Skessuhorn - 25.09.2019, Page 19
MIÐVIKUDAGUR 25. SEptEMBER 2019 19
hausthátíð
SKALLAGRÍMS 2019
Latibær og leikir – Ómótstæðilegt kótilettukvöld – Stórdansleikur með Bland
Laugardaginn 5. október verður Hausthátíð Skallagríms haldin við og í Hjálmakletti í Borgarnesi
og það verður brjálað stuð allan daginn!
Kl. 13:00 Latibær, leikir, grín og glens. Keppni í óhefðbundnum íþróttagreinum – verður sett heimsmet í stígvélakasti eða slökkvibíladrætti?
Solla stirða og Halla hrekkjusvín verða á staðnum og kannski eiri íbúar Latabæjar. Uppskeruhátíð yngri okka Skallagríms.
Kl. 16:00 Ball með Bland. Brjálað stuð fyrir börnin og ölskylduna með Hljómsveitinni Bland.
Kl. 20:00 Kótilettukvöld. Kótilettur í raspi með rauðkáli, rabbarasultu og grænum baunum. Gísli Einarsson stjórnar veislunni, söngur, grín og glens.
Ómótstæðilegt. Aðgangseyrir kr. 4000. Miðapantanir í síma 848 7819.
Kl. 23:30 Stórdansleikur með hljómsveitinni Bland. Aldurstakmark 18 ár. Aðgangseyrir kr. 3000.
Allir ofboðslega velkomnir og ef þú tekur allan pakkann, kótilettur og ball, þá kostar þetta bara 6000 þúsund kall
Knattspyrnudeild Skallagríms
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
9
Samkvæmt 15. kafla reglugerðar um hollustuhætti nr.
941/2002 er hunda- og kattaeigendum skylt að láta orma-
hreinsa dýr sín árlega og er það innifalið í leyfisgjaldi.
Hundahreinsun verður mánudaginn 14. október
frá kl. 17:00-21:00.
Kattahreinsun verður þriðjudaginn 15. október
frá kl. 17:00-21:00.
Staðsetning: Þjónustumiðstöð Akraness að
Laugarbraut 6 (gamla slökkvistöðin).
Gunnar Gauti Gunnarsson dýralæknir annast hreinsunina.
Dýralæknir býður einnig upp á bólusetningar (ath. að greiða þarf
með peningum):
Smáveirusótt (Parvo), lifrarbólgu, hótelhósta
og hundafári, verð kr. 3.000.
Örmerkingu hunda og katta, verð kr. 4.500.
Perlutex ófrjósemistöflur fyrir hunda og ketti,
verð kr. 1.500.
Bólusetningu gegn kattafári, verð kr. 3.000.
Óskráðir hundar og kettir eru velkomnir og geta eigendur þeirra
nálgast skráningargögn á staðnum. Eigendur mega koma og ná í
pillur ef þörf krefur.
Dýraeigendur hunda og katta eru hvattir til að kynna sér samþykktir
um hunda- og kattahald á Akranesi á vef Akraneskaupstaðar. Seinni
hreinsun verður laugardaginn 2. nóvember, nánar auglýst síðar.
Nánari upplýsingar veita dýraeftirlitsmaður í síma 898-9478
eða dýralæknir í síma 892-3230.
Hunda- og
kattaeigendur athugið
Níger segir Geir Konráð það alveg
óvíst. Hann segist þó hafa gætt þess
að kynna Sasha aðeins fyrir bestu
hliðum landsins svo það sé von að
hún verði tilbúin að búa hér einn
daginn. „Bróðir minn á líka erlenda
konu og hann kom alltaf með hana
til Íslands um jólin þegar það er
bara kalt og dimmt. Þegar hann svo
spurði hvort hún væri til í að flytja
hingað tók hún það auðvitað ekki
í mál. Ég lærði af mistökum hans
og byrjaði á að kynna kærustuna
bara fyrir íslenska sumrinu,“ svar-
ar hann kíminn. „Það sem er verra
er að hún er menntuð í hjálparsam-
takafræðum svo það þarf eiginlega
eitthvað skelfilegt að gerast hér svo
hún fái vinnu við hæfi. En maður
veit aldrei hvar verða hamfarir. Hér
eru eldfjöll og kannski bíða næstu
hamfarir bara hér undir jöklum á
Íslandi,“ segir hann og hlær. „En
við ætlum að byrja á að prófa Afr-
íku, svo sjáum við til hvað gerist.“
„Frá Eden til Íslands“
Á meðan dvölinni stendur hyggst
Geir Konráð skrifa pistla og senda
Skessuhorni svo lesendur geti fylgst
með lífinu í þessu vanþróaða landi
í Afríku. „Það er gaman að geta
gefið fólk svona sýn inn í þennan
heim sem er svo langt frá okkar og
bera það saman við Ísland, sem er
á toppnum meðal þróuðustu land-
anna. Níger er líka land sem við
heyrum aldrei talað um þrátt fyr-
ir að það sé stórt land sem er stað-
sett um miðja Afríku.“ Auk þess að
skrifa pistla um dvölina í Níger ætl-
ar Geir Konráð að vinna að nýrri
sýningu sem hann hyggst setja upp
í Landnámssetrinu í Borgarnesi
þegar hann kemur heim í desemb-
er. Hugmyndina að sýningunni má
rekja til þess að þegar Sasha var að
ljúka námi í Harvard fór Geir Kon-
ráð út til að vera hjá henni. Þar
datt hann niður á áhugaverða ís-
lenska ættfræði í ljóðabók á bóka-
safni skólans. „Hér áður fyrr var
það áhugamál kóngafólks að tengja
sig við Biblíuna og rekja ættir sínar
aftur til þess tíma. Með góðri að-
stoð þarna á bókasafninu náði ég að
finna út tengingu mína við Adam
og Evu en það eru 142 nöfn á milli
okkar. Það er engin þjóð sem á jafn
auðvelt með að rekja ættir sínar inn
í þennan lygavef og við Íslending-
ar því við eigum svo góðar heim-
ildir,“ segir Geir Konráð og hlær.
„En í sýningunni ætla ég að segja
söguna Frá Eden til Íslands og er
nú skemmtilegt að segja frá því að
við Íslendingar erum allir komn-
ir af vonda kallinum í Gamla testa-
mentinu. Þetta verður allt útskýrt í
sýningunni,“ segir Geir Konráð að
endingu. arg
Í desember þegar Geir Konráð kemur til Íslands í frí hyggst hann setja upp sýningu
í Landnámssetrinu en hann hefur áður sett upp sýningar þar. Hér er mynd af
honum frá því hann setti upp sýninguna Svarta galdur. Ljósm. úr safni.