Skessuhorn


Skessuhorn - 23.10.2019, Blaðsíða 28

Skessuhorn - 23.10.2019, Blaðsíða 28
MIÐVIKUDAGUR 23. oKTóBER 201928 Vörur og þjónusta R E S T A U R A N T Upplýsingar í síma: 430 6767 R E S T A U R A N T Upplýsingar í síma: 430 6767 H P Pípulagnir ehf. Alhliða pípulagnaþjónusta Hilmir 820-3722 Páll 699-4067 hppipulagnir@gmail.com SK ES SU H O R N 2 01 8 Fyrir alla vigtun Húsarafmagn Töflusmíði Iðnaðarrafmagn Bátarafmagn Bílarafmagn RAFMAGN vogir@vogir.is Sími 433-2202 VOGIR Bílavogir Kranavogir Skeifuvogir Pallvogir Aflestrarhausar Hönnun prentgripa & alhliða prentþjónusta Drei bréf - Boðsbréf Ritgerðir - Skýrslur Reikningar - Eyðublöð Umslög - Bréfsefni Fjölritunar- og útgáfuþjónustan Getum við aðstoðað þig? sími: 437 2360 olgeirhelgi@islandia.is • Bílasprautun • Bílaréttingar • Framrúðuskipti BÍLASPRAUTUN VESTURLANDS S: 860-0708 • Smiðjuvellir 7, Akranesi • bv.sprautun@gmail.com Vinnum fyrir öll tryggingafélög Hljómlistarsjóður Steinars Guð- mundssonar frá Hamraendum var stofnaður árið 1966, til minning- ar um Steinar Guðmundsson, sem var fæddur 29. júní 1938 og lést af slysförum í Reykjavík 15. des. 1965. Steinar fæddist og ólst upp á Hamraendum í Miðdölum. Þar var tónlist í hávegum höfð. Gróa Sig- valdadóttir húsfreyja söng í kirkju- kórnum sem eiginmaður hennar, Guðmundur Baldvinsson bóndi stjórnaði. Hann var kirkjuorganisti og samdi ljóð og lög sem nokkur hafa varðveist. Steinar var næstyngstur af systk- inunum, sem öll höfðu góða tón- listarhæfileika. Steinar fór ungur að leika á hljóðfæri á samkomum um Dali og víðar, við miklar vin- sældir og hafði fest kaup á Cordo- vox harmoniku, sem var með þeim bestu sem völ var á þá. Það má segja að í framhaldi af stofnun hljómlistarsjóðsins hefjist umræður um stofnun tónlistarskóla í Dalasýslu, sem varð svo að veru- leika 10 árum seinna, 1976. Í stjórn sjóðsins frá stofnun 1966 og til 2009 voru Brynjólfur Aðal- steinsson, Sigvaldi Guðmundsson, Skjöldur Stefánsson og Magnús Kristjánsson. Árið 2018 ákvað stjórnin að leggja sjóðinn niður enda hefur hann eng- an fastan tekjustofn og vinum og samferðamönnum Steinars fækk- ar nú óðum. Einnig var ákveðið að eignir sjóðsins rynnu til harmon- ikufélagsins Nikkolínu og verði þá til styrktar tónlistarlífi í Dalasýslu. Síðustu stjórn skipuðu Magnús Kristjánsson frá Seljalandi, Sigvaldi Guðmundsson frá Kvisthaga og Halldór Þ. Þórðarson á Breiðaból- stað. Halldór Þ. Þórðarson Að venju hefur Snorrastofa gefið út skrá yfir viðburði vetr- arins. Skráin greinir frá margs konar viðfangsefnum, sem viðruð verða í fyrirlestrum, dagskrám, samverustundum, námskeiðs- og kvæðakvöld- um. Leiðarljós þessa starfs er skipulagsskrá stofnunar- innar, þar sem kveðið er svo að orði: „Stofnunin stuðl- ar að rannsóknum og veit- ir fræðslu um norræna sögu og bókmenntir sem tengjast Snorra Sturlusyni og Reyk- holti. Stofnuninni er einnig