Skessuhorn - 11.12.2019, Qupperneq 20
MIÐVIKUDAGUR 11. DeseMbeR 201920
Víða um landshlutann voru jóla-
ljós tendruð á jólatrjám fyrstu vik-
una í aðventu. Hólmarar söfnuð-
ust saman og kveiktu ljósin á trénu
frá Drammen í Hólmagarði síð-
asta miðvikudag. Veðrið var með
besta móti og margt um mann-
inn. Tónmenntanemar Grunnskól-
ans í stykkishólmi sungu jólalög,
kvenfélagskonur seldu heitt súkk-
ulaði og smákökur, jólasveinarnir
kíktu í heimsókn og gáfu börnun-
um mandaríur og að sjálfsögðu var
stiginn dans í kringum jólatréð.
Um árabil hafa Hólmarar feng-
ið jólatré að gjöf frá vinabænum
Drammen í Noregi. Í ávarpi bæj-
arstjóra þegar ljósin voru tendruð
kom fram að tréð í ár væri það síð-
asta. Drammen mun líklegast sam-
einast öðru sveitarfélagi á næstu
misserum og óljóst hvað verður um
formlegan vinskap bæjanna. Í ljósi
þess samþykkti bæjarráð stykkis-
hólms fyrir skemmstu að þetta yrði
síðasta jólatréð sem bæjaryfirvöld
þiggja að gjöf frá Norðmönnum.
bæjarstjóri tók þó fram að hefðir
Hólmara lifðu áfram og að áfram
yrðu tendruð ljós á jólatrjám í bæn-
um þó þau væru ekki fengin frá
Noregi. kgk/ Ljósm. sá.
Guðrún Lára bouranel var í meist-
aranámi í lýðheilsuvísindum þeg-
ar hún ákvað að taka sér smá frí frá
námi árið 2015. Hana vantaði eitt-
hvað til að gera við tímann sinn
og dró fram saumavélina og byrj-
aði að sauma föt í gjafir fyrir fjöl-
skyldu og vini. Fljótlega spurðist út
um saumaskapinn og áhugasamir
fóru að hafa samband við hana um
hvort hægt væri að leggja inn pant-
anir. Það endaði með því að um
haustið 2015 var Guðrún búin að
stofna fyrirtækið Guggzý utan um
fatasauminn og opnaði Facebook-
síðu til að koma fyrirtækinu á fram-
æri. „Ég fór ekki aftur í nám eins
og stóð til,“ segir Guðrún og hlær.
„Það var bara ekki aftur snúið og ég
hef verið að sauma síðan.“
Fikraði sig áfram í
saumaskapnum
Guðrún er fædd og uppalin í Ólafs-
vík en býr í dag í Reykjavík. „Ég
flutti í bæinn þegar ég fór í fram-
haldsskóla, eins og svo margir sem
alast upp úti á landi. Ég hef ekki
snúið aftur en fer samt alveg reglu-
lega í Ólafsvík,“ segir Guðrún. Að-
spurð segist hún ekki hafa lært fata-
saum og að stefnan hafi aldrei ver-
ið að starfa við það. „Ég kláraði
grunnnám í sálfræði og var í mast-
ersnámi í lýðheilsuvísindum þeg-
ar ég tók pásu frá náminu,“ seg-
ir Guðrún. „Það var mamma sem
kenndi mér upphaflega að sauma
þegar ég var krakki og svo var ég
auð vitað í handavinnu í grunn-
skóla. en það sem ég kann í dag hef
ég mest lært bara sjálf. Ég hef mikið
horft á kennslumyndbönd á netinu,
skoðað saumabækur og svo bara
fiktað og þannig fikrað mig áfram,“
segir hún.
Fötin fjármögnuðu
glasameðferð
Guðrún á eina litla tveggja ár
stelpu sem má segja að hafa orðið
til í gegnum saumaskap mömmu
sinnar. „Það er frekar skemmti-
legt að segja frá en þegar ég byrj-
aði að sauma barnafötin átti ég ekki
börn sjálf. Það sem í raun keyrði
mig áfram út í þennan saumaskap,
fyrir utan hversu skemmtilegt mér
þykir þetta, var að við þurftum að
fjármagna glasameðferð. Það kost-
ar sitt að fara í slíka meðferð svo
ég fór að selja fötin og öll salan fór
bara beint í að borga fyrir meðferð-
ina. Viðskiptavinir mínir eiga smá
í dóttur minni,“ segir Guðrún og
hlær. Hún var því vel sett með lager
ef fötum á nýfædda dóttur sína þeg-
ar hún kom í heiminn fyrir tveim-
ur árum. „Það er óhætt að segja að
hana hafi ekki vantað föt. Ég pass-
aði alltaf áður en hún fæddist að
geyma fyrstu flíkurnar sem ég var
að sauma fyrir mitt barn því ég ætl-
aði mér alltaf að eignast barn,“ seg-
ir Guðrún.
Föt úr lífrænni bómull
Fötin sem Guðrún saumar eru
barnaföt úr lífrænni bómull fyrir
allt frá nýfæddum börnum upp í 7-8
ára. „Öll efnin sem ég kaupi fæ ég
frá hönnuðum í svíþjóð og ég veit
nákvæmlega hvaðan efnin koma,
hver teiknaði hvert og eitt efni
og úr hverju það er búið til,“ seg-
ir Guðrún og bætir því við að hún
noti þunnt og mjúkt ullarefni innan
í lambhúshettur. „Það er eina efn-
ið sem ég nota sem er ekki lífrænt,“
segir hún. Fötin er hægt að kaupa
í Útgerðinni í gamla Pakkhúsinu í
Ólafsvík auk þess sem hægt er að
hafa samband við Guðrúnu í gegn-
um samfélagsmiðlasíður Gúggzý,
bæði á Facebook og Instagram, til
að leggja inn pantanir. „Ég er líka
dugleg að taka þátt í mörkuðum og
um næstu helgi, 14. desember verð
ég í Listasafni Reykjavíkur með föt-
in,“ segir Guðrún.
arg/ Ljósm. úr einkasafni.
Börnin létu sig að sjálfsögðu ekki vanta, enda jólasveina að vænta.
Síðasta jólatréð frá Drammen
Hólmarar tendruðu ljósin á jólatrénu frá Drammen síðastliðinn miðvikudag.
Nemendur grunnskólans sungu jólalög á skemmtuninni.
Fötin eru litrík og skemmtileg.
„Viðskiptavinir mínir eiga smá í dóttur minni“
- segir saumakonan Guðrún Lára Bouranel
Guðrún með fjölskyldunni sinni.
Fötin sem Guðrún saumar eru úr líf-
rænni bómull.
Mjúk og þægileg föt fyrir börn.