Skessuhorn


Skessuhorn - 23.10.2019, Blaðsíða 24

Skessuhorn - 23.10.2019, Blaðsíða 24
MIÐVIKUDAGUR 23. oKTóBER 201924 Fjölmenningarhátíð var haldin í Klifi í ólafsvík síðastliðinn sunnu- dag. Var þetta í fimmta skipti sem hátíðin er haldin og tókst mjög vel til í ár. „Við náðum að fylla Klifið,“ sagði Rebekka Unnarsdóttir verk- efnastjóri Átthagastofu í samtali við Skessuhorn. Á hátíðinni býðst gest- um að smakka þjóðarrétti frá ýms- um löndum en í ár voru hópar frá sex þjóðum sem buðu upp á mat; fólk frá Póllandi, Bosníu, Noregi, Þýskalandi, Rúmeníu og Íslandi. „Þetta gekk allt rosalega vel og ég veit ekki betur en allir hafi ver- ið mjög ánægðir. Skemmtiatrið- in voru líka mjög flott og matur- inn góður, en mikill metnaður var lagður í allt,“ segir Rebekka. Þá voru fáein félög sem settu upp kynningarbása á hátíðinni og kynntu þar starfsemi sína fyrir íbú- um. Kvenfélag ólafsvíkur var með bás auk þess sem Símenntunarmið- stöðin, Svæðisgarðurinn Snæfells- nes, Krabbameinsfélögin á svæðinu, félags- og skólaþjónustan, Þjóð- garðurinn Snæfellsjökull, HSH og ungmennafélagið Víkingur/Reynir voru með kynningarbása. „Krakk- ar frá Grunnskóla Snæfellsbæjar sýndu verkefni sín sem þau gerðu í tengslum við menningarmót sem haldið var í skólanum í vikunni fyr- ir hátíðina,“ segir Rebekka. Sorop- timistaklúbbur Snæfellsness sá um að hella upp á kaffi, hreinsa rusl, vaska upp og aðstoða á meðan á há- tíðinni stóð. „Þetta er annað árið í röð sem þær taka þetta verkefni að sér og dýrmætt að njóta vinnu- semi þeirra og mikil hjálp þar sem allt þarf að gerast hratt á meðan há- tíðin stendur yfir,“ segir Rebekka ánægð. arg/ Ljósm. Pólska félagið á Snæfellsnesi. Sýningin Maximus Músikús trítlar í tónlistarskólanum verður sett upp í Tónbergi af nemendum og kenn- urum Tónlistarskólans á Akranesi ásamt sögumanni og myndasýn- ingu fimmtudaginn 24. október. Maximus tónlistarmús er sköp- unarverk Hallfríðar ólafsdóttur og Þórarins Más Baldurssonar og í þessari sýningu er músin fjöruga stödd í tónlistarskóla og flækist þar á milli og segir frá mismunandi hljóðfærum og tónlist á skemmti- legan hátt. Þrjár skólasýningar verða á fimmtudag fyrir fimm til sjö ára börn og svo opin sýning kl. 17.00 þar sem allir eru velkomnir meðan húsrúm leyfir. -fréttatilkynning Margrét Guðmundsdóttir skóg- arbóndi deildi nýverið skemmti- legri mynd á síðu Félags skógar- bænda á Vesturlandi. Hún hef- ur tínt reyniber og leggur þau til á greinar annarra trjáa fuglum til hægðarauka. Með þessu móti auð- veldar hún fuglunum að éta berin og þar af leiðandi eykur líkur á að fræ dreifist sem víðast. Skemmtileg tilraun, sem Margrét segir að virki prýðilega. mm Maximus trítlar í tón- listarskólann á Akranesi Nýstárleg leið til fræ- dreifingar Fólk nýtti tækifærið til að klæða sig upp í þjóðbúninga. Fylltu Klifið á Fjölmenningarhátíð Boðið var upp á andlitsmálun fyrir börnin. Ljósm. þa Klifið var fullt af fólki á sunnudaginn. Boðið var upp á þjóðarrétti frá ýmsum löndum. Sex þjóðir kynntu sitt land fyrir gestum. Gestir hátíðarinna voru ánægðir með daginn. Þessi tvö kynntu sitt land fyrir gestum. Ljósm. þa

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.