Hugur og hönd


Hugur og hönd - 01.06.1967, Blaðsíða 11

Hugur og hönd - 01.06.1967, Blaðsíða 11
MILLIDÚKAR í skyttuþráð hægri handar og síðan er löngutöng vinstri handar lyft og mynd- ast þá fyrra hnútbragðið, rétthverfur hnútur, úr lykkjunni en ekki skyttu- endanum. Og það er mikilvægt atriði, því þegar búið er að gera seinna hnút- bragðið, á að vera hægt að renna tvö- falda hnútnum eftir lykkjunni, en það er því aðeins hægt að hnútarnir hafi myndast úr lykkjunni en ekki skyttuend- anum. Jafnóðum og hver hnútur er hnýttur, er honum haldið föstum með þumal- fingri og vísifingri á meðan þeim næsta er brugðið. 3. mynd sýnir hvernig ranghverfi hnúturinn er hnýttur. Nú er bandið ekki dregið upp með fingrinum, heldur niður. Skyttunni er þá stungið aftanfrá, yfir lykkjuna og fram á við, eins og örin sýnir. Hnúturinn er að öðru leyti dreginn saman eins og rétthverfi hnúturinn. Þessir tveir hnútar mynda tvöfalda hnútinn, eins og að framan er sagt. Lykkjulaufin eru búin til á þann hátt, að tveir tvöfaldir hnútar eru hnýttir með millibili, og fer stærð lykkjulauf- anna eftir því, hvað þau millibil eru löng. 5. og 6. mynd sýna hvernig lykkjulaufin myndast, þegar hnútarnir eru dregnir saman. Þegar búið er að bregða ákveðna tölu af tvöföldum hnút- um með eða án lykkjulaufa, þá er lykkjunni af vinstri hendi rennt fram af fingrinum, en haldið um hnútana með þumalfingri og vísifingri meðan hringurinn er dreginn saman. Svo er bandinu brugðið aftur um vinstri hendi og byrjað á nýjum hring. Þegar hefta á með lykkjulaufi, er bandið, sem ligg- ur um vinstri hendi, dregið með heklu- nál í gegnum eitt lykkjulauf á fyrra hring, svo er orkeringaskyttunni stungið í gegnum þá lykkju og hert að. 8. mynd sýnir hvernig unnið er með tveimur skyttum. Til að mynda beinar línur og boga eru hafðar tvær skyttur, eða ein skytta og hjálparþráður. Þegar bandið á skyttunni þrýtur, þá er vafið upp á skyttuna að nýju, og er þá band- inu hnýtt þar saman, sem nýr hringur byrj ar. Skammstaf anir: Skytta Tvöfaldur hnútur . . . tvhn. Lykkjulauf . lykkj ul. Samtengingarlykkj ulauf . s. lykkjul. Hringur . h. Snú við . snv. Fest saman . fest s. Dregnir saman . . . . drs. Lítill . Itl. Stór . st. frh. á bls. 22 HUGUR OG HÖND 11

x

Hugur og hönd

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Hugur og hönd
https://timarit.is/publication/1414

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.