Skessuhorn - 25.09.2019, Side 2
MIÐVIKUDAGUR 25. SEptEMBER 20192
Haustið er farið að færast yfir
landið með fögrum litabreyt-
ingum sínum. Því er ekki úr
vegi að staldra við, líta í kring-
um sig og njóta haustsins
stutta stund þegar færi gefst.
Austan- og norðaustanátt á
morgun, 8-15 m/s, hvassast
við suðausturströndina. Dálítil
rigning fyrir sunnan og austan,
en skýjað með köflum og yfir-
leitt þurrt annars staðar. Hiti 9
til 16 stig, hlýjast á Vesturlandi
en svalast fyrir austan. Norð-
austanátt, 5-10 m/s á fimmtu-
dag. Dálítil væta fyrir norðan
og austan og hiti 5 til 10 stig.
Bjart á suðvesturhorninu að
mestu og hiti allt að 16 stig. Á
laugardag og sunnudag er út-
lit fyrir norðaustlæga átt, 5-10
m/s. Skýjað og þurrt að mestu
á Suður- og Vesturlandi. Annars
skýjað og úrkomulítið og kóln-
ar í veðri. Hægir vindar, skýjað
með köflum eða bjartviðri en
fremur svalt í veðri á mánudag.
Í liðinni viku voru lesendur vefs
Skessuhorns spurðir hvort þeir
hlökkuðu til vetrarins. „Nei, eig-
inlega ekki“ sögðu flestir, eða
43% og „hugsa ekki um það“
sögðu 24%. „Já, mjög mikið“
sögðu hins vegar 17% full eftir-
væntingar og „já, svona frekar“
sögðu 16%.
Í næstu viku er spurt: Hversu
oft borðar þú ís?
Geir Konráð Theódórsson held-
ur í dag upp í mikið ferða-
lag. Hann eltir ástina til Níg-
er og ætlar að leyfa lesendum
Skessuhorns að fylgjast með
ævintýrum sínum í einu van-
þróaðasta ríki heims í vetur.
Ævintýramaðurinn sem fylgir
hjartanu er Vestlendingur vik-
unnar.
Spurning
vikunnar
Til minnis
Veðurhorfur
Vestlendingur
vikunnar
Opnunartími
Kjörbúðar styttur
DALABYGGÐ: Opnunartími
Kjörbúðarinnar í Búðardal hef-
ur verið styttur. Miði á hurð
beið viðskiptavina verslunarinn-
ar í byrjun síðustu viku þar sem
greint var frá styttingu opnun-
artímans. Þar kom fram að frá
og með 16. september verður
opið frá kl. 9:00 til 18:00 mánu-
daga til fimmtudaga, en frá kl.
9:00 til 19:00 á föstudögum eins
og áður var alla virka daga. Á
laugardögum verður óbreytt-
ur opnunartími frá kl. 10:00 til
18:00 en á sunnudögum frá kl.
12:00 til 17:00, en áður var opið
til 18:00 á sunnudögum. Sam-
tals styttist opnunartími versl-
unarinnar því um fimm klukku-
stundir á viku; fjórar klukku-
stundir á virkum dögum og eina
um helgar. Á miðanum sem beið
viðskitpavina á hurðinni fylgdu
þau skilaboð að breyttur opn-
unartími væri með það mark-
mið að standa vörð um verðlag-
ið. Ekki náðist í Heiðar Róbert
Birnuson, rekstrarstjóra Kjör-
búða, við vinnslu fréttarinnar.
-kgk
Taka upp spilin á
mánudaginn
BORGARFJ: Félagar í Bridds-
félagi Borgarfjarðar hefja vetr-
arstarfið næstkomandi mánu-
dag klukkan 20 í Logalandi.
