Skessuhorn - 11.12.2019, Side 8
MIÐVIKUDAGUR 11. DeseMbeR 20198
Án réttinda
BORGARNES: Um kl.
14 á mánudaginn var Lög-
reglan á Vesturlandi að
kanna hvort allt væri í lagi
með atvinnubíla á ferð. Var
þá einn ökumaður að keyra
16 manna hópferðabíl án
tilskilinna réttinda. Um er
að ræða danskan ökumann
með hefðbundin ökurétt-
indi en ekki réttindi til að
keyra fólksfluttningabíl í
atvinnuskyni. -arg
Endaði í runna
BORGARNES: Tilkynn-
ing barst lögreglu mið-
vikudaginn 4. desember
um að ekið hefði verið á
ljósastaur við Hrafnaklett
í borgarnesi. Kúpull datt
af staurnum og endaði bíll-
inn inni í runna í garði við
hús í götunni. Ökumaður
hafði misst stjórn á bíln-
um í hálku með þessum af-
leiðingum en engin meiðsl
urðu á fólki. -arg
Grunsamlegir
menn
AKRANES: Tilkynnt var
um grunsamlegar manna-
ferðir á stigagangi í húsi
við einigrund. Nokkrir
menn voru saman komnir
á stigaganginum og virtust
ekki eiga þar neitt erindi.
Íbúi í húsinu sagðist þeim
að hann ætlaði að hringja í
lögregluna og hurfu menn-
irnir þá á brott. Mennirnir
fundust ekki. -arg
Atvinnutæki-
færi í Borgar-
byggð
BORGARBYGGÐ: Fjöl-
mörg störf eru laus til um-
sóknar í borgarbyggð um
þessar mundir. bæði er
um að ræða framtíðar-
störf sem og tímabundn-
ar ráðningar á fjölskyldu-
sviði sveitarfélagsins. Laus
eru störf leikskólakennara í
Klettaborg, Uglugkletti og
Hnoðrabóli í Reykholtsdal.
Þá eru einnig laus til um-
sóknar starf forstöðumanns
Frístundar í borgarnesi og
starf forstöðumanns Öld-
unnar, einnig í borgarnesi.
-kgk
Búfé á ferð
VESTURLAND: Reglu-
lega er tilkynnt um lausa-
göngu búfénaðs í umferð-
inni og á miðvikudaginn í
síðustu viku fékk Lögregl-
an á Vesturlandi tilkynn-
ingu um þrjár kindur á
miðri brú við borgarfjarð-
arbraut. Kindurnar voru
sóttar og engin slys urðu.
Daginn eftir barst tilkynn-
ing um nautgrip á þjóð-
veginum í Norðurárdal.
Haft var uppi á eigandin-
um sem kom og sótti naut-
gripinn. Um kl. 20 á föstu-
dagskvöldið barst tilkynn-
ing um lausa hesti nærri
Grundarfossi í Grundar-
firði. Þegar lögregla kom á
staðinn var eigandinn bú-
inn að finna hrossin og var
að koma þeim inn í girð-
ingu. -arg
Leggja ólöglega
VESTURLAND: Lögregl-
an á Vesturlandi hefur verið
að sekta bíla sem lagðir eru
ólöglega. Nokkuð er um bíla
sem til dæmis hefur verði
lagt upp á gangstétt og fyrir
það er sektað. en hætta getur
myndast þegar börn og aðrir
gangandi vegfarendur neyð-
ast til að fara út á götu til að
komast framhjá bíl á gang-
stétt, sérstaklega í tíð eins og
núna. -arg
Pósturinn rann
AKRANES: Póstburðar-
maður lenti í óhappi á Akra-
nesi þar sem rafmagnsskutla
sem notuð er við útburð
rann til og lenti á bíl. eng-
in slys voru á fólki en bíllinn
tjónaðist. -arg
Börn að
renna sér
AKRANES: Lögreglan á
Akranesi fékk heimsókn frá
ökumanni föstudaginn 6.
desember. Ökumaðurinn
tilkynnti um að hafa næst-
um ekið á barn sem var að
renna sér á sleða á Akurhól
við suðurgötu. -arg
Aflatölur fyrir
Vesturland
30. nóvember
- 6. desember.
Tölur (í kílóum)
frá Fiskistofu
Akranes: 2 bátar.
Heildarlöndun: 16.785 kg.
Mestur afli: ebbi AK:
13.965 kg í þremur löndun-
um.
Arnarstapi: engar landanir
á tímabilinu.
Grundarfjörður: 4 bátar.
Heildarlöndun: 238.759 kg.
Mestur afli: Hringur sH:
65.012 kg í einum róðri.
Ólafsvík: 14 bátar.
Heildarlöndun: 134.419 kg.
Mestur afli: Guðmundur
Jensson sH: 20.918 kg í fjór-
um löndunum.
Rif: 10 bátar.
Heildarlöndun: 169.512 kg.
Mestur afli: Hamar sH:
60.510 kg í tveimur löndun-
um.
Stykkishólmur: 5 bátar.
Heildarlöndun: 89.825 kg.
Mestur afli: Þórsnes sH:
77.731 kg í einum róðri.
