Skessuhorn - 27.11.2019, Side 22
MIÐVIKUDAGUR 27. NóVEMBER 201922
Crossfit stöðin Box 7 efndi til sam-
róðurs til styrktar Berglindi Rósu
Jósepsdóttur sem er 33 ára tveggja
barna móðir í Grundarfirði, í sam-
búð með Sigurbirni Hanssyni.
Begga greindist með krabbamein í
upphandlegg síðasta sumar og hef-
ur verið í lyfja- og geislameðferð-
um síðan þá. Forsvarsmenn Box
7 vildu því leggja sitt af mörkum
með þessari söfnun.
Upphaflega átti að róa 500 kíló-
metra og var byrjað af krafti klukk-
an átta laugardagsmorguninn 23.
nóvember síðastliðinn. Fljótlega
kom í ljós að eljusemin í ræðurum
var það mikil að tekið var á það ráð
að hækka kílómetrafjöldann í 800
og seinna um daginn upp í 1000
kílómetra. Mikill fjöldi fólks kom
og reri til styrktar Beggu og fjöl-
skyldu og svo voru einnig marg-
ir sem komu færandi hendi með
veitingar og bakkelsi fyrir ræð-
ara. Blaklið Grundarfjarðar var
í keppnisferð á Norðurlandi og
lagði sitt af mörkum og reri 25
kílómetra og annarsstaðar á Húsa-
vík reru ættingjar Berglindar, þar á
meðal 85 ára gömul amma hennar,
43 kílómetra. Ein róðravélin var
fyrir krakka og var róið 49 kíló-
metra á henni en krakkarnir voru á
aldrinum 4 til 12 ára. Einnig voru
nokkrir einstaklingar sem voru
með sjálfsáskorun en þær Sigur-
borg Knarran ólafsdóttir og Frey-
dís Bjarnadóttir réru maraþon eða
42,2 kílómetra. Þá reri Vignir Már
Runólfsson 50 kílómetra. Þegar
yfir lauk voru kílómetrarnir ná-
kvæmlega 1003 sem er alveg ótrú-
legur árangur. Söfnuninni mun
ljúka 1. desember næstkomandi og
því enn hægt að leggja henni lið.
Hægt er að leggja inn á reikning:
0321 – 13 – 161444. Kt.
250868-4999.
tfk
Barist með Beggu
Dóra Aðalsteinsdóttir, móðursystir Berglindar, er hér að skrá árangurinn.
Freydís Bjarnadóttir réri heilt maraþon og var frá átta um morguninn fram yfir
hádegi án þess að stöðva.
Vignir Már Runólfsson reri 50 kílómetra án þess að stöðva.
Leifur Harðarson, einn eigenda Box 7, er hér að skrá árangurinn jafnóðum.
Berglind Rósa er hér lengst til vinstri með Magna Rúnari syni sínum sem var í
röðinni að bíða eftir að róa í krakkaróðrinum.Sindri Snær Hinriksson er hér ein-beittur að leggja inn metra í hýtuna.