Skessuhorn


Skessuhorn - 25.09.2019, Blaðsíða 31

Skessuhorn - 25.09.2019, Blaðsíða 31
MIÐVIKUDAGUR 25. SEptEMBER 2019 31 Skagamenn gerðu jafntefli við HK, 1-1, þegar liðin mættust í næst- síðustu umferð pepsi Max deild- ar karla í knattspyrnu. Leikið var í Kópavogi á sunnudaginn. Leikurinn byrjaði fjörlega og HK-ingar voru heilt yfir frískari framan af fyrri hálfleik. Emil Atl- ason komst einn í gegn eftir mis- tök í vörn ÍA eftir rúmlega kort- ers leik en skaut beint á Árna Snæ Ólafsson í markinu. Skömmu síð- ar átti Alexander Freyr Sindrason skot af markteignum en Árni Snær varði vel frá honum. Á 20. mínútu átti Arnþór Ari Atlason þrumuskot í stöng Skagamanna eftir þunga sókn heimamanna. Stuttu síðar náðu Skagamenn snarpri sókn, sem endaði með því að Bjarki Steinn Bjarkason átti skot úr teignum sem small í stönginni og aftur fyrir endamörk. Skömmu fyrir lok fyrri hálfleiks fengu heimamenn dauðafæri, þegar Emil skallaði bolt- ann rétt yfir markið eftir góða fyrir- gjöf frá Herði Árnasyni. Heimamenn komu mjög ákveðn- ir til síðari hálfleiks. Árni Snær varði vel frá Birki Snæ Ingasyni á 52. mín- útu en kom engum vörnum við fjór- um mínútum síðar þegar HK-ing- ar komust yfir. Birnir Snær Inga- son átti skot í varnarmann, boltinn hrökk út í teiginn á Arnþór Ara sem smellti honum þéttingsfast í mark- hornið vinstra megin. Heimamenn voru nálægt því að bæta öðru marki við tíu mínútum síðar, þegar Ás- geir Marteinsson átti hörkuskot að marki sem Árni Snær varði vel. Meiri þungi færðist í sóknarleik Skagamanna síðasta hálftímann, án þess þó að skila mörgum opn- um marktækifærium. Sindri Snær Magnússon fékk þó gott færi á 67. mínútu en skot hans úr vítateignum hafnaði í varnarmanni. Undir lok leiksins dró til tíðinda, þegar brot- ið var á Marcusi Johanssen í teign- um og Skagamönnum dæmd víta- spyrna. tryggvi Hrafn Haraldsson fór á punktinn og skoraði með góðu skoti. Litlu munaði að Skagamönnum tækist að stela sigrinum í uppbótar- tíma. Fyrst átti Viktor Jónsson skot rétt framhjá af stuttu færi og síðan átti tryggvi skot sem einnig fór rétt framhjá markinu. Lokatölur voru 1-1 og Skaga- menn sitja eftir leikinn í 8. sæti deildarinnar með 27 stig, jafn mörg og HK í sætinu fyrir ofan en stigi á undan Val. Næsti leikur Skaga- manna fer fram laugardaginn 28. september, þegar þeir mæta Vík- ingi R. á Akranesvelli. Sá leikur er jafnframt lokaleikur tímabilsins. kgk Íslansdsmeistaramótið í línuklifri var haldið í klifuraðstöðu Smiðju- loftsins á Akranesi síðastliðinn laugardag. Sjö klifrarar frá ÍA tóku þátt í mótinu og tveir þeirra unnu til verðlauna. Sylvía Þórðarsdóttir hafnaði í öðru sæti í flokki C eft- ir mikla baráttu. Það var ekki fyrr en eftir fjóra bráðabana að Sylvía náði að tryggja sér silfurverðlaun- in. Brimrún Eir Óðinsdóttir, sem var að klifra í fyrsta skipti í fullorð- insflokki, tryggði sér bronsið eftir þrjár erfiðar klifurleiðir. Næst á dagskrá hjá Klifurfélagi Akraness er þriðja grjótglímumót vetrarins eftir rétt tæpar tvær vikur. kgk/ Ljósm. ki. Víkingur Ó. sigraði Njarðvík í loka- leik Inkasso deildar karla í knatt- spyru á Ólafsvíkurvelli á laugardag. Leikurinn var mikill markaleik- ur og þegar lokaflautan gall höfðu Ólafsvíkingar skorað fjögur mörk gegn tveimur mörkum