Skessuhorn


Skessuhorn - 25.09.2019, Síða 25

Skessuhorn - 25.09.2019, Síða 25
MIÐVIKUDAGUR 25. SEptEMBER 2019 25 Elsa María Guðlaugs Drífudóttir var í sumar ráðin til eins árs í starf fréttamanns RÚV á Vesturlandi og Vestfjörðum. Halla Ólafsdóttir hef- ur sinnt starfinu frá árinu 2015 en er nú í barneignarleyfi. Elsa María er fædd og uppalin á Akranesi þar sem hún gekk í skóla og lauk stúd- entsprófi frá Fjölbrautaskóla Vest- urlands áður en hún fór til Reykja- víkur í Myndlistarskólann. Þá hef- ur hún lokið námi við Listaháskól- ann og nú síðast var hún formað- ur Landssamtaka íslenskra stúdenta og er þetta frumraun Elsu Maríu á sviði fjölmiðlunar. „Ég hef mik- inn áhuga á fólki og þessi landshluti þykir mér sérstaklega spennandi og þekki hann vel. Ég kem sjálf af Vesturlandi og á ættir að rekja á Vestfirði. Þegar ég sá þetta starf svo auglýst fannst mér þetta eitthvað sem ég myndi vilja prófa,“ seg- ir Elsa María í samtali við Skessu- horn. Elsa María hefur komið sér vel fyrir á starfsstöð RÚV í Borgarnesi. „Ég hef svona verið að koma mér fyrir og kynnast starfinu en svo hef ég verið á þvælingi hingað og þang- að að heilsa fólki og sýna mig. Það er ýmislegt í gangi á þessu svæði, mik- il uppbygging og mörg spennandi verkefni sem ég hef verið að kynna mér. Ég fer einu sinni í mánuði til Ísafjarðar þaðan sem ég flyt fréttir auk þess sem ég mun þvælast um allt svæðið og segja frá því sem efst er á baugi hverju sinni. Ég sé ekki fram á að það verði dauður tími hjá mér næsta árið og hlakka bara til að tak- ast á við þetta,“ segir hún. arg Reynir Hauksson flamengógítarleikari. Ljósm. úr safni. Vinna við fjárhagsáætlun sveitarfé- laga stendur sem hæst þessi miss- erin. Sveitarstjórnarfólk um allt land vinnur nú að því að rýna í fjár- hagsstöðu síns sveitarfélags og for- gangsraða fjárheimildum til mála- flokka, framkvæmda og fjárfest- inga. Stærstur hluti af ráðstöfun- artekjum sveitarfélagsins fer í að standa straum ef þeim kostnaði sem fellur undir þá grunnþjónustu sem sveitarfélaginu ber að sinna. Öðr- um verkefnum og fjárfestingum er forgangsraðað eftir áherslum póli- tískra fulltrúa á hverjum tíma. Líðan ungs fólks Andleg og líkamleg heilsa barna og unglinga er grunnurinn að vel- ferð þeirra í lífinu. Á síðasta sveit- arstjórnarfundi lagði ég til að sveit- arstjórn í Borgarbyggð myndi sam- einast um að leggja sérstaka áherslu á stuðning við íþrótta- og tóm- stundastarf barna og unglinga í sveitarfélaginu til framtíðar ásamt því að leggja meiri þunga í forvarn- arstarf. Mikil umræða hefur verið síðasta árið um líðan barna og ung- linga hér á landi ásamt almennri vakningu í samfélaginu um and- lega sjúkdóma, eins og þunglyndi og kvíða, auk staðreynda um aukna lyfjanotkun ungmenna og skelfileg- ar afleiðingar sem þær hafa vald- ið. Þökk sé þeim sem hafa opnað á þessa umræðu. Fjölmargar rannsóknir hafa sýnt fram á að reglubundin hreyfing get- ur dregið verulega úr þunglyndi og kvíða, rannsóknir sýna einnig fram á minni einkenni þunglyndis og annarra geðraskana hjá einstakling- um sem stunda reglubundna hreyf- ingu. Einnig hefur það komið fram að sterk tengsl eru á milli jákvæðrar sjálfsmyndar í æsku og getu til að setja sér markmið og þess að takast á við erfileika í daglegu lífi á full- orðinsárum. En hvað getum við sem sveitar- félag gert til þess að