Að sögn Ingimundar Jóns-
sonar fjölmiðlafulltrúa félags-
ins verður á fyrstu kvöldunum
spilaðar stakar keppnir í tví-
menningi en með haustinu fær-
ist aukinn þungi í leikana. Allir
eru velkomnir til félags við spil-
ara, nóg pláss í húsinu og góður
andi ræður ríkjum. Loks minn-
ir Ingimundur á að árlegt Þor-
steinsmót er fyrirhugað laug-
ardaginn 23. nóvember þannig
að fólk getur tekið daginn frá.
-mm
Sjóða þarf
neysluvatn
REYKHÓLAR: E.coli gerl-
ar hafa fundist í neysluvatni
á Reykhólum, að því er fram
kemur í frétt á heimasíðu sveit-
arfélagsins. Í fréttinni eru íbúar
minntir á hvað skuli gera þeg-
ar slíkir sjúkdómsvaldandi gerl-
ar finnist í neysluvatni en þá
er mikilvægt að sjóða allt vatn
sem nota á við matargerð eða
drykkjar. Við suðu verða gerl-
arnir óvirkir og ættu ekki að
skaða heilsu fólks. Mikilvægt er
að vatnið nái að bullsjóða áður
en það er notað við matargerð,
hvort sem það er til beinnar
neyslu, til að skola matvæli eða
bursta tennur. -arg
„Þetta er komið á fleygiferð og ger-
ist hratt þessa dagana,“ segir Jón
Ágúst Garðarsson, framkvæmda-
stjóri Bestlu, í samtali við Skessu-
horn. Framkvæmdir fyrirtækis-
ins við fimm hæða íbúða- og þjón-
ustuhús við Dalbraut 4 á Akranesi
hófust formlega með skóflustungu
22. febrúar síðastliðinn og eru nú
komnar á fullt. Á neðstu hæð húss-
ins verður 1270 fermetra salur í
eigu Akraneskaupstaðar, sem m.a.
Félag eldri borgara á Akranesi og
nágrenni fær til afnota fyrir félags-
starf sitt. Á fjórum hæðum þar fyr-
ir ofan verða samtals 26 tveggja-
og þriggja herbergja íbúðir, ætlað-
ar eldri borgurum og bílastæði fyrir
hverja íbúð er í kjallara.
Ríkið og sveitarfélög á höfuðborg-
arsvæðinu eiga nú í viðræðum vegna
uppbyggingar svokallaðrar Borgar-
línu og hefur væntanlegri Sunda-
braut verið bætt við í þeim viðræð-
um. Sigurður Ingi Jóhannsson sam-
gönguráðherra greindi frá málinu á
Facebook á föstudaginn: „Nokkr-
ir möguleikar koma til greina um
hvar og hvernig best sé að leggja
Sundabraut og hvernig megi auð-
velda umferð á milli miðborgar og
Grafarvogs, létta á umferð á höfuð-
borgarsvæðinu og stytta leiðir út
á land. tveir valkostir eru einkum
taldir koma til greina. Annars vegar
jarðgöng í Gufunes, sem miðast við
núgildandi skipulag, og hins vegar
lágbrú yfir Kleppsvík yfir á Holta-
veg sem kallar á breytt skipulag á
hafnarstarfsemi. Ég hef áður sagt
að lágbrú yfir Kleppsvík sé fýsi-
legri kostur en jarðgöng. Bæði er
hún ódýrari, henti fyrir alla sam-
göngumáta, þ.e. bílandi, almenn-
ingssamgöngur, gangangi og hjól-
andi,“ skrifaði Sigurður Ingi.
Varðandi síðari áfanga segir ráð-
herra að Sundabraut muni ná frá
Gufunesi um Geldinganes, yfir
Leiruvog, Gunnunes, Álfsnes og
Kollafjörð að tengingu við Vest-
urlandsveg. „Næstu skref snúa að
frekari viðræðum við Faxaflóahafn-
ir og skipulagsyfirvöld í borginni,“
skrifar ráðherrann en viðræður við
Faxaflóahafnir snúa m.a. að hæð
væntanlegra brúa en lágar brýr gera
sundin ekki skipgeng.
