Skessuhorn - 25.09.2019, Page 14
MIÐVIKUDAGUR 25. SEptEMBER 201914
Mikil úrkoma var um allt Vesturland fyrir helgi, einkum frá
miðvikudegi og fram á föstudag en tók að draga úr rigning-
unni aðfararnótt laugardags. Miklir vatnavextir urðu í ám og
lækjum sem ollu raski á samgöngum víða um landshlutann.
Svínadalsvegur fór í sundur við Súluá, Langavatnsvegur var
ófær vegna vatnavaxta, vatn flæddi yfir Snæfellsnesveg við
Þverá í Eyja- og Miklaholtshreppi, sem og Akrafjallsveg, svo
dæmi séu tekin.
Aurskriða féll á Skarðsstrandarveg undir Múlahlíð, milli
Ballarár og Klofnings, síðastliðinn fimmtudag og virðist
hann skemmdur eftir vatnsveðrið. Á sunnudag mátti sjá stóra
sprungu í vegarkantinum, þar sem jarðskrið hafði orðið úr
veginum. „Það er ofboðslegt vatnsveður búið að vera hérna,
allar ár alveg kolmórauðar við alla bakka,“ sagði trausti
Bjarnason, bóndi á Á á Skarðsströnd, í samtali við Skessuhorn
á föstudagsmorgun.
Um áttaleytið á laugardagsmorgun var greint frá því á
vefsíðu Vegagerðarinnar að skriða hefði fallið á veginn um
Gilsfjörð, við ytri Ólafsdalshlíð. Um tveimur klukkustundum
síðar hafði vegurinn verið opnaður.
Ljóst er að víða hafa orðið einhverjar skemmdir á vegum
í vatnsveðrinu í síðustu viku en þó voru allar aðalleiðir
landsins orðnar greiðfærar snemma á mánudagsmorgun, að
því er fram kom á vef Vegagerðarinnar. Síðdegis á mánudag
var Jökulhálsleið þó enn ófær vegna vatnavaxta sem og
Langavatnsvegur og Steinadalsheiði sem lokuð var vegna
aurbleytu.
Meðfylgjandi myndir voru allar teknar síðastliðinn
fimmtudag.
kgk/ Ljósm. mm
Mikil flóð í ám og lækjum á Vesturlandi
Ræsi við afleggjara að sumarhúsi ofarlega í Stafholtstungum. Innan við ræsið
myndaðist svelgur þegar ræsið hætti að hafa undan en hér fossar það fram.
Ljósm. mm. Leirá spýttist út úr ræsinu undir þjóðveginn neðan við Beitistaði.
Gufuá í Borgarhreppi sem vart rann milli steina í sumar, var sem stórfljót á að líta.
Norðurá milli bæjanna Munaðarness og Hlöðutúns.
Víða var Norðurá farin að fljóta upp á tún, hér eru kindur á
„eyju“ neðan við bæinn Brekku.
Ræsi á heimreið að sumarbústað í Norðurárdalnum hafði ekki undan og þá fór að
flæða yfir veginn.
Vatnið var komið langleiðina upp í dekkin á gömlu brúnum
yfir Ferjukotsskýkin.
Berjadalsáin sem vart rann í sumar var býsna vatnsmikil.
Ljósm. Kolla Ingvars.
Haffjarðará. Ljósm. Þóra Sif Kópsdóttir.
Hítará var óárennileg þar sem hún steyptist fram milli nýju
og gömlu brúarinnar. Ljósm. þsk.
Björgunarsveitirnar Heiðar og Brák voru kallaðar út
til leitar að fólki á Langavatnsdal. Beilá reyndist ófær
og urðu björgunarsveitarmenn frá að að hverfa. Þyrla
sótti ferðafólk sem var strandaglópar á svæðinu. Á
Langavatnsvegi hafði þessu ræsi skolað undan veginum.
Ljósm. Björgunarsveitin Heiðar.
Þyrla Landhelgisgæslunnar sótti í gær þrjá ferðamenn sem
urðu innlyksa við Langavatn sökum vatnavaxta.
Ljósm. Landhelgisgæslan.
Urriðaá á Mýrum hefur sjaldan orðið svona vatnsmikil.
Ljósm. Þóra Sif Kópsdóttir.