vinna að því að börnin okkar vaxi og dafni sem sterkir einstaklingar? Það er sam- eiginlegt verkefni á ábyrgð okk- ar allra sem komum að uppeldi og umhverfi barna á einn eða annan hátt að vinna að því að þeim líði vel í eigin skinni og dafni sem ábyrgir og sterkir einstaklingar. Sýni þraut- seigju í daglegum verkefnum og temji sér umburðarlyndi og virð- ingu gagnvart umhverfinu og öðr- um. Eins og sagt hefur verið oft áður, það þarf heilt samfélag til að ala upp barn. Sjálfboðaliðastarfið ómetanlegt Um allt land hafa sjálfboðaliðar unnið óteljandi vinnustundir til að halda úti íþrótta- og tómstunda- starfi. Saga skipulagðs íþrótta- starfs fyrir börn og unglinga á sér langa sögu í Borgarbyggð. Að- staða til íþróttaiðkunar í sveitarfé- laginu hefur verið að byggjast upp á löngum tíma og hefur tekið mið af öllum þeim fjölbreyttu íþrótta- greinum sem hafa verið stundaðar af kappi hér um áraraðir. Íþrótta- og tómstundastarf sem hefur ver- ið drifið áfram af þrautseigju og óeigingjörnu sjálfboðaliðastarfi foreldra og aðstandenda barna. Um allt land hefur fólk unnið óteljandi vinnustundir í sjálfboða- liðavinnu til að halda úti íþrótta- og tómstundastarfi. Sjálfboðaliða- starf sem oft á tíðum er ekki öll- um sýnilegt og eflaust ekki margir sem hafa gert sér í hugarlund hver staðan væri t.a.m. í okkar sveitar- félagi ef ekki hefði verið fyrir það óeigingjarna starf sem fólk hefur unnið til að halda upp starfsem- inni frá upphafi iðkunnar. Greinar eiga undir högg að sækja Hvernig verður staðan þegar við höfum ekki alla þessa sjálfboðaliða sem halda uppi starfinu? Hvernig samfélag verður Borg- arbyggð ef börnum og unglingum mun ekki standa lengur til boða að stunda íþróttir? Kostnaður við rekstur hjá íþróttafélögum hefur aukist síð- ustu ár. Öll umgjörð um þjálfun barna og starfsemi íþróttafélaga í dag tekur mið af þeim eðlilegu kröfum sem gerðar eru til þeirra sem hafa með börnin okkar að gera í frístundum. Það er stað- reynd sem við verður að horfast í augu við að í nútíma samfélagi þar sem lífsmynstur fólks er fjölbreytt að alltaf verður erfiðara að fá fólk til að vinna sjálfboðaliðastörf. Þetta á við um hvaða félagsstarf sem er. Þeim fækkar einstakling- unum sem gefa kost á sér í þessi störf og hættan er sú þeir fáu sem eftir eru gefist upp. Hvað þá? Við erum þegar farin að sjá að ákveðn- ar greinar eiga undir högg að sækja eins og t.d. sunddeild Skallagríms sem hefur ekki getað boðið uppá sundæfingar eins og áður. Aukin kostnaðarþátt- taka nauðsynleg Undirrituð telur nauðsynlegt að sveitarfélagið Borgarbyggð – Heilsueflandi samfélag, geri áætl- un til framtíðar og fjárfesti í heilsu og velferð barnanna okkar með markvissri uppbyggingu sjálfs- myndar og áherslu á aukin lífs- gæði. Kostnaður við rekstur á barna- og unglingastarfi í t.a.m. knatt- spyrnu og körfubolta er um 8 - 12 milljónir króna á ári. Framlag sveitarfélagsins til reksturs barna- og unglingastarfs er í dag rétt um 6% af kostnaði, hluti kostnaðar næst með æfingagjöldum, en það skiptir tugum milljóna á hverju ári sem íþróttafélögin þurfa að afla gegnum fjáraflanir ýmiskonar og reiða sig á styrki frá fyrirtækjum. Sveitarfélagið verður að byggja áætlanir sínar til framtíðar á því að kostnaðarþátttaka verði aukin í rekstri íþrótta- og tómstunda- starfs barna. Sveitarfélagið gæti t.a.m. létt á