Skessuhorn - 11.12.2019, Qupperneq 25
MIÐVIKUDAGUR 11. DeseMbeR 2019 25
Hafnargæslumaður við Grundartangahöfn.
Faxaflóahafnir sf. óska eftir að ráða hafnargæslumann við Grundartangahöfn.
Starfið felst m.a. í aðgangsstjórnun og öryggisgæslu á afgirtu svæði Grundartanga og
almennri hafnargæslu þar.
Viðvera starfsmanns er í vakthúsi Grundartangahafnar og unnið er allan sólarhringinn
samvæmt fyrirliggjandi vaktakerfi.
* Meginverkefni eru aðgangsstjórnun, öryggisgæsla, eftirlit með farmverndarskjölum,
skráning á umferð og farmi og önnur tilfallandi störf tengd starfssviði viðkomandi starfs.
* Hæfniskröfur eru gott líkamlegt og andlegt ástand, góð íslensku-, ensku-, og almenn
tölvukunnátta. Starfsmaður skal sækja námskeið Samgöngustofu um hafnargæslu.
Þar sem í gildi eru ákvæði laga um hafnavernd þá er óskað eftir að umsækjandi leggi fram
hreint sakavottorð með umsókn sinni.
Umsókn ásamt ferilskrá sendist til Faxaflóahafna sf., á netfangið olafur@faxafloahafnir.is,
eigi síðar en föstudaginn 20. desember n.k.
Nánari upplýsingar um starfið gefur
Bergsteinn Ísleifsson, öryggisfulltrúi bergsteinn@faxafloahafnir.is
Faxaflóahafnir hafa staðist jafnlaunavottun og hlotið Jafnlaunamerki Velferðarráðuneytis.
Milla Ósk Magnúsdóttir hefur ver-
ið ráðin aðstoðarmaður Lilju Al-
freðsdóttur, mennta- og menning-
armálaráðherra. Hún hefur undan-
farinn áratug starfað hjá Ríkisút-
varpinu, síðustu ár sem fréttamað-
ur en áður sem aðstoðarframleið-
andi frétta og dagskrárgerðarkona
í bæði útvarpi og sjónvarpi.
Milla er með ML-próf í lögfræði
frá Háskólanum í Reykjavík, þar
sem hún sérhæfði sig í fjölmiðla-
rétti, auk þess að leggja áherslu á
persónuupplýsinga- og vinnurétt.
Hún hóf störf í ráðuneytinu í gær,
þriðjudaginn 10. desember. sam-
hliða þessu mun Hafþór eide Haf-
þórsson láta af störfum, en hann
hefur verið aðstoðarmaður mennta-
og menningarmálaráðherra frá því í
desember 2017.
kgk
skyrgámur og bjúgnakrækir verða
í KM þjónustunni í búðardal föstu-
daginn 13. desember þar sem þeir
ætla að taka stöðuna í upphafi ver-
tíðar. Í tilkynningu sem skyrgám-
ur sendi skessuhorni hvatti hann
bræður þeirra ennig til að mæta.
„Það eru nokkur atriði sem við
þurfum að fara í gegnum, til dæmis
óþekktarlistann, en þar hefur orðið
töluverð breyting frá í fyrra,“ seg-
ir skyrgámur í tilkynningunni. Þá
segir hann einnig að þeir þurfi að
ákveða hvernig farið verður með
kertin sem Kertasníkir kemur með
til baka á jólanótt. „Þið munið
hvernig fór í fyrra, þegar við vorum
nærri búnir að kveikja í bílskúrnum
hjá Gilbert því gastækin hans voru
of öflug til að kveikja á kertunum,“
segir skyrgámur og bætir því við að
einnig þurfi að taka ákvörðun um
skiptingu arðs. „Vonumst til að þið
sjáið ykkur fært að mæta dreng-
ir. en þeir ykkar sem ekki komast,
þá er einnig í boði að tala saman í
gegnum Facebook síðuna mína,“
segir skyrgámur í skilaboðum til
bræðra sinna.
Öllum er frjálst að koma og hitta
bræðurna í KM þjónustunni á milli
kl 16 og 17 á föstudaginn og verða
þeir jafnvel með eitthvað góðgæti
í poka fyrir gesti. Þeir sem eru
hræddir um að vera á listanum yfir
óþekka geta tékkað á því og reynt að
fá það leiðrétt. Listinn yfir óþekka
verður hengdur upp í KM þjónust-
unni miðvikudaginn 11. desember.
arg
Fullveldishátíð var haldin í Heið-
arskóla í Hvalfjarðarsveit á þriðju-
daginn í síðustu viku en hátíðin er
haldin ár hvert. Þar stigu fyrst á
svið nemendur í 1. og 2. bekk og
sýndu leikrit um Hans og Grétu og
réttindi barna. Að því loku fengu
þau til liðs við sig elstu börnin úr
leikskólanum skýjaborg og sam-
an sungu þau fyrir gesti. Að því
loknu tóku nemendur á unglinga-
stigi sviðið þar sem þeir sýndu leik-
ritið Öldina okkar. Þar fóru þau
yfir íslenskt grín frá síðustu ára-
tugum og má þar nefna Kaffibrúsa-
karlana, Fóstbræður, spaugstofuna
og fleira.
arg
síðastliðinn laugardag voru sjálf-
boðaliðar Vesturlandsdeildar Villi-
katta með sölubás í bónushúsinu á
Akranesi. Margir lögðu leið sína á
markaðinn og keyptu ýmislegt góð-
gæti, skraut eða annað til að styrkja
gott málefni. „Áhugi ykkar og góð-
mennska mun styrkja villiketti langt
fram á vetur,“ segir á Facebook síðu
Villikatta á Vesturlandi. arg
Jólatónleikar Kirkjukórs Ólafsvík-
ur fóru fram á síðasta fimmtudag.
Á efnisskrá tónleikanna voru jóla-
lög úr ýmsum áttum en þrír ein-
söngvarar komu fram á tónleikun-
um. Olga Guðrún Gunnarsdótt-
ir og Jón bjarki Jónatansson, sem
bæði syngja í kórnum, og Veronica
Osterhammer, stjórnandi kórsins,
sungu einsöng. Um undirleik sá
elena Makeeva undirleikari kórs-
ins. Tónleikarnir voru vel sóttir af
íbúum snæfellsbæjar og myndaðist
góð stemmning í Ólafsvíkurkirkju,
sem var fallega skreytt. Kórinn hóf
tónleikana á því að flytja englakór
frá Himnahöll að því loknu bauð
Veronica tónleikagesti velkomna
og deildi með þeim jólaminningu
frá sér áður en hún kynnti næstu
tvö lög. Var þetta skemmtilegt
uppbrot og deildu þeir kórfélagar,
sem sáu um að kynna, einnig sín-
um jólaminningum. eins og svo
oft áður söng kórinn tónleikagesti
út úr kirkjunni og niður í safnað-
arheimili kirkjunnar þar sem boðið
var upp á kaffi og konfekt.
þa
Jólatónleikar Kirkjukórs Ólasvíkur fóru fram á fimmtudaginn.
Vel sóttir jólatónleikar í Ólafsvík
Fullveldishátíð í Heiðarskóla
Milla aðstoðar
ráðherra
Sjálfboðaliðar settu upp sölubás fyrir Villiketti á Vesturlandi. Ljósm. Villikettir á
Vesturlandi.
Margir styrktu Villiketti
Ert þú á lista yfir óþekka?
Jólasveinarnir mættu í bíl frá Björgunarsveitinni Ósk fyrir jólin 2017.