakonur sóttu í sig veðrið eft-
ir þetta og ógnuðu meira og meira
eftir því sem leið á leikinn. Kom
loksins að því að þær skoruðu á 81.
mínútu leiksins. Eftir tvö skot að
marki Tindastóls sem Lauren Allen
varði vel barst boltinn á Erlu Karit-
as sem kom honum yfir marklínuna
og íA í 1-0.
En gestirnir voru ekki af baki
dottnir. Skömmu síðar slapp Mu-
rielle ein í gegn en Aníta varði
glæsilega frá henni í horn. Upp
úr hornspyrnunni jöfnuðu Tinda-
stólskonur metin þegar Murielle
skoraði.
Á lokamínútu venjulegs leiktíma
var Klara Kristvinsdóttir nálægt því
að tryggja íA sigur með þrumu-
skoti af löngu færi sem small í þver-
slánni. Tindastóll fór í sókn og sótti
hornspyrnu og upp úr henni skor-
aði Murielle með skalla og stal sigr-
inum fyrir Sauðkrækinga. Ótrúleg
dramatík á Akranesvelli og ákaflega
svekkjandi tap fyrir íA liðið.
Skagaskonur eru í sjöunda sæti
deildarinnar með ellefu stig, jafn
mörg og Grindavík og Fjölnir í
sætunum fyrir neðan en stigi á eft-
ir Haukum og Augnabliki í sætun-
um fyrir ofan. Næst leika Skaga-
konur á morgun, fimmtudaginn 25.
júlí, þegar þær mæta toppliði FH í
Hafnarfirði.
kgk
Þær Helena Ólafsdóttir, þjálfari
kvennaliðs íA, og Aníta Lísa Svans-
dóttir aðstoðarþjálfari hafa óskað
eftir því að láta af störfum hjá fé-
laginu. Þetta kom fram í fréttatil-
kynningu á vef Knattspyrnufélags í
síðustu viku.
Helena og Aníta tóku við þjálfun
íA haustið 2016 og hafa því verið
við stjórnvölinn hjá meistaraflokki
kvenna í tæp þrjú ár. „Knattspyrnu-
félag íA óskar Helenu og Anítu vel-
farnaðar í þeim verkefnum sem þær
taka sér fyrir hendur í framtíðinni
og þakkar þeim fyrir afar góð störf
hjá félaginu undanfarin ár,“ segir á
vef KFíA. kgk
íA og KA skildu jöfn, 1-1, þegar lið-
in mættust í 13. umferð Pepsi Max
deildar karla í knattspyrnu. Leikur-
inn fór fram á Akureyri á sunnudag.
Leikurinn fór fjörlega af stað og
Skagamenn komust yfir strax á 10.
mínútu leiksins. Stefán Teitur Þórð-
arson tók aukaspyrnu frá hægri,
sendi boltann fyrir markið á Vikt-
or jónsson sem skoraði með góðum
skalla.
Skagamenn voru sterkari lengst af
í fyrri hálfleik án þess þó að skapa
sér mikið af opnum marktækifær-
um. Langbesta færi hálfleiksins fékk
Tryggvi Hrafn Harlaldsson á 31.
mínútu. jón Gísli Eyland Gíslason
átti þá langan bolta inn fyrir vörn
KA. Tryggvi Hrafn tók vel á móti
boltanum og fór framhjá markverð-
inum en skaut framhjá opnu mark-
inu. Besta færi KA-manna í fyrri
hálfleik var lúmskur skalli sem Árni
Snær Ólafsson varði glæsilega í
marki íA. Staðan 1-0 eftir 45 mín-
útur.
Snemma í síðari hálfleik voru
Skagamenn nálægt því að koma
boltanum yfir línuna eftir mikið
at í vítateig KA-manna, en Aron
Dagur Birnuson í markinu náði
að bjarga á síðustu stundu. Það
var síðan á 58. mínútu að heima-
menn jöfnuðu metin, svo að segja
upp úr þurru. Almarr Ormarsson
fékk boltann á miðjum vellinum,
fór framhjá Stefáni Teit og skoraði
með góðu skoti í hornið fjær.
Bæði lið freistuðu þess að skora
sigurmarkið það sem eftir lifði
leiks en hvorugu tókst að skapa
sér alvöru marktækifæri. Leiknum
lauk því með 1-1 jafntefli.
íA situr í þriðja sæti deildarinn-
ar með 22 stig, stigi á eftir Breiða-
bliki en tveimur stigum á undan
Stjörnunni í sætinu fyrir neðan.
Næst leika Skagamenn á sunnu-
daginn, 28. júlí næstkomandi, þeg-
ar þeir fá Valsmenn í heimsókn á
Akranes.
kgk
Kári tapaði gegn Þrótti frá Vog-
um í dramatískum markaleik þeg-
ar liðin mættust í tólftu umferð 2.
deildar karla í knattspyrnu. Leik-
ið var í Akraneshöllinni á fimmtu-
dagskvöld.
Eitt mark var skorað í fyrri hálf-
leik og þar var á ferðinni Miroslav
Babic, sem kom gestunum af Suð-
urnesjum yfir á 21. mínútu leiks-
ins.
Hlynur Sævar jónsson jafnaði
metin fyrir Kára á 55. mínútu og
þá var eins og opnað hefði verið
fyrir flóðgáttir. Þremur mínútum
síðar kom Guðmundur Marteins-
son gestunum yfir á nýjan leik og á
62. mínútu skoraði Ingvar Ásbjörn
Ingvarsson og kom Þrótti V. í 1-3.
Hlynur Sævar var aftur á ferðinni
þegar hann minnkaði muninn í 2-3
á 66. mínútu og liðin búin að skora
fjögur mörk á aðeins ellefu mín-
útna leikkafla.
Smá bið varð eftir næsta marki og
lokamínúturnar æði dramatískar. Á
86. mínútu fengu Káramenn víta-
spyrnu. Fyrirliðinn Andri júlíus-
son fór á punktinn og jafnaði met-
in. Káramenn voru öflugri á loka-
mínútunum og virkuðu líklegri til
að fara með sigur af hólmi. Það var
því gegn gangi leiksins þegar Alex-
ander Helgason skoraði fyrir Þrótt
þegar komið var fjórar mínútur
fram yfir venjulegan leiktíma. Þar
með voru gestirnir búnir að stela
sigrinum. Lokatölur í Akraneshöll-
inni voru 3-4, Þrótti í vil.
Kári situr í ellefta sæti deildar-
innar með ellefu stig, tveimur stig-
um á eftir KFG í sætinu fyrir ofan.
Næst mætir liðið Völsungi norð-
ur á Húsavík laugardaginn 27. júlí
næstkomandi.
kgk/ Ljósm. Knattspyrnufélag
Kára.
Harley Willard skoraði annað mark Víkings Ó. í jafnteflinu gegn Gróttu.
Ljósm. úr safni/ af.
Dramatískt
jafntefli Víkings
Jafnt norðan heiða
Viktor Jónsson skoraði eina mark ÍA í jafnteflinu gegn KA. Ljósm. úr safni/ gbh.
Helena Ólafsdóttir og Aníta Lísa Svansdóttir á Akranesvelli. Ljósm. gbh.
Helena og Aníta hættar hjá ÍA
Markaregn og dramatík
Grátlegt tap Skagakvenna
Erla Karitas Jóhannesdóttir nýbúin
að koma boltanum yfir línuna og
Skagakonur fagna. Ljósm. gbh.
Skallagrímur vermir botnsætið í þriðju
deild karla eftir þrettán umferðir.
Fóru fýluferð á Vopnafjörð