Skessuhorn - 25.09.2019, Qupperneq 4
MIÐVIKUDAGUR 25. SEptEMBER 20194
Kirkjubraut 54-56 - Akranesi - Sími: 433 5500 - www.skessuhorn.is
Skessuhorn kemur út alla miðvikudaga. Skilafrestur auglýsinga er kl. 14.00 á þriðjudögum.
Auglýsendum er bent á að panta auglýsingapláss tímanlega. Skráningarfrestur smá-
auglýsinga er til kl. 12.00 á þriðjudögum.
Blaðið er gefið út í 3.700 eintökum og selt til áskrifenda og í lausasölu.
Áskriftarverð er 3.280 krónur með vsk. á mánuði. Elli- og örorkulífeyrisþegar greiða
kr. 2.840. Rafræn áskrift kostar 2.570 kr. Rafræn áskrift til elli- og örorkulífeyrisþega er 2.370 kr.
Áskrifendur blaðs fá 50% afslátt af verði rafrænnar áskriftar. Verð í lausasölu er 950 kr.
SKRIFSTOFA BLAÐSINS ER OPIN KL. 9-16 VIRKA DAGA
Útgefandi: Skessuhorn ehf. skessuhorn@skessuhorn.is
Ritstjórn:
Magnús Magnússon, ritstjóri s. 894 8998 magnus@skessuhorn.is
Kristján Gauti Karlsson kgauti@skessuhorn.is
Anna Rósa Guðmundsdóttir arg@skessuhorn.is
Auglýsingar og dreifing:
Hrafnhildur Harðardóttir auglysingar@skessuhorn.is
Umbrot og hönnun:
Ómar Örn Sigurðsson umbrot@skessuhorn.is
Bókhald og innheimta:
Guðbjörg Ólafsdóttir bokhald@skessuhorn.is
Prentun: Landsprent ehf.
Leiðari
Byltingarsinnarnir við
Við lifum á tímum hröðustu tækniframfara nokkru sinni. Sumum kann að
finnast þær ógnvekjandi, en kannski einkum þeim sem kjósa að láta eins
og tækniframfarir komi þeim ekki við. Loka bara augunum og freistast til
að halda sig innan þekkts þægindaramma, óska þess að lífið breytist sem
allra, allra minnst og vona hið besta. Skyndilega eftir ótilgreindan tíma sitja
þeir eftir, líkt og nátttröll, daprir yfir því að hafa ekki nýtt tækifærin. Ég
sat nýlega áhugaverða ráðstefnu þar sem fjölmargir ræddu þær breytingar
og áskoranir sem fylgja því sem kallað hefur verið fjórða iðnbyltingin. Við
lifum nefnilega tíma örari tæknibreytinga en nokkur önnur kynslóð hef-
ur staðið frammi fyrir. En fyrst að dálítilli söguskýringu til að varpa ljósi á
hversu í rauninni er örstutt síðan tæknin hóf innreið sína.
