Hugur og hönd - 01.06.1967, Blaðsíða 20
SKOTTHÚFA
Undanfarna áratugi hefur saumuð
skotthúfa úr flaueli orðið algengast
höfuðfat við íslenzka þj óðbúninginn
á kostnað prjónuðu skotthúfunnar.
Prjónahúfan hefur þó flesta kosti fram
yfir flauelshúfuna. Hún er fallegri í
sjálfu sérc klæðilegri og hentugri. Kon-
ur, sem eiga eða hafa í huga að koma
sér upp íslenzkum búningi, ættu því
hiklaust að taka prjónuðu húfuna fram
yfir þá saumuðu. Það getur ekki talist
mikil þraut fyrir þann, sem hefur sæmi-
lega sjón, að prjóna eina skotthúfu. Þó
að garnið sé fínt og prjónarnir grannir,
er fatið svo fjarska lítið að því verður
lokið á fáeinum klukkustundum.
Hér fer á eftir uppskrift af prjónaðri skott-
húfu. Efnið er fínt, þrinnað, svart garn, 15-
20 g. Sokkaprjónar nr. IVi.
Fitja laust upp 220 1. á fjóra prjóna (55 1.
á prjón). Prjóna áfram slétt prjón 4% cm.
eða meira, ef húfan á að vera djúp. Þá
er byrjað að taka úr. Þess er gætt, að sem
minnst beri á úrtökunni. Alltaf eru teknar
úr 4 lykkjur í einni úrtökuumferð, eða að-
eins 1 lykkja á hverjum prjóni. Urtökulykkj-
urnar mega ekki koma hver ofan við aðra,
heldur er þeim dreift eftir vissum reglum.
Úrtökunni er hér skipt í fimm áfanga.
I. úrtaka:
1. umferð: 2 1. saman, 53 1. sléttar.
2. umferð: slétt án úrtöku.
3. umferð: 5 1. sl., 2 1. saman, 47 1. sl.
4. umferð: slétt án úrtöku.
5. umferð: 10 1. sl., 2 1. saman, 41 1. sl.
Þannig er haldið áfram. Með hverri umferð
prjónað 5 lykkjum meira að úrtökulykkjum.
Eftir hverja af fyrstu fjórum úrtökuumferð-
unum er prjónuð ein umferð án úrtöku, eftir
það er tekið úr í hverri umferð. Síðasta um-
ferðin og sú 13. í þessum áfanga (9. úrtöku-
umf.) verður þá: 40 1. sl., 2 I. saman, 5 1. sl.
(46 1. á prjóni).
II. úrtaka:
1. umferð: 2 1. saman, 44 1. sl.
2. umferð: 4 1. sl., 2 1. saman, 39 1. sl.
3. umferð: 8 1. sl., 2 1. saman, 34 I. sl. 0. s. frv.
9. urnferð: 32 I. sh, 2 1. saman, 4 1. sl. (37 1.
á prjóni).
III. úrtaka:
1. umferð: 2 1. saman, 35 1. sh
2. umferð: 3 1. sl., 2 1. saman, 31 1. sh
3. umferð: 6 1. sl., 2 1. saman, 27 1. sl. 0. s. frv.
9. umferð: 24 1. sh, 2 1. saman, 3 1. sl. (28 1.
á prjóni).
IV. úrtaka:
1. umferð: 2 1. saman, 26 1. sl.
2. umferð: 2 1. sl., 2 1. saman, 23 1. sl.
3. umferð: 4 1. sl., 2 1. saman, 20 1. sl. o. s. frv.
9. umferð: 16 1. sl., 2 1. saman, 2 1. sl. (19 1.
á prjóni).
V. úrtaka:
1. umferð: 2 I. saman, 17 1. sl.
2. umferð: 1 1. sl., 2 h saman, 15 1. sh
3. umferð: 2 1. sl. 2 1. saman, 13 1. sl. 0. s. frv.
9. umferð: 8 1. sl., 2 1. saman, 1 1. sh (10 1.
á prjóni).
I næstu þrem umferðum er lykkjum fækkað
í 7 lykkjur á prjón. Þá er skottið prjónað
jafnlangt húfunni, lykkjum aftur fækkað í 5
lykkjur á prjón í tveim umferðum, 1 til 2 um-
ferðir án úrtöku prjónaðar á milli. Síðan er
enn prjónað um IV2 cm. Fellt af. Saumaður
inn örmjór faldur, húfan pressuð og skottið
teygt lítið eitt um leið. Þegar húfan er látin
rísa að framan er dregið í blábrúnina og hún
aðeins látin hafast við á 8 til 10 cm bili.
Hólknum er síðan smeygt upp á og skúfur
saumaður við skottið.
Skotthúfugarn og prjónar eru til sölu hjá ísh
heimilisiðnaði, Laufásvegi 2, Reykjavík.
Skúfar fást í Baldursbrá, Skólavörðustíg 4.