Skessuhorn - 27.11.2019, Síða 31
MIÐVIKUDAGUR 27. NóVEMBER 2019 31
Skallagrímur er kominn aftur á sig-
urbraut í 1. deild karla eftir sigur
á Sindra, 85-71. Liðin mættust í
Borgarnesi á fimmtudagskvöld.
Skallagrímsmenn skoruðu fyrstu
sex stig leiksins en gestirnir frá
Hornafirði jöfnuðu metin og kom-
ust síðan yfir. Borgnesingar áttu
lokaorðið í upphafsfjórðungnum
og leiddu með þremur stigum að
honum loknum, 18-15. Þeir voru
síðan sterkari í öðrum leikhluta,
náðu snemma að slíta sig frá gest-
unum og höfðu tíu stiga forskot í
hléinu, 42-32.
Sindramenn mættu ákveðnir til
síðari hálfleiks, minnkuðu forystu
Skallagríms um helming fyrstu þrjár
mínúturnar en þá tóku Borgnes-
ingar við sér. Þeir skoruðu 23 stig
gegn átta það sem eftir lifði þriðja
leikhluta og leiddu með 20 stigum
fyrir lokafjórðunginn, 67-47. Þar
héldu Skallagrímsmenn upptekn-
um hætti. Mest leiddu þeir með
27 stigum, um miðjan fjórða leik-
hluta. Gestirnir náðu aðeins að laga
stöðuna það sem eftir lifði leiks, en
sigur Skallagríms var aldrei í hættu.
Lokatölur voru 85-71, Skallagrími
í vil.
Kenneth Simms var stigahæst-
ur í liði Skallagríms með 16 stig
og tíu fráköst að auki. Davíð Guð-
mundsson og Kristján Örn óm-
arsson skoruðu 13 stig hvor, Arnar
Smári Bjarnason var með tíu stig
og sex stoðsendingar, Almar Örn
Björnsson skoraði níu stig og tók
sjö fráköst, Isaiah Coddon skoraði
níu stig einnig, Marinó Þór Pálma-
son var með átta stig og Hjalti Ás-
berg Þorleifsson skoraði sjö stig og
tók tíu fráköst.
Ignas Dauksys skoraði 18 stig og
tók tólf fráköst fyrir Sindra, Stef-
an Knazevic var með 18 stig sömu-
leiðis og ellefu fráköst og Árni
Birgir Þorvarðarson skoraði tólf
stig.
Skallagrímur lyfti sér með sigr-
inum upp í sjötta sæti deildarinnar.
Eftir átta leiki hafa Borgnesingar
fjögur stig, tveimur stigum meira
en Sindri í sætinu fyrir neðan en
tveimur stigum á eftir Álftnes-
ingum. Síðarnefnda liðið er ein-
mitt næsti mótherji Borgnesinga.
Skallagrímur og Álftanes mætast í
Borgarnesi á morgun, fimmtudag-
inn 28. nóvember.
kgk/ Ljósm. úr safni/
Skallagrímur.
Sameiginleg knattspyrnuæfing
allra kvennaflokka ÍA var hald-
in síðastliðinn miðvikudag. Þar
fengu ungar og upprennandi
knattspyrnukonur frá 7. flokki og
upp úr að æfa með fyrirmyndum
sínum úr meistaraflokki. „Gaman
var að sjá yngri iðkendur með fyr-
irmyndum sínum á æfingu,“ segir
á vef KFÍA.
Æfingin var skipulögð af þjálf-
urum félagsins, sem fengu leik-
menn meistaraflokks til að útskýra
og sýna yngri iðkendum æfingarn-
ar sem teknar voru fyrir þennan
daginn. „Iðkendur okkar eiga svo
sannarlega framtíðina fyrir sér.
Þær eru duglegar og öflugar og
stefna allar á að spila með meist-
araflokki ÍA eftir nokkur ár.“
kgk/ Ljósm. KFÍA.
Héraðssamband Snæfells- og
Hnappadalssýslu stóð fyrir ár-
legu jólamóti í frjálsum íþrótt-
um í íþróttahúsinu í Stykkishólmi
sunnudaginn 24. nóvember síðast-
liðinn. Fjöldi barna af Snæfellsnesi
mætti og keppti í þeim greinum
sem boðið var uppá en keppt var
í spretthlaupi, langstökki með og
án atrennu, kúluvarpi og hástökki.
Gleðin var í fyrirrúmi hjá krökkun-
um sem stóðu sig vel. tfk
Snæfellskonur töpuðu
naumlega gegn Breiða-
bliki, 73-68, þegar liðin
mættust í spennandi leik í
Domino‘s deild kvenna í
körfuknattleik. Leikið var í
Kópavogi á laugardaginn.
