Hugur og hönd - 01.06.1967, Blaðsíða 15
Hinn 21. maí 1903 giftist Elín seinni manni sínum Stefáni Jónssyni verzlunarstjóra
á Sauðárkróki, en missti hann 1910. - Hún tók ungar stúlkur til náms árin sem hún
var á Sauðárkróki. Ein námsmey hennar frá þeim árum skrifar: „Það, sem mér er
minnisstæðast í fari frú Elínar Briem, var hin fölskvalausa ættjarðarást hennar og
áhugi hennar fyrir öllu, sem til framfara horfði. Hún hafði miklar mætur á ungu fólki
og hvatti það til manndáða og framfara. Hún talaði of um það, að troðnar slóðir værú
ekki ætíð þær réttu. Um að gera að koma auga á umbætur á sem flestum sviðum.
Óbilandi trú á hæfileika og hæfni íslenzkra ungmenna var henni í blóð borin. Hlý-
leiki hennar og skilningur á eðli æskumanna var frábær.“ - Eftir að Elín missir
seinni mann sinn tekur hún enn við forstöðukonustarfinu á Blönduósi. Hún er
forstöðukona þar árin 1912-1915, en þá var heilsu hennar svo komið, að hún treysti
sér ekki til að starfa þar lengur.
Frú Elínu varð ekki barna auðið, en hún ól upp frænda sinn, Sæmund Helgason,
sem lengi hefur verið póstfulltrúi í Rvík.
Við Kvennaskólar.n á Blönduósi eru tveir sjóðir, sem minna á Elínu Briem, Elínar-
sjóður og Kvenmenntunarsjóður Ytri-Eyjarskóla, sem hún stofnaði sjálf árið 1894.
Á 90 ára afmæli hennar stofnuðu ættingjar og vinir Elínar tvo minningarsjóði hér
í Rvík, er annar þeirra tengdur Húsmæðrakennaraskóla Islands en hinn Handavinnu-
deild Kennaraskóla íslands. Eru verðlaun veitt úr þessum sjóðum duglegasta
nemanda hvers skóla þegar nemendur eru brautskráðir. Þá hafa einnig stúlkur úr
þessum tveim skólum notið styrks til utanfarar.
Hulda Stefánsdóttir.