Hugur og hönd - 01.06.1967, Blaðsíða 9
Gulir litir. Gott til litunar er gulvíðislauf, Lirkilauf,
beytilyng, maríustakkur, bláberjalyng, fjallagrös, snar-
rótarpunktur og ýmsar fleiri plöntur. Þessar jurtir gefa
allar gula liti og litatóna.
Rauðir litir fást úr rót krossmöðrunnar, krapprót (að-
flutt) og kochenille (blaðlús, aðflutt).
Krossmöðrurót og krapprót gefa hárauða liti. Rót
krossmöðrunnar þarf að taka á vorin, áður en plantan
blómstrar, af henni þarf mikið magn, jafna þyngd bands-
ins, sem lita skal. Miklu minna magn dugar af krapprót-
inni. Krossmöðrurótin er þurrkuð og steytt. Krossmöðru-
og krapprót má ekki sjóða, þá sloknar litur þeirra og
verður brúnleitur. Það magn af rótinni, sem lita skal úr,
er vigtað, sett í bleyti og litað úr því næsta dag. Þá er mælt
vatnsmagnið, sem lita skal úr, sett í pott og bleyttri rótinni
hellt í, og hitað í ca. 35°. Síðan er álúnsoðið og bleytt
bandið sett út í, hrevft eða hrært varlega í, hitað upp í
60-70° og haldið í þessum hitastigum í eina klukkustund,
og stöðugt hreyft í því, svo það mislitist ekki.
Kochenille gefur vínrauðan lit (carmin). Þetta litunar-
efni kemur í smákornum, og er steytt í mortéli í fínt duft,
vigtað magn lagt í bleyti eins og rótin, en það á að sjóða.
Af kochenille þarf lítið magn.
Bláir litir fást úr Indigo litnum (aðflutur). Indigo litur-
inn er allra lita endingarsterkastur og fallega blár. Með
litnum þarf ýmis kemisk efni, og talsvert margslungið
er að lita úr honum, og verður e. t. v. vikið að því í
næsta blaði.
Liablöndur og litatóna er svo hægt að fá úr þessum
höfuðlitum, svo sem græna liti, fjólubláa, rauðgula og gul-
rauða og mjög fjölbreytilega litatóna þar á milli. En þá
verður oftast að tvílita. T. d. fyrst blált svo gult eða öfugt
til þess að fá grænan lit. Kochenille og blátt í fjólubláan.
Rótarlit og gult í rauðgulu litina o. s. frv.
Kopar og járnvitrol er notað til að breyta blæ gulu lit-
anna. Koparinn gerir þá bronz brúnni, en járnið jarð-
grænna. Þá er álúnsoðna bandið soðið í gula litarleginum
ca. % úr klst. vitriol-magnið, sem nota á leyst upp í heitu
vatni, bandið tekið upp úr litarleginum, blöndunni hellt
út í, kælt niður í ca. 30°, síðan er gullitaða bandið sett
út í, smáhitað upp í suðu og þá soðið í stundarfjórðung.
Stöðugt hrært í og tekið strax upp úr, hengt upp og látið
kólna, skolað og þurrkað. Seinna þvegið. Koparvitriol
er eitur og þarf því að fara varlega með það.
Vínsteinn (cremotartari) er notaður fyrir rauðu litina,
og gerir þá skærari, en lítil aukablanda af álúni gerir
kochenille litinn bláleitari.
NOKKRAR UPPSKRIFTIR.
Milligulur litur
a) 250 g band
40 g álún
250 g birkilauf
Sterkgulur litur
b) 250 g band
40 g álún
500 g birkilauf
Gullingult
Sama uppskrift, en nú er koparvitriol sett út í.
a) 5 g koparvitriol b) 10 g koparvitriol
Gulir litir úr bláberjalyngi
a) ljósgulur b) gullin c) grængulur
a) 250 g band 40 g álún 50 g bláberjalyng.
sama uppskrift með kopar- og járnvitrioli
b) 5 g koparvitriol c) 2,5 g járnvitriol
Rauðir litir
250 g band 250 g band
40 g álún 40 g álún
‘250 g krossmöðrurót 40 g krapprót,
HXJGUR OG HÖND 9