Fyrsta tímabil iðnbyltingar er skilgreint þegar ýmiss iðnaður var vél-
væddur seint á 19. öld, fyrst í Bretlandi. Störf þar sem áður var krafist
mannshandarinnar var allt í einu hægt að vinna að hluta eða öllu leyti í vél-
um sem knúnar voru vatnsafli eða gufu. Þetta var um það leyti sem afi minn
fæðist. Iðnbylting númer tvö nefndist sú sem fylgdi rafvæðingunni undir
lok heimsstyrjaldarinnar fyrri. Færibönd bættust við tæki og tól og hægt
var að fjöldaframleiða hluti á áður óþekktum hraða. Þetta var um svipað
leyti og faðir minn fæðist, en hann leit fyrst dagsins ljós miðjan frostavetur-
inn mikla 1918. Loks verður þriðja iðnbyltingin, sem oft hefur verið nefnd
stafræna byltingin. Hún hófst nokkru áður en ég kem í heiminn. tölvur
komu fyrst til sögunnar og með snilli þeirra var hægt að auka til muna fram-
leiðslugetu vélanna og sjálfvirni jókst. Jafnvel „fæddust“ vélmenni, sam-
skipti urðu stafræn og samfélagið breyttist í að vera svona nokkurn veginn
eins og við þekktum það fram á fyrstu ár þessarar aldar, þegar dóttir mín
var að byrja að vaxa úr grasi. Fjórða iðbyltingin er nú komin á fullan skrið,
hefur nánast laumast aftan að manni! Hún hefur nú hraðari áhrif á allt um-
hverfi okkar en við gerum okkur grein fyrir, eða öllu heldur höfum snerpu
til að fylgja eftir (lesist ég). Þetta er iðnbyltingin sem byggir á stafrænum
grunni og tengir saman ólíka tækni og mun leiða til grundvallarbreytinga
á hagkerfum, fyrirtækjum og þjóðfélögum. Heilu starfsgreinarnar munu
innan tíðar leggjast af. Það mun í besta falli þykja hlægilegt eftir nokkur
ár það sem okkur finnst sjálfsagður hlutur í dag. Landamæri í þeirri merk-
ingu sem við þekkjum munu hverfa, bætt samskipti mun eiga þátt í aukinni
þekkingu almennings og óbreytt verður skólakerfið ekki. Með tæknifram-
förum er nefnilega alltaf leitast við að auka framleiðni, hvort sem það er í
vinnu, skóla eða frístundum. Í hagkvæmni felst ekki að viðhalda störfum ef
tæknin gerir þau óþörf. Enginn verður tilbúinn að greiða fyrir slíkt bruðl.
Niðurstaða þess fundar sem ég sat um daginn var sú að við þurfum að
vera á tánum varðandi menntun ef við ætlum að fylgja þeirri framþróun
sem er að eiga sér stað. Án endurmenntunar og fræðslu munum við sitja
eftir og gætum átt það á hættu að verða vanþróað ríki í stað þess að vera í
fararbroddi þjóða. Ég hef reyndar engar áhyggjur af slíkt gerist en erfiðasta
brekkan að klífa er hins vegar sjálfur mannshugurinn; hversu móttækileg
við kjósum að vera fyrir nýjungum morgundagsins, augnabliksins.
En þessar tæknibyltingar hafa gerst hratt, einungis í tíð fjögurra kyn-
slóða. Ég kynntist afa mínum vel sem fæddist í upphafi fyrstu iðnbylting-
arinnar og geri mér grein fyrir áhrifum annarrar iðnbyltingarinnar, þeg-
ar faðir minn var að vaxa úr grasi. Var sjálfur svo heppinn að ná í hælana
á fyrstu áhrifum þriðju iðnbyltingarinnar og geri mér ljóst að dóttir mín
mun ekki nema af afspurn þekkja aðstæður annarra iðnbyltinga. En það
er ekkert að óttast, svo lengi sem við lítum á breytingarnar sem tækifæri,
ekki ógnir.
Magnús Magnússon
Síðastliðin fimmtudag fór Re-
becca C.K. Ostenfeld í björgun-
arferð í Dölum eftir að hafa feng-
ið tilkynningu um fálka sem virtist
þurfa aðhlynningar. Fálkinn dvaldi
fyrst um sinn hjá Rebeccu á Hólum
þar sem hún rekur húsdýragarðinn
Hólar Farm en Rebecca var í stöð-
ugu sambandi við Náttúrufræði-
stofnun vegna ummönnunar fugls-
ins. Á sunnudag var fálkinn flutt-
ur í Húsdýragarðinn í Reykjavík til
aðhlynningar en stefnt er að því að
sleppa honum á björgunarstað þeg-
ar hann hefur náð sér á strik aftur.
