Skessuhorn - 11.12.2019, Blaðsíða 17
MIÐVIKUDAGUR 11. DeseMbeR 2019 17
tilboð frá Gagnaveitunni ehf.
Ljósleiðari Borgarbyggðar
Sími 546 0400
Gegn árs binditíma þá er:
- Ekkert stofng�ald.
- Ekkert tengig�ald einungis er greitt fyrir
lagnavinnu ef beinir þarf að vera
annars staðar en hjá ljósleiðarainntaki.
- Fyrstu 3 mánuðir samningstímans
fríir, þ.e. eingöngu er greitt línug�ald.
Sjónvarpsmál
Að okkar mati er Internetið
sjónvarpdreifikerfi framtíðar-
innar og Apple TV 4 sá afrugl-
ari sem er hvað vinsælastur í
dag meðal þeirra sem senda út
vandað sjónvarpsefni.
Þar getur þú verið með Nova
TV, RÚV og tímaflakkið (Sarp-
inn), Stöð 2, Netflix, Hulu og
margt fleira.
Núverandi
loftljóshafar sem
vilja skipta yfir
í ljósleiðarann,
borga ekkert fyrir
breytingu.
Loftljósið
verður áfra
m
í fullu gildi
!
Gagnaveitan býður eftirfarandi
í tilefni opnunar inn á ljósleiðarann.
Ótakmarkað Internet á 6.990 kr.
á mánuði fyrir utan línug�ald.
Opið hús – allir velkomnir
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
9
Opið hús í Grunnskólanum í Borgarnesi
föstudaginn 13. desember kl. 14:30 – 16:00
Framkvæmdir við Grunnskólann í Borgarnesi ganga samkvæmt
áætlun og var fyrri áfangi afhentur til notkunar í haust.
Seinni áfanga verður lokið haustið 2020. Í fyrri áfanga er
viðbygging sem inniheldur sal skólans og eldhús ásamt björtu
kennslurými fyrir yngsta stig skólans á annarri hæð. Allar list-
og verkgreinastofur skólans voru endurgerðar á fyrstu hæð, en
þar eru stofur fyrir heimilisfræðikennslu, smíðakennslu, textíl
og myndmennakennslu. Öll aðstaða til kennslu fyrir nemendur
og starfsfólks er til fyrirmyndar.
Efnt hefur verið til nafnasamkeppni á sal skólans meðal
nemenda og kennara og mun vinningstillagan verða tilkynnt
á opnu húsi.
Íbúum Borgarbyggðar er hér með boðið í heimsókn,
verið velkomin!
verður að gera ráð fyrir öllum þeim
söguþráðum sem geta orðið til út
frá því sem notandinn gerir. segj-
um til dæmis að þú sért að skrifa
gagnvirka sögu um Rauðhettu. Í
byrjuninni þá biður mamma henn-
ar hana um að fara með körfu af
mat til ömmu. Rauðhetta, stjórnað
af notandanum, gæti hugsanlega
sagt nei hér, en sagan þyrfti samt að
halda áfram og í hennar stað þyrfti
mamma hennar hugsanlega að fara
til ömmu. ef Rauðhetta segir já, þá
getur notandinn hugsanlega valið
hvaða mat Rauðhetta tekur með,
hvaða leið Rauðhetta fer í gegn-
um skóginn til að komast til ömmu
sinnar og hvað hún gerir á leiðinni.
Hver og ein ákvörðun getur haft
áhrif á það hvenær Rauðhetta hittir
úlfinn, undir hvaða kringumstæð-
um og það hefur svo áhrif á það
hvernig sagan endar. Til dæmis,
ef Rauðhetta hittir veiðimanninn í
skóginum og segir honum frá úlfin-
um, gæti veiðimaðurinn ákveðið að
koma með til að vernda hana. Það
myndi augljóslega hafa stór áhrif
á það hvað gerist þegar Rauðhetta
kemst til ömmu sinnar. Hönnuð-
urinn þarf að hugsa um alla þessa
möguleika og sjá til þess að hver
og ein ákvörðun passi inn í söguna
og að notandinn skilji hvað hægt er
að gera og hvaða afleiðingar hver
ákvörðun hefur. Hvern söguþráð
þarf að skrifa sérstaklega og með
hverjum og einum aukamöguleika
eða ákvörðun þá bætist nýr þráð-
ur við. Manneskjur geta ekki haft
yfirsýn yfir svona marga mögu-
leika í einu og það veldur alls kon-
ar hönnunarvandamálum. Það eru
slík vandamál sem ég horfi hvað
mest á,“ útskýrir elín. „Mín vinna
og rannsóknir snúast í heildina um
það að finna leiðir og lausnir til
að minnka kostnað við hönnun og
framleiðslu tölvuleikja.“
Besta starfið
á markaðnum
en hvernig kom það til að hún er nú
komin í sílikondalinn? „Ég var ráð-
in í þetta starf í maí, áður en ég klár-
aði doktorsritgerðina mína, sem ég
varði núna í byrjun nóvember. Það
er sjaldgæft að fá svona ráðningu án
þess að hafa lokið náminu og það
er því mikill heiður fyrir mig. UC
santa Cruz er einn öflugasti rann-
sóknarháskólinn á sviði tölvuleikja
í heiminum. Þetta er á vissan hátt
eins og að hafa verið valin í ólymp-
íuliðið á þessu sviði,“ segir elín og
hlær. Hún ákvað að sækja þar um
starf þegar það var auglýst í lok síð-
asta árs en einnig var haft samband
við hana beint og hún beðin um að
sækja um. „Það er ekki óvenjulegt
að haft sé samband við fólk og það
beðið um að senda inn umsókn. ef
nefndinni sem sér um val á starfs-
fólki líst vel á einhvern er gjarnan
beðið um umsókn. en fyrir mig var
þetta besta starfið á markaðnum á
þessum tímapunkti svo ég hefði
alltaf sótt um, jafnvel þó ég hefði
ekki verið beðin um það. Mér var
svo sagt síðar að þetta hefði ekki
verið neinn vafi, þau vildu fá mig
áður en ég hafði sent inn umsókn,
sem er mikill heiður,“ segir elín
ánægð.
