Skessuhorn


Skessuhorn - 23.10.2019, Blaðsíða 13

Skessuhorn - 23.10.2019, Blaðsíða 13
MIÐVIKUDAGUR 23. oKTóBER 2019 13 VR óskar eftir orlofshúsum VR óskar eftir að leigja vönduð sumar hús eða orlofsíbúðir til framleigu fyrir félagsmenn sína. Leitað er eftir húsnæði á landsbyggðinni fyrir næsta sumar. Áhugasamir sendi upplýsingar á vr@vr.is fyrir 15. nóvember 2019. Eftirfarandi upplýsingar þurfa að fylgja: VR • Kringlunni 7 • 103 Reykjavík • Sími 510 1700 • vr@vr.is • vr.is • Lýsing á eign og því sem henni fylgir • Ástand íbúðar og staðsetning • Stærð, öldi svefnplássa og byggingarár • Lýsing á möguleikum til útivistar og afþreyingar í næsta nágrenni Öllum tilboðum verður svarað. Íbúar Vesturlands ATH.. Vetrardekkin komin á lager !! Get tekið nánast öll dekk í umfelgun og ballansseringu Er með ný og nákvæm tæki Tímapantaninr í síma 893-7616 Hjólbarðaverkstæðið í Nýja-Bæ Bæjars- veit Kveðja Kiddi Nýja-Bæ ,,Hjartað í fjallinu“ er tónlistardag- skrá sem flutt verður í Reykholts- kirkju laugardaginn 2. nóvember nk. tileinkuð listamanninum Páli Guðmundssyni á Húsafelli sem fagnaði sextíu ára afmæli fyrr á þessu ári. Flytjendur eru Kammer- kór Suðurlands undir stjórn Hilm- ars Arnar Agnarssonar ásamt Reyk- holtskórnum undir stjórn Viðars Guðmundssonar. Ýmis hljóðfæra- leikarar leika með. Meðal annarra Herdís Anna Jónsdóttir víóluleik- ari og slagverksleikarar úr Sinfón- íuhljómsveit Íslands, þeir Frank Aarnink og Steef van oosterho- ut sem leika á steinhörpur Páls, ásamt honum sjálfum. Þá hefur Páll hannað ýmis hljóðfæri, þ.á.m. panflautur úr rabarbara, sem hann leikur sjálfur á. Borgfirðingurinn Hjörtur Hjartarson frá Fljótstungu leikur einnig á ýmsar flautur Páls. Nýjustu hljóðfæri hans eru síðan steinflautur sem leikið verður á nú í fyrsta sinn opinberlega. Kammerkór Suðurlands og Hilmar Örn hafa verið í farsælu samstarfi við Pál um árabil. Í júní síðastliðnum heiðraði kórinn Pál í tilefni sextugs afmælis hans á Sönghátíð í Hafnarborg með flutn- ingi fjölmargra laga hans í útsetn- ingum ýmissa tónskálda, þ.á.m. Þóru Marteinsdóttur, Abélia Nor- dmann, Iveta Licha og Hilmari Erni, stjórnanda kórsins. Páll leik- ur og semur tónmyndir á nátúru- hljóðfæri sín á einstakan og óhefð- bundinn hátt. Samspil tóna og texta er afar sterkt, enda eru náttúran og Páll eitt þegar kemur að list hans. Kammerkór Suðurlands hefur frumflutt margar tónmyndir Páls m.a. á Listahátíð í Reykjavík 2014 og við Verðlaunaafhendingu Norð- urlandaráðs í Hörpu 2016 sem sjón- varpað var beint á Norðurlöndum. Þar var flutt verk Páls Norðurljós, við ljóð Einars Benediktssonar, sem mun hljóma í flutningi beggja kór- anna á þessum tónleikum. Aðspurður segir Páll að hann hlakki mikið til tónleikanna og er þakklátur fyrir þann heið- ur sem honum er sýndur af lista- fólkinu. Ljóðin við verk Páls eru í flestum tilfellum ort til hans eða um hann, eins og t.d. titillag tón- leikanna ,,Hjartað í fjallinu” eftir Um helgina var undirritaður kjara- samningur milli fimm stéttarfélaga innan Bandalags háskólamanna og fjármála- og efnahagsráðherra fyr- ir hönd ríkissjóðs. Helstu tíðindi samningsins eru að vinnutími verð- ur styttur og er breytingin í takt við það sem samið var um á almenn- um vinnumarkaði í vor. Markmið styttingarinnar er að bæta vinnu- staðamenningu og starfsumhverfi starfsfólks. Í breytingunum felst líka mikið tækifæri til umbóta í starfsemi ríkisins. Þá var samið um breytingar á sumarorlofi sem nýtast ungu fólki best. Samningurinn stuðlar að bættum lífskjörum, aukinni samræmingu fjölskyldu- og atvinnulífs og trygg- ir áframhaldandi kaupmáttaraukn- ingu. Fram undan er áframhaldandi vinna við gerð samninga við önnur stéttarfélög ríkisstarfsmanna. Alls gerir ríkið um 60 kjarasamninga við um 100 stéttarfélög með um 20 þúsund félagsmenn. Félögin sem samið var við um helgina eru Félag háskólamennt- aðra starfsmanna Stjórnarráðs- ins, Félag íslenskra félagsvísinda- manna, Fræðagarður, Stéttarfélag bókasafns- og upplýsingafræðinga og Stéttarfélag lögfræðinga. Í þeim eru samtals um 2.300 félagsmenn sem starfa á velflestum stofnunum ríkisins. mm Samið um styttri vinnu- viku við fimm stéttarfélög Hjartað í fjallinu Hátíðartónleikar tileinkaðir Páli á Húsafelli sextugum Hér er Páll ásamt hljóðfæraleikurum og útsetjara Norðurljósa, Örlygi Benedikts- syni, og Hilmari Erni kórstjóra. Páll spilar á rabarbaraflautu innan við glugga í slaghörpuhúsinu. Bæjargilið speglast í glugganum. Tónleikarnir nefnast Hjartað í fjallinu. Ljósm. mm. Sigurð Pálsson. Fyrir hlé á tónleik- unum í Reykholtskirkju verða flutt lög Páls, útsett af ýmsum, en allt við ljóð sem ort hafa verið um Pál. Eftir hlé sameinast Reykholtskór- inn Kammerkór Suðurlands. Flutt verður verkið Norðurljósin í heild sinni, lög eftir Pál við ljóð Einars Ben við útsetningu Örlygs Ben. Þetta verk var frumflutt í Elborgar- sal Hörpu þegar Norðurlandaverð- launin voru afhent 2015. mm

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.