íþróttafélögunum með því að standa í meira mæli straum af kostnaði við þjálfun og þjálfara- námskeið. Við höfum með þekk- ingu og reynslu fagfólks ótal tæki- færi til að vinna á heildrænan og markvissan hátt með þverfagleg- um aðgerðum að því að stuðla að heilbrigði barna og unglinga. Það er okkar viðfangsefni að skapa að- stæður og efla vitund í okkar sam- félagi sem gera fólki auðvelt að stunda heilsueflandi líf. Forvarnir og lýðheilsa eiga ekki að falla und- ir skammtímaverkefni eða átök. Við höfum ekki efni á að glata því starfi sem hefur verið unnið í uppbyggingu á íþrótta- og tóm- stundastarfi í sveitarfélaginu. Ver- um ábyrg og framsækin. Hér þarf að horfa til framtíðar, ávinning- urinn verður skýr þegar fram líða stundir. Fjárfestum í heilsu og vel- líðan barnanna. Guðveig Lind Eyglóardóttir Höf. er oddviti Framsóknarflokks í sveitarstjórn Borgarbyggðar. Pennagrein Fjárfestum í heilsu og vellíðan barna Elsa María flytur fréttir af Vesturlandi og Vestfjörðum Elsa María er nýr fréttamaður RÚV á Vesturlandi og Vestfjörðum. Ljósm. úr safni/ LÍS. Flamengóplata í farvatninu hjá Reyni Reynir Hauksson, gítarleikari frá Hvanneyri, hefur undanfarin ár numið flamengógítarleik í Granada á Spáni. Undanfarin sumur hefur Reynir ferðast um Ísland og kynnt land og þjóð fyrir flamingótón- listinni. Nú stefnir hann að upp- tökum á flamengóplötu, sem mun verða fyrsta hljóðritun Íslendings á flamengótónlist. Reynir stefnir að því að taka upp níu frumsamin lög með hjálp nokkurra af færustu flamengótónlistarmönnum Anda- lúsíuhéraðs. Má þar nefna söngv- aranna Jacób de Carmen og gítar- snillinginn Jorge el pisao, sem léku einmitt flamengó með Reyni á tón- leikum í Kópavogi á liðnu sumri. Lögin eru í mismunandi útsetn- ingum; fyrir einleiksgítar, með- leikur með söng þar sem Jacób de Carmen syngur, en einnig lög með slagverki og jafnvel dansi. platan verður tekin upp í lifandi flutn- ingi í hljóðferi FJR í Granada, þar sem margir af helstu samtímalista- mönnum flamengósins hafa hljóð- ritað sínar plötur. Útgáfutónleikar verða í Granada og á Íslandi, þar sem allir sem leika á plötunni munu koma fram. platan mun heita El Reino de Granda, eða Konungsrík- ið Granada, til heiðurs þessu lands- svæði á Spáni. Reynir safnar nú fyrir hljóðrit- un plötunnar á Karolina Fund. Þar geta áhugasamir heitið á verkefnið gegn umbun sem getur verið allt frá plötunni á geisladisk og miða á útgáfutónleikana til einkatónleika og stóra pakkans sem inniheldur m.a. útsetningu lags að eigin vali í falmengostíl til flutnings á einka- tónleikum sem einnig fylgja pakk- anum, ásamt fleiru. kgk Umsóknarfrestur á haustönn 2019 er til 15. október n.k. Nemendur á framhaldsskólastigi sem ekki njóta lána hjá LÍN geta sótt um styrk til jöfnunar á námskostnaði. Styrkurinn ræðst af búsetu og er fyrir þá sem stunda nám fjarri heimili sínu. Dvalarstyrkur (fyrir þá sem að dvelja fjarri lögheimili og fjölskyldu sinni vegna náms). Styrkur vegna skólaaksturs (fyrir þá sem sækja nám frá lögheimili fjarri skóla). Nemendur og aðstandendur þeirra eru hvattir til að kynna sér reglur um styrkinn á vef LÍN (www.lin.is). Lánasjóður íslenskra námsmanna Námsstyrkjanefnd S K E S S U H O R N 2 01 9 Jöfnunarstyrkur til náms Fréttaveita Vesturlands www.skessuhorn.is

x

Skessuhorn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.