gestanna. Heimamenn voru mun sterkari í fyrri hálfleik. Þeir komust yfir strax á 5. mínútu leiksins þegar Vignir Snær Stefánsson skoraði eftir horn- spyrnu Grétars Snæs Gunnarsson- ar. Á 23. mínútu bættu þeir öðru marki við og var það af dýrari gerð- inni. Harley Willard fékk nægan tíma á miðjum vallarhelmingi gest- anna. Hann sneri inn á völlinn og smellti boltanum upp í samskeytin af 25 metra færi. Glæsilegt mark hjá Harley. Víkingsliðið réði lögum og lof- um á vellinum undir lok fyrri hálf- leiks og bæði Harley og Vignir voru nálægt því að bæta við marki fyrir heimamenn. Á 42. mínútu kom síð- an þriðja mark Ólafsvíkinga. Har- ley fór illa með varnarmann Njarð- víkinga áður en hann sendi fyrir markið á Martin Cristian Kuittinen sem átti ekki í vandræðum með að skalla boltann í netið. Staðan var 3-0 í hálfleik en gest- irnir voru þó ekki af baki dottnir. Á 54. mínútu minnkuðu þeir muninn, þegar Kenneth Hogg skoraði með laglegum skalla eftir sendingu Stef- áns Birgis Jóhannessonar. Stefán skoraði síðan sjálfur á 62. mínútu þegar hann tók boltann viðstöðu- laust og þrumaði upp í markvink- ilinn. Glæsilegt mark hjá Stefáni og Njarðvíkingar búnir að hleypa spennu í leikinn. Ólafsvíkingar voru hins veg- ar fljótir að slökkva í vonum gest- anna. Strax í næstu sókn fór Guð- mundur Magnússon illa með varn- armenn Njarðvíkinga, sem endaði með því að hann var felldur í teign- um og vítaspyrna dæmd. Harley fór á punktinn og skoraði af miklu ör- yggi framhjá Brynjari Atla Braga- syni í markinu, sem veðjaði á rétt horn en var aldrei nálægt því að verja. Ólafsvíkingar voru betra lið vall- arins síðasta hálftímann og áttu nokkrar ágætis tilraunir til að bæta við marki seint í leiknum sem fóru forgörðum. En það kom ekki að sök, Víkingur kvaddi Íslandsmót- ið að þessu sinni með 4-2 sigri á heimavelli. Ólafsvíkingar ljúka keppni í fjórða sæti deildarinnar með 34 stig, jafn mörg og Keflavík og Þór í sætunum fyrir neðan en sex stigum á eftir Leikni. Liðið sigraði í níu leikjum, gerði sjö jafntefli og tapaði sex að þessu sinni og leikur aftur í næstefstu deild að ári. kgk Valdís Þóra Jónsdóttir hafnaði í 19. sæti á opna Lacoste Ladies mótinu í golfi sem fram fór í Frakklandi um helgina. Mótið er hluti af LEt Evr- ópumótaröðinni, sterkustu móta- röð kvenna í Evrópu. Valdís byrjaði mótið illa, fór fyrsta hringinn á 79 höggum, eða átta yfir pari. Hún náði heldur betur að snúa við taflinu á öðrum hring. Á honum lék Valdís frábært golf og lauk hon- um á 66 höggum, eða fimm undir pari. Síðustu tvo hringi mótsins lék hún af öryggi, á samtals einu höggi undir pari. Hún lauk því leik á sam- tals tveimur höggum yfir pari og lauk keppni í 19. sæti mótsins. kgk Jöfnuðu á ögurstundu Tryggvi Hrafn Haraldsson jafnaði metin úr vítaspyrnu undir leikslok. Ljósm. gbh. Sneri við taflinu í Frakklandi Valdís Þóra Jónsdóttir einbeitt á svip í mótinu í Frakklandi. Vignir Snær Stefánsson fagnar eftir að hafa komið Ólafsvíkingum yfir í upphafi leiks. Ljósm. af. Kvöddu mótið með stæl Teflt á tæpasta vað á Íslandsmeistaramótinu í línuklifri. Kepptu í línuklifri á Akranesi Keppt í krefjandi braut í mótinu. Hér er Sylvía á uppleið. Klifur krefst ekki síst mikillar einbeitingar.

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.