Skessuhorn - 23.10.2019, Blaðsíða 11
MIÐVIKUDAGUR 23. oKTóBER 2019 11
• Bílasprautun • Bílaréttingar • Framrúðuskipti
BÍLASPRAUTUN VESTURLANDS
S: 860-0708 • Smiðjuvellir 7, Akranesi • bv.sprautun@gmail.com
Vinnum fyrir öll tryggingafélög
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
9
Bæjarstjórn Akraness samþykkti 24. september
2019 tillögu að óverulegri breytingu á Aðalskipulagi
Akraness 2005-2017, samkvæmt 2. mgr. 36. gr.
skipulagslaga nr. 123/2010.
Breytingin felst í stækkun skólalóðar (stofnanalóðar) S16
til norðurs, á kostnað íbúðasvæðis Íb13 sem er minnkað til
samræmis við stækkun S16. Greinargerð með rökstuðningi er
á uppdrætti dags. 13. september 2019.
Breytingin hefur verið send Skipulagsstofnun til
staðfestingar. Þeir sem óska nánari upplýsinga geta snúið sér
til sviðstjóra skipulags- og umhverfissviðs eða á
netfangið skipulag@akranes.is.
Bæjarstjóri Akraneskaupstaðar
Breyting á Aðalskipulagi
Akraness 2005-2017
Stækkun skólalóðar í Skógarhverfi
Stykkishólmsbær
Hafnargötu 3
340 Stykkishólmur
Sími: 433-8100
netfang: stykkisholmur@stykkisholmur.is
KT.: 620269-7009
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
9
Breyting á Aðalskipulagi
Stykkishólms 2002-2022
Landnotkunarbreyting við Ögur
Bæjarstjórn Stykkishólmsbæjar samþykkti 18. júní 2019
tillögu að óverulegri breytingu á Aðalskipulagi
Stykkishólms 2002-2022 samkvæmt 2. mgr. 36. gr.
skipulagslaga nr. 123/2010.
Breytingin felst í að óbyggðu svæði við Ögur u.þ.b. 1,4
ha að stærð er breytt í iðnaðarsvæði. Á svæðinu hefur
Stykkishólmsbær starfrækt urðunarstað fyrir óvirkan
úrgang frá árinu 2000. Með þessari breytingu á aðal-
skipulaginu er verið að aðlaga skipulagið að nýtingu
svæðisins til margra ára.
Greinagerð með rökstuðningi er á uppdrætti
dags. 7. maí 2018 í mkv. 1:50.000.
Breytingin verður send Skipulagsstofnun til
staðfestingar. Þeir sem óska nánari upplýsinga geta
snúið sér til skipulagsfulltrúa Stykkishólmsbæjar.
Bæjarstjóri Stykkishólmsbæjar.
Engu er logið þegar sagt er að
harðar deilur séu uppi innan veggja
Fjölbrautaskóla Vesturlands á Akra-
nesi. Deiluaðilar eru Ágústa Elín
Ingþórsdóttir skólameistari annars
vegar, en hins vegar nær allir kenn-
arar við skólann sem lýst hafa van-
trausti á störf hennar. Menntamála-
ráðherra ákvað í sumar að auglýsa
starf skólameistara laust til um-
sóknar frá næstu áramótum, þegar
skipunartími núverandi skólameist-
ara rennur út. Fjórir sóttu um starf-
ið og hefur Svandísi Svavarsdóttur
heilbrigðisráðherra verið falið að
velja úr hópi umsækjenda.
Foreldrar áhyggjufullir
Foreldrar og aðstandendur nem-
enda við skólann hafa sömuleið-
is tjáð ótta sinn um að deilurnar
séu farnar að bitna á gæðum náms.
Meðal annarra Bjarnheiður Halls-
dóttir sem ritaði á Facebook síð-
una Ég er íbúi á Akranesi: „Fjöl-
brautaskóli Vesturlands má greini-
lega muna sinn fífil fegurri og mér
finnst það grafalvarlegt og sorg-
legt mál. Skólinn er stór vinnu-
staður, mjög mikilvæg stofnun fyr-
ir samfélagið á Akranesi og sterk
stoð við búsetu i bænum. Þarna fá
flest barnanna okkar veganesti út í
lífið og það hlýtur því að vera for-
gangsmál að stuðla að því að styrkja
og efla skólann til framtíðar og sjá
til þess að hann sé aðlaðandi bæði
fyrir nemendur og ekki síður góða
kennara. Það segir sig allavega sjálft
að það getur varla verið mjög upp-
byggilegt andrúmsloft í skólanum
núna og það hlýtur að bitna á gæð-
um starfsins. Ekki veit ég, frekar en
margir, hvað er nákvæmlega í gangi
þarna, en ég vona svo sannarlega að
það sé verið að róa að því öllum til-
tækum árum, að þessi óásættanlega
staða verði leyst sem fyrst. Hvað
svo sem það kann að kosta. Við
hljótum öll að krefjast þess!“ Fjöl-
margir taka undir áhyggjur Bjarn-
heiðar.
