Læknablaðið - des. 2018, Síða 38
570 LÆKNAblaðið 2018/104
Svo fáir læknar eru víðs vegar um land að
þungi þjónustunnar hvílir á herðum eins
eða örfárra lækna, sagði Svandís Svavars-
dóttir heilbrigðisráðherra þegar hún
ávarpaði aðalfund Læknafélagsins. Bæta
þurfi aðgengi allra landsmanna að heil-
brigðisþjónustu hér á landi.
„Það verður að vera samvinnuverkefni
stjórnvalda og lækna sjálfra að tryggja
viðunandi heilbrigðisþjónustu um land
allt,“ sagði hún þegar hún stiklaði á helstu
málum sem hún hyggðist koma í fram-
kvæmd í ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur.
Svandís ræddi nýja heilbrigðisstefnu
og hvernig leggja ætti aukna áherslu á
heilsugæslu landsins.
Minntust bæði á laun lækna
Salur Læknafélagsins var þéttsetinn á
þessum fyrsta aðalfundi eftir að aðildarfé-
lögin urðu fjögur; Félag almennra lækna,
Félag íslenskra heimilislækna, Félag
sjúkrahússlækna og Læknafélag Reykja-
víkur. Svandís kom einnig inn á kjör
lækna og að þau væru samkeppnishæf við
það sem gerist í öðrum löndum. „Þar höf-
um við náð til lands,“ sagði hún.
Reynir Arngrímsson, formaður Lækna-
félagsins, setti fundinn og í greinargerð
um starfsárið kom hann inn á kjörin og
komandi kjaraviðræður. Sagði að þrátt
fyrir kjarabætur í viðræðunum 2014 væri
ljóst að laun lækna hefðu ekki hækkað
sem skyldi, miðað við aðrar stéttir. Hann
Vandi landsbyggðarinnar verði leystur
Aðalfundur Læknafélagsins var haldinn 8.-9. nóvember
■ ■ ■ Gunnhildur Arna Gunnarsdóttir
Reynir formaður og Svandís ráðherra í pontu við upphaf aðalfundarins 2018, – í ársskýrslu formanns var rakin
dagskrá afmælisársins sem nú er að renna sitt skeið. Félagið, læknar, Læknablaðið, Læknadagar, alls staðar hefur 100
árum í sögu félagsins verið fagnað. – Hápunkturinn var fundur alþjóðafélags lækna, WMA, í Hörpu í októberbyrjun.
Myndir/gag.
Ný skipan liðsheildarinnar innan LÍ gerði það að verkum að það var nýr andi og fersk stemmning á þessum aðalfundi. Mynd/Védís