Komið hefur fram í fjölmiðlum að
ný áætlun um framkvæmdir í sam-
göngumálum á höfuðborgarsvæð-
inu til næstu 15 ára verðir kynnt-
ar formlega á morgun, fimmtudag.
Nær sú áætlun yfir uppbyggingu
stofnbrauta, almenningssamgöng-
ur, borgarlínu, hjóla- og göngu-
stíga og umferðarstýringu og gert
ráð fyrir að fyrstu framkvæmdir
geti hafist á næsta ári. Áætlun um
kostnað hljóðar upp á 120 milljarða
króna en þar af muni um 50 millj-
arðar renna til uppbyggingar um-
ferðarmannvirkja og tæpir 50 millj-
arðar til borgarlínu. Uppbygging
Sundabrautar er ekki inni í þeirri
upphæð. Allar eiga þessar breyting-
ar að skila betra flæði í umferð að
og innan höfuðborgarsvæðisins og
auknu öryggi.
Samkvæmt heimildum Skessu-
horns er gert ráð fyrir innheimtu
vegtolla til að fjármagna væntanleg-
ar stórframkvæmdir á höfuðborg-
arsvæðinu. Það er auk þess liður í
breyttri tekjuöflun af bifreiðum og
snýr að orkuskiptum í samgöngum.
Gera má ráð fyrir að málið skýrist
betur á morgun, fimmtudag, þegar
sveitarfélög á höfuðborgarsvæðinu
og ráðuneytið hefur boðað nánari
kynningu um málið. mm
Framkvæmdir við Dalbraut 4 á fullum skriði
Stefnan að húsið verði risið fljótlega eftir áramót
Ráðherra kynnti fyrstu
hugmyndir varðandi Sundabraut
„Núna erum við að klára að
steypa plötu bílakjallarans og búið
er að framleiða einingarnar í fyrstu
hæð hússins. Við byrjum á að setja
loftplötuna í bílakjallarann í næstu
viku og svo verður byrjað að reisa
fyrstu hæðina, þjónustumiðstöð-
ina, strax eftir mánaðamótin,“
segir hann og bætir því við að vel
hafi gengið á framkvæmdatíman-
um. „Í byrjun var ekki búið að út-
færa hvernig salurinn átti að vera.
En það gekk mjög vel, í samstarfi
við FEBAN og eftir það gátum við
sett okkar framleiðslu á fullt. Síðan
þá hefur þetta gengið vonum fram-
ar, engin vandamál komið upp og
ekkert sem hægt er að kvarta yfir,“
segir Jón Ágúst og bætir því við að
samstarf fyrirtækisins við Akranes-
kaupstað hafi gengið mjög vel.
Það er Smellinn ehf. sem reis-
ir húsið fyrir Bestlu, en fyrirtæk-
ið er sjálft með innivinnuna. Sam-
ið hefur verið við pípara á Akra-
nesi um pípulagnirnar og verið er
að semja við rafvirkja af Akranesi.
„Eins og staðan er í dag eru það
allt heimamenn sem eru að vinna í
húsinu. Það var stefna okkar í upp-
hafi og við höfum gert það þegar
við byggjum úti á landi, nýtt krafta
þeirra sem fyrir eru í sveitarfé-
laginu,“ segir hann.
Áætlað er að íbúðirnar í húsinu
verði tilbúnar til afhendingar vor-
ið 2020. Jón kveðst ekki eiga von á
öðru en það gangi eftir. „Stefnan er
að búið verði að reisa húsið alveg
fljótlega eftir áramót. Innivinna fer
af stað um mánaðamót október og
nóvember, loftræsting í bílakjallra
og annað sem því fylgir. Síðan
verður innivinnan unnin samhliða
reisningunni á húsinu. Stefnan er
síðan að afhenda húsið fullklárað
seinni hluta næsta vors,“ segir Jón
Ágúst Garðarsson að endingu. kgk
Frá byggingasvæðinu síðdegis á mánudaginn.