Heimurinn að breytast
Aðspurð segir elín hefðbundinn
vinnudag í UC santa Cruz ein-
kennast fyrst og fremst af fund-
um. „stundum þarf maður að fara á
marga og langa fundi en svo koma
tímabil þar sem tíminn fer í að skrifa
greinar um niðurstöður rannsókna
sem verið er að gera. Það er oft-
ast eitthvað sem þarf að vinna mjög
hratt svo þá situr maður bara við og
dagarnir verða langir. en annars fer
það bara eftir því hvað er í gangi
hverju sinni hvernig dagarnir eru,
þetta er mjög fjölbreytt starf og
manni leiðist aldrei. Að hafa svona
mikla ástríðu fyrir starfinu sínu og
að vinna með fólki með þessa sömu
ástríðu, gáfaðasta fólki heims sem
er endalaust að hugsa um nýja og
spenandi hluti á jaðri tæknifram-
faranna, það eru mikil forréttindi,“
segir elín. „Þetta er mikil vinna en
mikill lúxus líka. Vinnudagarnir eru
langir og maður er eiginlega alltaf
í vinnunni, hún fylgir manni heim
á kvöldin. Ég er mjög þakklát fyr-
ir að fá tækifæri til að vinna á stað í
hæsta gæðaflokki með ólympíulið-
inu af fólki á mínu sviði. Þetta er
tækifæri sem ég vil nýta eins vel og
ég get. Að vera hér í sílikondalnum
í hringiðu tækniheimsins er rosa-
lega spennandi,“ segir elín og bæt-
ir því við að eftir áramót taki við
vinna við kennslu og rannsóknir.
Draumurinn að geta
unnið frá Íslandi
Aðspurð segist hún ekki vera á leið-
inni heim til Íslands á næstunni. „Ég
ætla að njóta þess að vera hér,“ seg-
ir hún og bætir við að það séu ekki
mörg störf fyrir manneskju með
hennar menntun á Íslandi. „Ætli
háskólaprófessorstaða sé ekki það
eina sem væri í boði. Það er ekki
mikið í boði á Íslandi fyrir fólk með
menntun eins og mína en það er þó
að breytast og hver veit nema tæki-
færin komi fljótlega. Heimurinn
er að breytast og fólk er farið að
vinna oft úr mikilli fjarlægð í gegn-
um netið og flýgur kannski bara á
milli staða ef á þarf að halda, sem
er reyndar ekki umhverfisvænt. en
starfænar lausnir eru líka að verða
fleiri og betri og draumurinn er að
geta unnið frá Íslandi einn daginn,“
segir elín.
arg/ Ljósm. aðsendar
Elín Carstensdóttir.
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
9
Akraneskaupstaður yfir jól og áramót
Athugið að opnunartími er hefðbundinn fyrir utan eftirfarandi daga:
Akranesviti
23.-26. desember
Lokað
30. desember til 1. janúar
Lokað
Bæjarskrifstofa
24.-26. desember
Lokað
31. desember og 1. janúar
Lokað
Bókasafn Akraness
24.-26. desember
Lokað
30. desember - 1. janúar
Lokað
Íþróttamiðstöðin
og Jaðarsbakkalaug
23. desember
09:00-18:00
24. desember
08:00-11:00
25.-26. desember
Lokað
30. desember
09:00-18:00
31. desember
08:00-11:00
1. janúar
Lokað
Guðlaug
25.-26. desember
Lokað
1. janúar
Lokað
Íþróttahús Vesturgötu
21.-26. desember
Lokað
28.-29.desember
Lokað
31.desember-1.janúar
Lokað
Bjarnalaug
Lokað frá 22. desember til
og með 3. janúar 2020.