Skessuhorn - 27.11.2019, Page 30
MIÐVIKUDAGUR 27. NóVEMBER 201930
MT: Stefán Gísli með verðlauna-
gripinn síðastliðinn sunnudag.
Hvað langar þig að fá
í jólagjöf?
Spurni g
vikunnar
(Spurt í Borgarnesi)
Þorsteinn Guðmundur
Erlendsson
„Ást og frið um heiminn.“
Herbert Baxter
„Ég þarf ekkert.“
Viðar Pétursson
„Nýjan Land Cruiser.“
Victor Pétur Rodriquez
„Ég væri til í hvað sem er, utan-
landsferð þess vegna.“
Brynhildur Traustadóttir, sund-
kona úr ÍA, er í landsliðshópi
Sundsambands Íslands sem keppir
á Norðurlandameistaramóti í sundi
sem haldið verður í Færeyjum um
helgina. Á mótinu synda um 210
keppendur frá Norðurlöndunum
og Eystrasaltsríkjunum Litháen,
Lettlandi og Eistlandi. Þar af eru
25 keppendur frá Íslandi. Brynhild-
ur hefur æft mjög vel í haust og á
mótinu keppir hún í 200, 400 og
800 m skriðsundi.
mm
Guðbjörg Bjartey Guðmunds-
dóttir bætti 15 ára gamalt Akra-
nesmet á Haustmóti Fjölnis í
sundi sem fram fór á laugardaginn
í Laugardalnum. Þangað fór 21
sundmaður frá Sundfélagi Akra-
ness. Mótið var fyrir sundmenn
14 ára og yngri og var gríðarlega
stór hópur sem tók þátt þetta árið,
375 sundmenn frá 16 félögum um
land allt.
Að venju stóðu krakkarnir frá
Sundfélagi Akraness sig vel, sýndu
miklar framfarir og stemningin í
hópnum var góð. Samtals voru
78 bætingar hjá þeim. Guðbjörg
Bjartey keppti í telpna flokki
13-14 ára í 50 metra flugsundi
og synti á tímanum 30,38. Gamla
metið var 31,12 sem Aþena Ragna
Júliusdóttir átti frá 2004. Guð-
björg Bjartey synti í fjórum grein-
um og sigraði í þeim öllum.
Í 4×50 skriðsundsboðsundi
unnu Skagastelpurnar gull á tím-
anum 2,06:48, með Ingibjörgu
Svövu Magnúsardóttur, Kareni
Káradóttur, Auði Maríu Lárus-
dóttur og Guðbjörgu Bjartey
Guðmundsdóttur.
Strákarnir urðu í fjórða sæti
með þeim Guðbjarna Sigþórs-
syni, Adam Agnarssyni, Bjarna
Snæ Skarphéðinssyni og Vík-
ingi Geirdal Birnusyni. Ingi-
björg Svava Magnúsardóttir vann
þrjú silfur og eitt brons og Guð-
bjarni Sigþórsson vann eitt silfur
og fjögur brons. Loks vann Karen
Káradóttir ein bronsverðlaun.
mm/sa
Íslandsmeistaramótaröðinni í grjót-
glímu lauk um helgina með flottu
móti sem haldið var í Klifurhúsinu í
Reykjavík. ÍA mætti með sjö sterka
klifrara til móts og þeim fylgdi stór
hópur áhorfenda og áhangenda.
Mótið var fjórða og síðasta mótið
í keppninni um Íslandsmeistartitil-
inn og spennan því í hámarki þeg-
ar mótið hófst. Keppendur klifruðu
tuttugu leiðir, sem leiðasmiðir Klif-
urhússins og ÍA höfðu sett upp, og
höfðu til þess tvo klukkutíma.
Í C-flokki stúlkna hafnaði Sylvía
Þórðardóttir í þriðja sæti en heild-
arstigafjöldi hennar eftir fjögur mót
dugði henni í 1.-2. sæti í mótaröð-
inni og því þurfti bráðabana til að
skera úr um Íslandsmeistaratitilinn.
Í bráðabana klifraði Sylvía á móti
Ásthildi Elfu úr Hafnarfirði, en þær
stöllur hafa verið nokkurn veginn
hnífjafnar á mótum ársins. Í bráða-
bana sigrar sá klifrari sem klifr-
ar lengra í bráðabanaleið á fjórum
mínútum og eftir tvær leiðir voru
þær stöllur hnífjafnar og spennan
því gríðarleg fyrir þriðju leið. Ást-
hildur byrjaði og klifraði vel og
uppskar 8+ stig eftir leiðina, sem
innhélt erfiðar jafnvægishreyfingar
á litlum tökum og stórt stökk upp
í erfitt tak. Sylvía klifraði vel, náði
byrjuninni og stökkinu en vantaði
herslumuninn til að ná lengra og
endaði því með 7 stig og vel verð-
skulduð silfurverðlaun fyrir ÍA.
Aðrir klifrarar í C- og B- flokki
náðu ekki á verðlaunapall að þessu
sinni en þeir Rúnar Sigurðsson,
Sverrir Elí Guðnason og Ellert
Kári Samúelsson röðuðu sér í 4.-6.
sæti í C-flokki drengja og Tinna
Rós Halldórsdóttir í það sjötta í
stúlknaflokki.
Í fullorðinsflokki klifraði Brimr-
ún Eir óðinsdóttir. Hún lauk níu af
tuttugu leiðum mótsins og landaði
verðskuldað bronsverðlaunum að
lokinni Íslandsmeistarmótaröðinni.
Í allt prýðilegasti árangur hjá ÍA.
Nú fá klifrarar verðskuldað frí frá
keppnum fram yfir áramót. þs
Skagamenn máttu játa sig sigraða
gegn ÍR B, þegar liðin mættust í 2.
deild karla í körfuknattleik á föstu-
dagskvöld. Leikið var á Akranesi
og það voru gestirnir sem höfðu að
lokum tólf stiga sigur, 89-101.
ÍA hefur fjögur stig eftir átta lei-
ki og situr í níunda sæti deildarin-
nar, með jafn mörg stig og Stál-úl-
fur í sætinu fyrir neðan. Næst leika
Skagamenn gegn B-liði KR á sun-
nudagskvöld, 1. desember næstko-
mandi.
kgk/ Ljósm. úr safni/ jho.
Íslandsmeistaramótinu
í grjótglímu lokið
Sylvía Þórðardóttir í brautinni.
Keppendur frá ÍA ásamt Þórði Sævarssyni.
Stelpurnar vösku sem sigruðu í 4x50 metra skriðsundsboðsundi. Ingibjörg Svava Magnúsardóttir, Guðbjörg Bjartey Guð-
mundsdóttir, Auður María Lárusdóttir og Karen Káradóttir.
Bætti fimmtán ára gamalt
Akranesmet í sundi
Á leið á Norður-
landamót í sundi
Tólf stiga tap