Jafnt var á með liðunum
í upphafi leiks, en Snæfell
náði síðan góðri rispu og
sex stiga forystu um miðj-
an fyrsta leikhluta. Blikar
svöruðu fyrir sig og kom-
ust yfir, en Snæfellskonur
áttu lokaorðið í upphafs-
leikhlutanum og leiddu
með einu stigi að honum
loknum, 20-21. Leikurinn
var í járnum og liðin skipt-
ust á að leiða þar til seint
í fyrri hálfleik. Breiðablik
kláraði annan leikhluta af
krafti og leiddi með fjór-
um stigum í hléinu, 33-29.
Heimaliðið hélt síð-
an forystunni allan þriðja
leikhlutann, en Snæfells-
konur voru þó aldrei langt
undan. Fimm stigum mun-
aði fyrir lokafjórðunginn,
57-52 og leikurinn galop-
inn. Snæfellskonur komu
mjög ákveðnar til fjórða
leikhluta og voru ekki lengi
að gera forskot Breiðabliks
að engu. En Blikar náðu yfirhönd-
inni á nýjan leik. Góður kafli skil-
aði þeim átta stiga forystu þegar
þrjár mínútur lifðu leiks. Snæfells-
konur minnkuðu muninn í þrjú stig
en nær komust þær ekki. Leikn-
um lauk því með fimm stiga sigri
Breiðabliks, 73-68.
Gunnhildur Gunnarsdóttir var
stigahæst í liði Skallagríms með
30 stig og tók hún fimm fráköst
að auki. Veera Pirttinen skoraði 17
stig og tók sjö fráköst, Helga Hjör-
dís Björgvinsdóttir var með átta stig
og sjö fráköst, Rebekka Rán Karls-
dóttir skoraði sjö stig, Tinna Guð-
rún Alexandersdóttir var með fjög-
ur stig og Emese Vida skoraði tvö
stig og tók tíu fráköst.
Danni Williams var atkvæðamest
í liði Breiðabliks með 36 stig og
13 fráköst og Paula Tarnachowicz
skoraði tíu stig og tók sjö fráköst.
Snæfell situr í sjötta sæti deild-
arinnar með fjögur stig, jafn mörg
og Breiðablik sem er í sætinu fyr-
ir neðan en fjórum stigum á eftir
Haukum í sætinu fyrir ofan. Næsti
leikur Snæfells er í kvöld, miðviku-
daginn 27. nóvember, þegar lið-
ið mætir Íslandsmeisturum Vals í
Stykkishólmi.
kgk/ Ljósm. úr safni/ sá.
Skallagrímskonur völtuðu yfir
Hauka, 55-83, þegar liðin mættust
í Domino‘s deild kvenna í körfu-
knattleik. Leikið var í Hafnarfirði
á föstudagskvöld.
Skallagrímskonur voru mjög öfl-
ugar í upphafsfjórðungnum, kom-
ust í 3-20 og leiddu með 17 stigum
eftir fyrsta leikhluta, 5-22. Það var
þessi góða byrjun Borgnesinga sem
lagði grunn að öruggum sigri liðs-
ins. Í öðrum leikhluta héldu Skalla-
grímskonur uppteknum hætti,
skoruðu 19 stig gegn 13 og leiddu
18-41 í hálfleik.
Skallagrímskonur slógu ekkert af
eftir hléið. Þær léku vel í þriðja leik-
hluta, skoruðu 28 stig gegn 19 stig-
um Hauka og höfðu 32 stiga for-
skot fyrir lokafjórðunginn. Haukar
náðu aðeins að laga stöðuna í loka-
fjórðungnum, minnkuðu forystu
Skallagríms um fimm stig áður en
lokaflautan gall. Leiknum lauk með
stórsigri Skallagríms, 55-83.
Emilie Sofie Hesseldal átti stór-
leik fyrir Skallagrím. Hún skoraði
23 stig, tók 14 fráköst og stal fimm
boltum. Keira Robinson setti upp
þrennu með 14 stig, ellefu stoð-
sendingar og tíu fráköst og Sig-
rún Sjöfn Ámundadóttir var með
13 stig, tólf fráköst og sex stoð-
sendingar. Árnína Lena Rúnars-
dóttir og Clara Colding-Poulsen
skoruðu sjö stig hvor, Gunnhild-
ur Lind Hansdóttir og Maja Mic-
halska skoruðu fjögur stig hvor og
Arna Hrönn Ámundadóttir skoraði
tvö stig.
Jannetje Guijt skoraði 14 stig
fyrir Hauka og Rósa Björk Péturs-
dóttir var með tólf stig og tíu frá-
köst en aðrar höfðu minna.
Eftir leiki helgarinnar eru Skalla-
grímskonur komnar upp í þriðja
sæti deildarinnar með tíu stig, jafn
mörg og Keflavík í sætinu fyr-
ir neðan en tveimur stigum á eft-
ir KR. Næsti leikur liðsins er úti-
leikur gegn Grindavík í kvöld, mið-
vikudaginn 27. nóvember.
kgk/ Ljósm. úr safni/
Skallagrímur.
Allir kvennaflokkar æfðu saman
Aftur á sigurbraut
Stórsigur Skallagrímskvenna
Jólamót HSH fór
fram í Stykkishólmi
Snæfell tapaði gegn Blikum