ætlað að kynna sögu Borgar- fjarðarhéraðs sérstaklega“. Einkunnarorð viðburða í Snorrastofu eru fjölbreyti- leiki, þar sem tekið er á málefnum allt frá miðöld- um til nútímans af sjónar- hóli lærðra og leika. Þannig vekur og eflir Snorrastofa þá menningu og mennt- un, sem lifað hefur í gegn- um aldir í Reykholti og átt jafnan undirstöður sínar í þátttöku almennings. Þá er í skránni einnig yfirlit yfir aðstöðu og þjónustu Snorrastofu að ógleymdri líflegri bókaútgáfu henn- ar. Vert er að geta um nýj- ustu bókina, Reykholt í ljósi fornleifanna, en það er íslensk samantekt Guð- rúnar Sveinbjarnardótt- ur á fonleifarannsóknum á staðnum, sem áður hafa birst á ensku. Fluttir verða fyrirlestrar um forn fræði, námskeið vetrarins verð- ur um Sturlu Þórðarson og Sturl- ungu, lokum Reykholtsverkefnisins verður fagnað og fjallað verður um þekkta Borgfirðinga eins og Reyk- hyltinga 1569-1807, Þórð Krist- leifsson frá Stóra-Kroppi og Sigríði Pálsdóttur, systur sr. Einars Páls- sonar í Reykholti. Þá verður einnig greint frá gerð glugga í Reykholts- kirkju, fjallað um kirkjur og kirkju- gripi í Borgarfjarðarhéraði og nýjar rannsóknir á samfélagsmálefninu, mennta- og menningarstofnunum á landsbyggðinni. Þá verður einnig kallaður til afreksmaður af Skagan- um, sem klifið hefur fjallið Everest og gönguhópur segir frá ferð sinni í kringum fjallið Mont Blanc. Þann- ig má segja að verkefnaskráin hafi teygt sig til áhugamála grasrótar- innar, sem umlykur stofnunina og auðgað hefur hana með þátttöku sinni. Bókhlaðan býður yngstu borgurunum til sögustundar í Nor- rænu bókmenntavikunni þar sem Dagur íslenskrar tungu hvílir og fleiri munu njóta góðs af gestum þeirrar viku, sem ætlað er að að efla lestrargleði og breiða út norrænar bókmenntir. Ekki má gleyma vinsæla Prjóna- bóka-kaffinu, sem er hálfsmánaðar- lega í Bókhlöðunni þar sem notaleg baðstofustemning ríkir við hann- yrðir, kaffisopa, líflegar umræður, upplestur og fróðleik. Skráin vitnar einnig um gjöf- ult samstarf Snorrastofu við félög og stofnanir, svo sem Reykholts- kirkju, Reykholtshátíð, Kvæða- mannafélagið Snorra í Reykholti, félagsheimilið og upplýsingamiðstöðina Brúarás, Sturlufélagið, Landnámssetrið, Sí- menntunarmiðstöðina á Vestur- landi og Litlu menntabúðina. Litla menntabúðin er ánægjuleg viðbót í Reykholti undir stjórn Halldórs G. Bjarnasonar og Ingibjargar Krist- leifsdóttur, sem skipuleggur fjöl- breytt námskeið fyrir hópa og ein- staklinga. Upplýsingar um starf Menntabúðarinnar er á vef hennar, litlamenntabudin.heimskringlan.is Snorrastofa veitir upplýsingar um starf sitt á vefsíðu stofnunar- innar og þar má einnig fylgjast með öðrum viðburðum svo sem tón- leikum og helgihaldi í Reykholts- kirkju. -fréttatilkynning Eignir hljómlist- arsjóðs renna til Nikkolínu Viðburðaskrá Snorrastofu komin út

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.