Topp fimm landanir á
tímabilinu:
1. Þórsnes SH – STY:
77.731 kg. 2. desember.
2. Hringur SH – GRU:
65.012 kg. 4. desember.
3. Runólfur SH – GRU:
64.955 kg. 2. desember.
4. Farsæll SH – GRU:
57.707 kg. 3. desember.
5. Sigurborg SH – GRU:
51.085 kg. 4. desember.
-arg
Alþýðusamband Íslands ítrekar
nauðsyn þess að sveitarfélög sýni
ábyrgð og styðji við lífskjarasamn-
ingana með því að halda aftur af
hækkunum á gjaldskrám, rétt eins
og yfirlýsing sambands íslenskra
sveitarfélaga frá síðasta vori kvað á
um. „Alþýðusambandinu hafa bor-
ist fregnir af því að sum sveitarfélög
hafi gefið út að þau ætli að halda
hækkunum á gjaldskrám, þ.m.t.
fasteignagjöldum, innan við 2,5%
og taka þannig ábyrgð og taka þátt í
að stuðla að verðstöðugleika í sam-
félaginu sem er vel,“ segir í tilkynn-
ingu frá AsÍ.
„Það á þó því miður ekki við um
öll sveitarfélög en fréttir hafa bor-
ist af því að sum þeirra ætli sér að
láta íbúa bera miklar gjaldskrár-
hækkanir á komandi ári og draga
þannig úr þeim ávinningi sem lífs-
kjarasamningunum var ætlað að
skila. Þá virðast sum sveitarfélög
ætla að hækka fasteignaskatta og
önnur fasteignagjöld langt umfram
verðbólgu og bera fyrir sig þau rök
að fasteignaskattar falli ekki undir
gjaldskrár sveitarfélaga.“
bendir forysta AsÍ á að fasteigna-
skattar eru meðal þeirra útgjaldaliða
sem fasteignagjöld samanstanda
af og falla þeir því undir gjald-
skrár sveitarfélaga sem eru ákvarð-
aðar á ári hverju, rétt eins og leik-
skólagjöld og önnur gjöld. „Fast-
eignagjöld, þ.m.t. fasteignagskatt-
ar, vega í mörgum tilfellum þungt
í útgjöldum heimilanna og ljóst er
að það dugar skammt að halda aft-
ur af hækkunum á aðgangseyri ofan
í sundlaugar ef hækka á fasteigna-
skatta á sama tíma. Alþýðusam-
bandið krefst þess að sá ávinning-
ur sem kjarasamningarnir hafa veitt
heimilum landsins verði ekki eyði-
lagður með hækkun gjalda. sveit-
arfélögum landsins ber að fara að
fordæmi þeirra sveitarfélaga sem
ætla að sýna ábyrgð og halda aftur
af hækkunum á öllum þeim gjald-
skrám sem snerta heimili lands-
ins.“
mm
Framkvæmdir við rúmlega 100
fermetra móttökuhús fyrir sjúkra-
bíla við Heilbrigðisstofnun Vest-
urland á Akranesi standa nú yfir.
Framkvæmdir hófust í nóvember
og þeim á að ljúka í júní á næsta
ári. er húsið kærkomin viðbót við
aðstöðu sjúkrahússins en fram til
þessa hefur ekkert skýli verið fyr-
ir sjúklinga þegar þeir eru færð-
ir inn eða út úr sjúkrabílunum.
„Þetta hefur verið mikið ófremd-
arástand þar sem við höfum þurft
að fara með sjúklinga inn og út
undir beru lofti þar. Við höfum
barist fyrir að byggt yrði yfir mót-
tökuna í örugglega 20 ár,“ segir
Gísli björnsson, yfirmaður sjúkra-
flutninga HVe. Þá segir hann að
planið fyrir framan móttökuhúsið
verði grafið upp, lagnir endurnýj-
aðar og nýtt malbik sett yfir.
Líka hugsað sem
greiningarsvæði
Að sögn Gísla er húsið einnig
hugsað sem greiningarsvæði í að-
stæðum sem gætu myndast, t.d.
vegna hópslysa, ef alvarlegar sýk-
ingar breiðast út eða það kem-
ur upp stór bruni. „Þetta verð-
ur upphituð aðstaða þar sem hægt
verður að taka fyrstu meðhöndl-
un og greiningu,“ segir Gísli. Að-
spurður segir hann að á meðan
framkvæmdum standi sé ekki hægt
að nota sjúkrabílamóttökuna. „Við
þurfum að koma með sjúklinga að
aðalinnganginum að framanverðu.
Það er ekki þægileg aðkoma fyr-
ir sjúklinga og getur verið vont
að keyra sjúklinga innan um ann-
að fólk. „en við erum himinlifandi
að fá þetta hús og erum glaðir til-
búnir að breyta aðeins til á meðan
húsið er byggt,“ segir Gísli.
arg
Húsbygging í gangi. Ljósm. úr safni.
Hvetja sveitarfélögin til að halda
aftur af gjaldskrárhækkunum
Framkvæmdir við móttökuhús fyrir sjúkrabíla við sjúkrahúsið á Akranesi standa nú yfir.
Móttökuhús fyrir sjúkrabíla
rís á Akranesi