Skessuhorn - 27.11.2019, Blaðsíða 4
MIÐVIKUDAGUR 27. NóVEMBER 20194
Garðabraut 2a - Akranesi - Sími: 433 5500 - www.skessuhorn.is
Skessuhorn kemur út alla miðvikudaga. Skilafrestur auglýsinga er kl. 14.00 á þriðjudögum.
Auglýsendum er bent á að panta auglýsingapláss tímanlega. Skráningarfrestur smá-
auglýsinga er til kl. 12.00 á þriðjudögum.
Blaðið er gefið út í 3.700 eintökum og selt til áskrifenda og í lausasölu.
Áskriftarverð er 3.280 krónur með vsk. á mánuði. Elli- og örorkulífeyrisþegar greiða
kr. 2.840. Rafræn áskrift kostar 2.570 kr. Rafræn áskrift til elli- og örorkulífeyrisþega er 2.370 kr.
Áskrifendur blaðs fá 50% afslátt af verði rafrænnar áskriftar. Verð í lausasölu er 950 kr.
SKRIFSTOFA BLAÐSINS ER OPIN KL. 9-16 VIRKA DAGA
Útgefandi: Skessuhorn ehf. skessuhorn@skessuhorn.is
Ritstjórn:
Magnús Magnússon, ritstjóri s. 894 8998 magnus@skessuhorn.is
Kristján Gauti Karlsson kgauti@skessuhorn.is
Anna Rósa Guðmundsdóttir arg@skessuhorn.is
Auglýsingar og dreifing:
Hrafnhildur Harðardóttir auglysingar@skessuhorn.is
Umbrot og hönnun:
Ómar Örn Sigurðsson umbrot@skessuhorn.is
Bókhald og innheimta:
Guðbjörg Ólafsdóttir bokhald@skessuhorn.is
Prentun: Landsprent ehf.
Leiðari
Óróatímar
ókyrrð og stóryrði, brigsl og jafnvel hreinar og klárar ærumeiðing-
ar eru farnar að einkenna þjóðmálaumræðuna. Mér gremst að í fjöl-
miðlum séu farin að falla ljót orð sem að líkindum hefðu aldrei verið
sögð augliti til auglitis. Jafnvel á hinu háa Alþingi heimta menn að
aðrir séu víttir, hugnist þeim ekki orðræðan í garð þeirra. Hurðum
er skellt. Fjölmiðlar bæta ekki sérlega ástandið, raunar magna það
upp. Þeir leita fanga í frjóum jarðvegi samfélagsmiðla til að finna
eitthvað sem er nógu krassandi. Þurfa ekki að leita lengi. Mergj-
aðar fyrirsagnir selja jú auglýsingar út á smellina. Einn ritstjórinn,
sem reyndar er kominn vel við aldur, skrifaði nýverið um meintan
pólitískan andstæðing sinn, að hann væri sérstakur pappír enda fað-
ir viðkomandi vandræðagemsi. Ungi þingmaðurinn svaraði um hæl
og sagði að betra væri að vera sérstakur pappír en léleg blaðsíða!
Hvert eru menn eiginlega komnir í umræðunni þegar slík stóryrði
eru látin falla? Mér finnst þeir sýna hegðun sem þætti ekki einu
sinni boðleg á vandræðaheimili.
Þessi órói sem nú virðist vera að búa um sig á vafalítið rætur að
rekja til þess að einungis hálft annað ár er til næstu þingkosninga.
Mér finnst maður sjá þess skýr merki. Skoðanakannanir velgja vissu-
lega undir uggum. Sjálfstæðisflokkur mælist í sögulega litlu fylgi og
kjósendur hans telja sér betur borgið hjá þeim flokki sem fyrir ári
síðan átti nú ekki beinlínis upp á pallborðið hjá þjóðinni. Vinstri
grænir eru hundskammaðir fyrir að bakka hina stjórnarflokkana
upp í Samherjamálinu og allir, þá meina ég allir, eru einhvern veg-
inn í afleitu skapi.
En halló! Ég bendi á að það eru að koma jól. Er ekki kominn tími
til að þingmenn, við fjölmiðlafólkið og aðrir sem komnir eru til ára
og jafnvel vits reyni í það minnsta að vera börnunum okkar þokka-
leg fyrirmynd? Getum við ætlast til að þau sýni almenna kurteisi
þegar fyrirmyndirnar haga sér með þessum hætti?
Við fjölmiðlafólk berum hellings ábyrgð. Okkar er að reyna að
stýra umræðunni á vitrænum forsendum. Því er hins vegar ekki að
heilsa. Ekki er einvörðungu að margir fjölmiðlar taka sér stöðu með
ákveðnum málstað, fólki eða hreyfingum, og ýfi upp sár og ókyrrð,
heldur eru þeir beinlínis keyptir upp af pólitískum hagsmunaöflum.
Fjölmiðlar hanga hvort sem er flestir á horreiminni og því auðveld
kaup. Í ljósi veikrar stöðu þeirra óttast ég að ástandið eigi bara eftir
að versna. En hvert leiðir það? Jú, fólk hættir á endanum að lesa
fjölmiðla, tiltrú til þeirra fer í ruslflokk, ekki ósvipað og virðing
Alþingis, þar sem mörg af stærstu og ljótustu orðunum eru látin
falla.