Ráðningu verði flýtt
Síðastliðinn föstudag beindu Félag
framhaldsskólakennara (FF) og Fé-
lag stjórnenda í framhaldsskólum
(FS) þeim tilmælum til menntayf-
irvalda að ákvörðun um ráðningu
skólameistara í Fjölbrautaskóla
Vesturlands á Akranesi (FVA) verði
flýtt og að þegar í stað verði gerð-
ar ráðstafanir til að leiðrétta laun
starfsfólks FVA þannig að þau verði
sambærileg og tíðkast í öðrum
framhaldsskólum. Þá lýsa stjórnir
beggja félaga yfir vilja til samstarfs
um lausn þessara mála. Loks lýsa
stjórnir FF og FS vilja til samstarfs
við menntamálayfirvöld um lausn
þessara mála og fara þess á leit að
tryggt verði í komandi kjaraviðræð-
um að tilvik eins og þetta geti ekki
átt sér stað.
Skólameistari ritar
yfirlýsingu
Ágústa Elín Ingþórsdóttir skóla-
meistari sendi um helgina frá sér
yfirlýsingu vegna málsins og vísar í
fréttaflutning um málefni FVA und-
anfarna daga: „Kjör kennara ráðast
af kjarasamningi og stofnanasamn-
ingi, sem telst hluti kjarasamnings.
Það er hlutverk stjórnenda skóla
annars vegar og kennara hins vegar
að gera með sér stofnanasamning á
grundvelli kjarasamnings. Eins og
í öðrum samningum þarf tvo til að
semja. Í ákvæðum kjarasamnings
um stofnanasamninga eru ákvæði
um að hvor aðili geti vísað ágrein-
ingi til sáttanefndar, takist ekki
samningur.“ Segir Ágústa Elína að
viðræður um nýjan stofnanasamn-
ing hafa staðið í um tvö ár með hlé-
um, og enn hefur ekki náðst sam-
komulag. Á síðasta ári vísuðu kenn-
arar málinu til sáttanefndar en
drógu málið sjálfir til baka, í þeim
tilgangi að eiga frekari viðræð-
ur við skólameistara. Gott og vel.
Skólameistari hefur boðið ýmsar
útfærslur að nýjum stofnanasamn-
ingi, sem hefðu í för með sér tals-
verðar launahækkanir, en þeim hef-
ur öllum verið hafnað. Segja má að
ágreiningur felist í því að kennar-
ar vilja leggja höfuðáherslu á starfs-
aldurstengdar hækkanir, en skóla-
meistari samspil starfsaldurstengdra
hækkana og frammistöðumats, auk
áherslna á viðbótarmenntun, þró-
unarstarf og nýliða í kennslu. Þar
sem samkomulag hefur ekki náðst
hefur skólameistari nú vísað málinu
áfram til sáttanefndar, eftir að hafa
ráðfært sig við fjármála- og efna-
hagsráðuneytið.“
Í yfirlýsingu Ágústu Elínar segir
jafnframt: „Að kennarar beiti sér
gegn skólameistara vegna þess að
hann hafi ekki fallist á kröfur kenn-
ara um efni stofnanasamnings, án
þess að þeir hafi sjálfir neytt úrræða
sem þeim eru ákveðin í kjarasamn-
ingi, sýnir að hér er um blygðun-
arlausa hagsmunabaráttu að ræða
þar sem ein persóna hefur verið
tekin fyrir. Nýjustu kröfur kenn-
ara við FVA eru allt að 15% hækk-
un grunnlauna, með mögulegri
afturvirkni, auk einnar milljónar
króna eingreiðslu til allra kennara
sem hafa starfað frá 1. ágúst 2015.
Ágreiningur aðila snýr því að um-
fangi hækkana og hvernig þær
koma til framkvæmda.
Það hlýtur að vera umhugsunar-
efni hvort kjarabarátta fagstétta eigi
að fara fram með þessum hætti, og
hvort forstöðumenn ríkisstofnana
eigi að láta undan svona óraunhæf-
um kjarakröfum, til að ávinna sér
vinsældir innan vinnustaðar. For-
stöðumönnum ríkisstofnana ber
skylda til að fara vel með opin-
bert fé og þeir bera ábyrgð á því að
rekstrarútgjöld og rekstrarafkoma
stofnunarinnar sé í samræmi við
fjárlög,“ segir í yfirlýsingu Ágústu
Elínar. mm
Hvetja menntayfirvöld til að leysa erfitt ástand í FVA