Skessuhorn - 25.09.2019, Síða 26
MIÐVIKUDAGUR 25. SEptEMBER 201926
Síðatliðinn sunnudag fór Þjóðahátíð Vestur-
lands fram í íþróttahúsinu á Jaðarsbökkum
á Akranesi. Sem fyrr var það Félag nýrra Ís-
lendinga sem stóð fyrir hátíðinni undir for-
ystu pauline McCarthy formanns félagsins.
Dagskráin hófst með því að Bára Daðadóttir
bæjarfulltrúi á Akranesi bauð gesti velkomna
og setti hátíðina. Kynnir var Guðrún Vala El-
ísdóttir og stýrði hún dagskrá.
Jin Zhijian sendiherra Kína á Íslan-
di ávarpaði gesti en því næst tók við fjöldi
dans- og söngatriða. Boðið var upp á búlgar-
skan dans, thai dans, spænskan og filippey-
skan söng, rapp, bollywood dans og fleira.
Sérstakur gestur, Mahendra patel, kom frá
Englandi og hélt deginum áður námskeið í
afrískum og indverskum trommuslætti. Var
afrastur námskeiðsins kynntur á hátíðinni.
Fulltrúar tuttugu landa kynntu menningu
sína í mat og drykk en flestir sýnenda eru bú-
settir á Vesturlandi. Góð stemning var í höl-
linni og fjölmargir sem kynntu sér siði og
venjur ólíkra landa.
mm
Fjölmenni mætti á Þjóðahátíð Vesturlands
Jin Zhijian sendiherra Kína, Pauline McCarthy, Guðrún Vala Elísdóttir og Bára Daðadóttir. Kínverskt letur fært á blað.
Borð svignuðu undan búlgörskum réttum sem bornir voru fram.
Ýmsir afrískir smáhlutir voru til sýnis og sölu en afraksturinn rennur til skólastarfs
í Kenýa.
Börn sýna dans.
Pólskir þjóðarréttir.
Þessi biðu eftir að röðin kæmi að þeim í dansinum.
Aníta Björk Gunnarsdóttir var mætt með þríburana sína.
Þær kynntu mat frá Dóminíska lýðveldinu. Þær kynntu og seldu handverk sitt.
Blóm skorin út í vatnsmelónur.
Gleðin við völd.