Skessuhorn - 27.11.2019, Síða 8
MIÐVIKUDAGUR 27. NóVEMBER 20198
Sektað fyrir
ýmis brot
VESTURLAND: Lögregla
stöðvaði ökumann sem ók
um Vesturlandsveg á föstu-
dag, grunaðan um akstur und-
ir áhrifum ávana- og fíkniefna.
Fíkniefnapróf svaraði jákvætt
við neyslu THC, virka vímu-
gjafa kannabiss. Ökumaður-
inn var handtekinn og gert að
gefa blóðsýni. Sama dag var
ökumaður stöðvaður á Akra-
nesi og sektaður um 20 þús-
und krónur fyrir að vera ekki
spenntur í bílbelti. Daginn
áður, síðastliðinn fimmtudag,
stöðvaði lögregla ökumann á
Akranesi sem reyndist aka eft-
ir að hafa verið sviptur öku-
réttindum. Eins og áður hefur
komið fram lítur lögregla slíkt
athæfði alvarlegum augum. Á
sunnudag fór lögregla inn í
hús á Akransi og haldlagði þar
kannabisefni. -kgk
Ógætilegur
akstur
HVALFJSV: Vegfarandi
hafði samband við lögreglu og
kvartaði yfir flutningabíl sem
ekið var ógætilega og hratt í
gegnum Hvalfjarðargöng á
fimmtudagskvöld. Ekki tókst
að hafa upp á ökumanni en
haft var samband við flutn-
ingafyrirtækið og látið vita af
málinu. -kgk
Flutningabíll
rann í hálku
AKRANES: Flutningabíll
rann í hálku skammt frá versl-
un Olís við Esjubraut á Akra-
nesi að morgni mánudagsins
18. nóvember. Yfirlögreglu-
þjónn og aðstoðaryfirlög-
regluþjónn urðu vitni að at-
vikinu. Bifreiðin rann í hálku
og hafnaði uppi á nýja hring-
torginu og varð nokkðu tjón
á því. Kantsteinn brotnaði og
bíllinn losnaði ekki fyrr en
búið var að spæna upp um-
ferðareyjuna, að sögn lög-
reglu. Viðkomandi fyrirtæki
kemur til með að þurfa að
bæta Akraneskaupstað tjónið,
að sögn lögreglu. -kgk
Eftirlit með
rjúpnaskyttum
VESTURLAND: Lögreglan
á Vesturlandi fór með Land-
helgisgæslu Íslands í rjúpna-
veiðieftirlit á laugardaginn.
Flogið var með þyrlu gæsl-
unnar yfir Hraundal og nær-
liggjandi dali, Langavatnsdal
auk friðlandsins í Geitlandi.
Sást til veiðimanna, en ekki í
friðlandinu. Tveir kyrrstæðir
bílar voru við friðlandið en þar
sást ekki til veiðimanna. Ann-
ars staðar sáust fleiri bifreiðar,
en á svæðum þar sem veiði er
heimil. Veiðimenn sem voru
á ferð á svæðinu sem lögregla
fór um kváðust lítið hafa séð af
rjúpu. -kgk
Fastur á smábíl
BORGARBYGGÐ: Ferða-
menn festu bifreið sína í snjó á
Uxahryggjavegi að kvöldi þriðju-
dagsins í síðustu viku. Voru þeir
að koma frá Húsafelli og óku inn
á Uxahryggjaveg á Toyota Verso
bílaleigubíl og festu bílinn. Haft
var samband við bílaleiguna sem
sendi mann á staðinn til að að-
stoða fólkið. -kgk
Aflatölur fyrir
Vesturland
16.-22. nóvember
Tölur (í kílóum)
frá Fiskistofu
Akranes: 1 bátur.
Heildarlöndun: 4.791 kg.
Mestur afli: Ebbi AK: 4.791 kg
í einum róðri.
Arnarstapi: Engar landanir á
tímabilinu.
Grundarfjörður: 6 bátar.
Heildarlöndun: 412.112 kg.
Mestur afli: Kaldbakur EA:
98.469 kg í einni löndun.
Ólafsvík: 13 bátar.
Heildarlöndun: 178.384 kg.
Mestur afli: Kvika SH: 27.693
kg í fjórum róðrum.
Rif: 12 bátar.
Heildarlöndun: 146.311 kg.
Mestur afli: Hamar SH: 47.531
kg í einni löndun.
Stykkishólmur: 4 bátar.
Heildarlöndun: 104.702 kg.
Mestur afli: Þórsnes SH: 59.212
kg í einni löndun.
Topp fimm landanir á tíma-
bilinu:
1. Kaldbakur EA - GRU:
98.469 kg. 22. nóvember.
2. Sóley Sigurjóns GK - GRU:
75.327 kg. 17. nóvember.
3. Hringur SH - GRU: 66.986
kg. 20. nóvember.
4. Runólfur SH - GRU: 63.588
kg. 18. nóvember.
5. Þórsnes SH - STY: 59.212
kg. 16. nóvember. -kgk
Framkvæmdir við stækkun Norð-
urgarðs í Grundarfjarðarhöfn eru
komnar á fullan skrið. Nú er mik-
il umferð vörubíla og vinnuvéla um
hafnarsvæðið og fólk því beðið um
að draga úr bryggjurúntum á með-
an. Þessa dagana er verið að keyra
á staðinn stórgrýti úr Grafarnámu.
Það er Borgarverk sem er verktaki
við framkvæmdirnar.
tfk
Héraðsdómur Vesturlandi kvað
síðastliðinn föstudag upp úrskurð
í máli íslenska ríkisins gegn land-
eigendum á Arnarvatnsheiði. Rík-
ið höfðaði málið og beindi kröfu
sinni gegn Sjálfseignarstofnun um
Arnarvatnsheiði og Geitlandi ann-
ars vegar en hins vegar eigendum
Kalmanstungu I og II. Gerði ríkið
kröfu um að felldur yrði úr gildi úr-
skurður óbyggðanefndar nr. 4/2014
þess efnis að Arnarvatnsheiði,
Geitland ásamt Langjökli tilheyrði
sjálfseignarstofnuninni og landeig-
endum Kalmanstungu I og II. Þá
krafðist ríkið þess jafnframt að við-
urkennt yrði fyrir dómi að land-
svæðið yrði túlkað sem þjóðlenda.
Héraðsdómur Vesturland sýkn-
aði landeigendur af öllum kröfum
ríkisins. Málskostnaður var felldur
niður og allur gjafsóknarkostnaður
stefndu skal greiðast úr ríkissjóði.
mm
Ágætur gangur hefur í haust verið
í byggingaframkvæmdum á Klepp-
járnsreykjum, en framkvæmdir
hófust í lok sumars. Í húsinu verður
leikskólinn Hnoðraból með starf-
semi sína en auk þess verða þar
skrifstofur fyrir starfsfólk leikskól-
ans og grunnskólans auk kennslu-
rýmis. Byggingin er 530 fermetr-
ar að flatarmáli á einni hæð. Búið
er að reisa forsteyptar einingar frá
Steypustöðinni - Loftorku og næsti
verkþáttur er að koma húsinu und-
ir þak. Eftir það verður gólfsteypa
og frágangur innanhúss. Í verk-
samningi við Eirík J Ingólfsson ehf.
kemur fram að byggingin á að vera
tilbúin til notkunar fyrir upphaf
skólaárs haustið 2020.
mm
Ríkið tapaði máli um eignar-
hald yfir Arnarvatnsheiði
Veggeiningar að
nýjum leikskóla risnar
Framkvæmdir komnar á
fullt við Norðurgarð