Skessuhorn - 23.10.2019, Blaðsíða 22
MIÐVIKUDAGUR 23. oKTóBER 201922
Snæfellsbær kallaði nýverið eftir tillögum íbúa að framkvæmd-
um og viðhaldsverkefnum í sveitarfélaginu á vefsvæðinu Betri
Snæfellsbær. Um var að ræða tilraunaverkefni til eins mán-
aðar til að kanna áhuga íbúa en hugmyndin er að taka á móti
tillögum allt árið. Ekki stóð á svörum íbúa, en 45 fjölbreyttar
og áhugaverðar tillögur bárust og verða þær teknar til form-
legrar meðferðar hjá Tæknideild Snæfellsbæjar og síðar um-
hverfis- og skipulagsnefnd, að því er fram kemur á vef Snæ-
fellsbæjar. Þá segir einnig að tillögur og hugmyndir sem fyrir-
hugað er að framkvæma og setja á fjárhagsáætlun 2020 verði
kynntar sérstaklega.
Eftirfarandi tillögur bárust:
• Laga gangstéttir á Grundarbraut og Hábrekku
• Sáið – framtíðarsýn
• Útilíkamsræktarstöð
• Hjólarampur
• Hundasvæði í Snæfellsbæ
• Afþreying fyrir börn í Rifi
• Skautasvell í miðbæinn
• Trjárækt innan þéttbýlis
• Lýsing á Arnarstapa
• Röst Hellissandi – laga
• Setja handrið á brú við hraðfrystihúsið á Hellissandi
• Laga brú í Bug
• Mini-golf
• Bílastæði og áning á Snagabökkum
• Röstin og íþróttahúsið á Hellissandi
• Áætlun fyrir verndun fuglalífs í Rifi fyrir sumar 2020
• Setja ljós við göngustíga fyrir veturinn
• Sækja um af hörku að fá störf frá ríkinu
• Klára Keflavíkurgötu
• Laga gangstéttar
• Endurbætur á Höskuldsá
• Göngustíg á Arnarstapa
• Auglýsa Snæfellsbæ
• Leita að heitu vatni
• Lýsing við Klifbraut
• Skipulag v/Ólafsbraut
• Laga íþróttahúsið á Hellissandi
• Útbúa vinnuaðstöðu á efri hæð í Röstinni
• Hjólastígur í Bug
• Lýsa upp vegglistaverk á Hellissandi
• Lýðháskóli í Röstina
• Kofabær á sumrin
• Skólagarðar/Kartöflugarðar
• Skjalasafn
• Setja upp myndavélakerfi í þéttbýli
• Laga eða færa félagsmiðstöð
• Magnúsarstígur í Ólafsvík
• Íbúðir fyrir aldraða líkt og eru í Engihlíð
• Halda reglulega íbúafundi
• Tengja saman göngustíga
• Íbúabyggð á Arnarstapa
• Grenndargámar fyrir dreifbýli
• Að halda vörð um störf í bæjarfélaginu
• Setja upp fleiri útivistarbekki
• Fríar lóðir í Snæfellsbæ.
arg
Síðastliðinn laugardag tók Skátafé-
lagið Stígandi í Dölum þátt í ár-
legu alheimsskátamóti á netinu. Að
sögn Kristjáns Elvars Meldal skáta-
foringja er þetta með stærstu skáta-
mótum sem haldin eru í heimin-
um en þetta mun vera í fyrsta skipti
sem Stígandi tekur þátt í móti á
Internetinu. Það gekk þó ekki alveg
hnökralaust fyrir sig þar sem tækni-
mál voru að stríða félagsmönnum
en engu að síður náði hópurinn
að tengjast skátum úr hinum ýmsu
heimsálfum.
Í lok skátamóts fór fram skáta-
vígsla Fálkaskáta og Rekkaskáta og
að endingu sameinuðust skátarnir
við kaffiborðið þar sem boðið var
upp á vöfflur með rjóma og ávöxt-
um.
sm Fálkaskátar vígðir í lok alheimsskátamóts.
Skátafélagið Stígandi á alheimsskátamóti á netinu
Áhugasamir skátar á alheimsskátamóti á netinu.
45 tillögur bárust um Betri Snæfellsbæ