Að framansögðu bið ég um grið. óska hér með formlega eftir því
að fullorðið fólk taki börn sér til fyrirmyndar. Þau eru miklu kurt-
eisari og af þeim er margt að læra.
Magnús Magnússon
Tónskáldið Anna Þorvaldsdóttir
úr Borgarnesi hefur verið tilnefnd
til Grammy-verðlauna í flokknum
Best Engineered Album, Classi-
cal, fyrir hljóðvinnslu fyrir plöt-
una Aequa. Tilnefningarnanr voru
kynntar í liðinni viku. Auk henn-
ar er önnur íslensk kona, Hild-
ur Guðnadóttir tónskáld, tilnefnd
til Grammy-verðlauna fyrir tón-
list sína í þáttunum Chernobyl.
Grammy verðlaunahátíðin verður
haldin 26. janúar á næsta ári.
mm
Togarinn Kaldbakur EA 1 er glæsi-
legt skip í eigu Útgerðarfélags Ak-
ureyrar. Skipið var smíðað 2017 og
var tekið í notkun sama ár. Skipið
er glæsilegt á að líta og allur aðbún-
aður eins og best verður á kosið.
Kaldbakur kom til hafnar í Grund-
arfirði aðfararnótt föstudagsins 22.
nóvember og landaði 98 tonnum.
Uppistaðan í aflanum var karfi. Að
löndun lokinni hélt skipið til veiða
á ný.
tfk
Kaffihúsið og veitingastaðurinn
Skagakaffi er nú komið á söluskrá
hjá fyrirtækjasölunni Kompaníi og
er auglýst eftir tilboðum í rekstur-
inn. Í húsinu hafa á liðnum árum
verið rekin kaffihús með nöfnun-
um Skökkin, síðar Lesbókin og nú
Skagakaffi. Alls hafa fjórir rekstr-
araðilar komið að rekstri í húsinu
á jafn mörgum árum. Katrín Guð-
jónsdóttir og Marius Ciprian Mar-
inescu festu kaup á kaffihúsinu síð-
astliðið sumar og opnuðu þar kaffi-
húsið Skagakaffi 1. ágúst síðastlið-
inn. Þau hafa verið að bjóða upp á
léttar veitingar, kaffi og meðlæti auk
þess sem bjór er seldur af krana.
„Staðurinn er með rekstrar-
leyfi sem heimilar opnun til kl. 23
á kvöldin. Nýr leigusamningur til
5 ára,“ segir í sölulýsingunni. Þá
kemur fram að veltan sé um 2,5
milljónir á mánuði. „Eigendur hafa
nýverið fjárfest umtalsvert í tækjum
og búnaði. Strax og án nokkurs til-
kostnaðar eru miklir möguleikar
fyrir nýja eigendur að auka veltuna
til muna með lengri opnunartíma.
Hægt að vera með íþróttaleiki á
kvöldin og um helgar.“ arg
Stjórn Landssambands veiðifélaga
hefur sent frá sér yfirlýsingu þar
sem hún harmar að IPN veirusýk-
ing hafi komið upp í norskum eldis-
laxi í eldiskvíum Laxa fiskeldis ehf.
í Reyðarfirði. „Slík veirusýking hef-
ur aldrei greinst í laxi á Íslandi enda
er villti laxastofninn við Ísland með
þeim heilbrigðustu í heimi. IPN
veira veldur alvarlegum sýkingum í
laxfiskum. Ljóst er að alltaf slepp-
ur einhver fiskur úr opnum sjókví-
um auk þess sem villtir laxfiskar eru
alltaf í nágrenni eldisins í einhverj-
um mæli. Mikil hætta er þá á því að
veiran berist í villta laxa- og silung-
astofna. Það voru stjórn Landssam-
bands veiðifélaga mikil vonbrigði
að sjá viðbrögð Matvælastofnunar
sem gerir lítið úr þessari sýkingu í
tilkynningu sinni,“ segir í tilkynn-
ingu frá félaginu.
Landssambandið minnir á að það
hefur ítrekað mótmælt notkun á
innfluttum brunnbátum sem not-
aðir hafa verið við seiðaflutninga í
sjókvíar hér við land. „Landssam-
band veiðifélaga hefur oft bent á að
slíkir bátar hafi dreift smiti í norsku
fiskeldi. Í ljósi þess er það óskilj-
anlegt að innflutningur á þessum
tækjum hafi verið heimilaður af
Matvælastofnun. Landssamband
veiðifélaga krefst þess að rannsakað
verði hvaðan umrædd sýking barst
og að öllum innflutningi á notuð-
um búnaði verði umsvifalaust hætt.
Stjórnin krefst þess að umræddum
laxi verði þegar í stað fargað og eytt
í viðurkenndri eyðingarstöð. Verði
það ekki niðurstaða Matvælastofn-
unar skorar LV á sjávarútvegs- og
landbúnaðarráðherra að hlutast
til um málið þannig að heilbrigði
villtra laxastofna við Ísland verði
varið og tryggt.“ mm
Skagakaffi komið á söluskrá
Anna tilnefnd til Grammy verðlaunanna
Kaldbakur EA landaði í Grundarfirði
Frá fiskeldi í Reyðarfirði. Ljósm. Laxar fiskeldi.
Vilja að veirusýktum
eldislaxi verði fargað