Skessuhorn - 27.11.2019, Page 12
MIÐVIKUDAGUR 27. NóVEMBER 201912
Matarmarkaður, matarhandverk,
úrslit í matarkeppni og matur beint
frá býli voru meginþemu á fjöl-
mennri Matarhátíð sem fram fór á
laugardaginn á gömlu útihúsatorf-
unni á Hvanneyri. Opið hús var í
Landbúnaðarsafni Íslands og Ull-
arselinu í gamla fjósinu en auk þess
kynning á sigurvegurum í Askinum
í fjóshlöðunni, en það er Íslands-
meistarakeppni í matarhandverki,
sem Matís stendur fyrir í samstarfi
við Matarauð Íslands, Matarauð
Vesturlands og Markaðsstofu Vest-
urlands. Þá voru á hátíðinni flutt-
ir nokkrir örfyrirlestrar á Kollu-
bar. Meðal annars kynnti Hléd-
ís Sveinsdóttir REKó, kynnt var
verkefni Matís; Krakkar kokka, Eva
Margrét Jónudóttir kynnti verkefni
sem hún hefur unnið að í samstarfi
við Matís og fjallar um aukið virði
hrossakjöts. Austurríkisfólkið Ger-
ald og Katharina sögðu frá búskap-
arháttum sínum og sauðaostagerð
og að endingu flutti Vífill Karls-
son hagfræðingur erindi sem hann
nefndi Gott er að mjólka gulrótina.
Fjallaði það um landfræðilegt og
efnahagslegt litróf garðyrkju hér
á landi. Á sama tíma og aðrir dag-
skrárliðir fóru fram, kynntu og
seldu ýmsir matarframleiðendur
vörur sínar á gamla vélaverkstæð-
inu. Á Kollubar var Kvenfélagið
19. júní með kaffisölu og Árni hjá
Hinu blómlega búi kynnti mergj-
aðan eggjapúns. óhætt er að segja
að vel hafi verið tekið í hátíðina því
fjöldi fólks lagði leið sína á staðinn
og átti góðan dag í blíðskapar vetr-
arveðri.
Góð þátttaka
í keppninni
Askurinn var Íslandsmeistaramót
í matarhandverki. Góð stemning
var á staðnum og glæsilegir full-
trúar matarfrumkvöðla og smá-
framleiðanda kynntu og seldu af-
urðir sínar. Vörum sem tilnefndar
höfðu verið til verðlauna var stillt
upp á borð og gátu gestir séð fjöl-
Eftirtaldir unnu til verðlauna í Askinum:
Bakstur:
Gull Rúgbrauð Brauðhúsið ehf
Silfur Rúg-hafrabrauð Brauðhúsið ehf
Ber, ávextir og grænmeti:
Gull Þurrkaðir lerkisveppir Holt og heiðar ehf
Silfur Grenisíróp Holt og heiðar ehf
Brons Sólþurrkaðir tómatar Garðyrkjustöðin
Laugarmýri
Ber, ávextir og grænmeti – sýrt:
Gull Pikklaðar radísur Bjarteyjarsandur sf
Silfur Kimchi, krassandi kóreönsk blanda Huxandi Slf
Brons Pylsukál, eitt með öllu! Huxandi Slf
Ber, ávextir og grænmeti – drykkir:
Gull Aðalbláberjate Urta Islandica ehf
Silfur Krækiberjasafi Islensk hollusta ehf
Fiskur og sjávarfang:
Gull Birkireyktur urrði Matarhandverk úr
fram-Skorradal
Silfur Heitreyktur makríll Sólsker
Brons Léttreyktir þorskhnakkar Sólsker
Kjöt og kjötvörur:
Gull Gæsakæfa Villibráð Silla slf.
Silfur Taðreykt Hangikjöt Sauðfjárbúið Ytra-Hólmi
Kjöt og kjötvörur - hráverkað:
Gull Rauðvínssalami Tariello ehf
Silfur Nautasnakk Mýranaut ehf
Brons Ærberjasnakk Breiðdalsbiti
Mjólkurvörur:
Gull Sveitaskyr Rjómabúið Erpsstaðir
Silfur Búlands Havarti Biobú ehf.
Brons Basilíku smjör Á Ártanga
Nýsköpun:
Gull Bopp Havarí
Gull Söl snakk Bjargarsteinn Mathús
Brons Saltkaramellusýróp Urta Islandica ehf
Nýsköpun – drykkir:
Gull Glóaldin Kombucha Iceland Kúbalúbra ehf
Silfur Súrskot - Safi úr Kimchi Huxandi Slf
Brons Rababaravín Og natura.
Fjölmenni mætti á Matarhátíð á Hvanneyri
Hér má sjá verðlaunahafa í Askinum.
Verðlaun og viðurkenningar í matarhandverkskeppninni afhentu þeir sem komu
að undirbúningi og framkvæmd, heimafólk af Vesturlandi og fulltrúar Matís.
Árni í Hinu Blómlega búi hrærir í eggjapúnsi. Hanna, Sigurbjörg og Agnes kynntu vörur frá Mýranauti og
Ljómalind.
Dagný og Tedda á Kollubar þar sem kvenfélagið sá um
veitingar.
Ragnhildur og Guðrún að selja vöfflur og kleinur fyrir Kvenfélagið 19. júní.
breytta flóru matar og drykkjar
sem keppti til verðlauna. Hinn
gríðarlegi fjöldi gesta er til merk-
is um áhuga á íslensku matarhand-
verki og ekki síður að 130 vörur
af ýmsu tagi kepptu til verðlauna.
Var þeim skipt upp í tíu flokka eftir
gerð og eðli vörunnar. Athygli vakti
að margir vestlenskir framleiðend-
ur voru að vinna til verðlauna og
fengu þannig góða viðurkenningu
fyrir starf sitt. Þeirra á meðal voru
Rjómabúið Erpsstöðum, Bjarg-
arsteinn Mathús, Matarhandverk
úr Fram-Skorradal, Sauðfjárbúið
Ytra-Hólmi, Mýranaut og Bjart-
eyjarsandur.
mm
Jóhanna á Háafelli var með úrval af vörum sem hún fram-
leiðir úr geitaafurðum.
Hólmfríður Tania, Þorgrímur Einar og Helga Elínborg á Erps-
stöðum kynntu og seldu matvæli frá Rjómabúinu.
Margvísleg nýsköpun er í matvælaframleiðslu. Meðal annars
súrkál.