sm
Grundarfjarðarbær efnir til árlegr-
ar ljósmyndasamkeppni, nú í tí-
unda skipti. Þema keppninnar í ár
er fegurð. Ljósmyndirnar verða
að vera teknar innan marka sveit-
arfélagsins á tímabilinu desemb-
er 2018 til nóvember 2019 og geta
allir sent inn allt að fimm mynd-
ir. Veitt verða verðlaun fyrir þrjár
bestu myndirnar og fyrstu verðlaun
eru 50.000 krónur, önnur verðlaun
30.000 krónur og þriðju verðlaun
20.000 krónur. Með því að efna til
ljósmyndasamkpenni vill Grundar-
fjarðarbær safna saman góðu mynd-
efni úr sveitarfélaginu til að nota
við kynningar og aðra starfsemi
bæjarins auk þess að kveikja áhuga
á ljósmyndun bæjarbúa. Skilafrest-
ur á myndunum er til miðnætt-
ist fimmtudaginn 10. nóvember
og geta keppendur sent myndina á
netfangið arna@grundarfjordur.is.
arg
Skýrslan „NABO-social inclusion
of youth in Iceland“ var birt fyrir
skemmstu en þar er gerð grein fyr-
ir félagslegri þátttöku ungmenna á
Íslandi. Við gerð hennar var rætt
við 38 íslensk ungmenni á aldrin-
um 18-24 ára með það að mark-
miði að finna leiðir til að stuðla að
aukinni félagslegri þátttöku þeirra.
Verkefnið miðar að því að hlusta
á ungmenni til að afla þekkingar á
því hvernig þau upplifa félagslega
aðlögun og möguleika til félags-
legrar og pólitískrar þátttöku. Í
skýrslunni koma fram sjónarmið 38
ungmenna á aldrinum 18-24 ára.
Skýrslan var tekin saman af starfs-
mönnum Menntavísindastofnunar
Háskóla Íslands.
Að tilheyra samfélaginu
Eftir vinnu með rýnihópum gefa
niðurstöðurnar til kynna að ung-
menn upplifi mismunun vegna ungs
aldurs og skorts á áhuga og mögu-
leikum til að hafa áhrif á stærri
pólitísk úrlausnarefni. Þau upplifa
vanda við að komast í eigið hús-
næði og skort á húsnæði á viðráð-
anlegu verði. Einnig ræddu þau um
fjárhagsstöðu sína, geðheilbrigðis-
vanda og skort á áreiðanlegum og
tiltækum almenningssamgöngum.
Þau bentu jafnframt á að félags-
legur stuðningur og tilfinning um
að tilheyra samfélaginu væru þættir
sem þau teldu mikilvæga til að auka
félagslega þátttöku.
Tillögur til að efla
félagslega þátttöku
Í lok skýrslunnar eru settar fram til-
lögur, byggðar á svörum ungmenn-
anna, sem gætu eflt félagslega þátt-
töku ungmenna á Íslandi. Má þar
nefna:
Fyrirbyggjandi aðgerðir til að
taka á því sem hefur neikvæð áhrif
á líf ungmenna á Íslandi í dag. Svo
sem að auka fræðslu um mismun-
andi tegundir fíknar og um andlega
vanlíðan. Fagaðilar og fólk sem
hefur sjálft reynslu af að takast á við
slíkan vanda gæti haldið fyrirlestra í
skólum um þessi mál.
Auðvelda aðgengi að sálfræði-
þjónustu fyrir ungmenni.
Fordómar og óþol eru samtengd
fyrirbæri og hafa áhrif á ungmenni.
Þá staðreynd þarf að viðurkenna.
Vinna þarf gegn fordómum og
óþoli í samfélaginu öllu.
Skapa aðstæður fyrir ungt fólk til
að taka þátt í og hafa áhrif á ákvarð-
anir í nærsamfélaginu. til dæmis
að geta tekið þátt í og haft áhrif á
umræðu um húsnæðismál, almenn-
ingssamgöngur og frístundastarf.
Ákvarðanir sem snerta ungt fólk
ættu að byggjast á þekkingu ungs
fólks.
Fylgjast með lífskjörum hópa
ungs fólks sem við vitum að þurfa
sérstakan stuðning samfélagsins.
til dæmis LGBtQ fólk, innflytj-
endur, ungt fólk með geðraskanir
og ungt fólk með fötlun.
mm
Fálka
komið til
bjargar
Ljósmyndasamkeppni
Grundarfjarðarbæjar
Smábátahöfnin í Grundarfirði. Ljósm. mm.
Tillögur um hvernig auka megi
félagsþátttöku ungmenna