Hugur og hönd - 01.06.1973, Qupperneq 14
Vestfirzkir laufaviharvettlingar
Fitjaðar eru upp 20 lykkjur á prjón og prjónuð brugðn-
ing 8 umferðir, 2 1 sléttar og 1 brugðin. Hér er fitjað upp
með rauðu, síðan prjónaðar 5 umf svartar og 3 umf
bláar. Þá er tekinn aðalliturinn, sem hér er mórauður,
breytt í slétt prjón og aukið í um leið einni lykkju á
hvern prjón (211). Prjónaðar 7 umf. í þessa braut voru
vettlingarnir síðan merktir með fangamarki eigandans.
Næst eru 2 umf svartar og síðan kemur taflborð, blátt
og rautt. I byrjun þess er aukið í 2 1 á prjón (23 1). Prjón-
aðar 6 umf og þá aftur 2 umf svartar. Næst koma tungur,
gular og rauðar, 5 umf alls, byrjað á 1 umf gulri og endað
á 1 umf rauðri. A henni stendur svo laufaviðurinn, blár
á svörtum grunni. Um leið og hann byrjar er aukið í 1 1
á prjón svo þær verði 24. Laufaviðurinn er 14 umf og
eftir hann koma aftur tungur, rauðar og gular, byrjað
á rauðu, endað á gulu. Síðan er 1 umf svört og þá tafl-
borð eins og áður, blátt og rautt. I byrjun þess er aukið
1 1 á prjón (251). Eftir taflborðið er 1 svört umf og upp
úr henni svört lauf í mórauðu, 6 umf. I byrjun þeirra og
endi er aukið í 1 1 á prjón (27 1).
Nú er stofninn búinn og er þá prjónað í fyrir þumlum.
20 1 eru prjónaðar með mislitu bandi á 1. og 3. prjóni,
en 7 fyrstu lykkjurnar á þeim eru færðar óprjónaðar.
Þetta er hægri handar vettlingur. Á vinstri hendi er
prjónað í á 2. og 4. prjóni og þá eru það síðustu lykkj-
urnar 7, sem ekki eru prjónaðar. Hér tekur gripinn við,
einlitur mórauður 62 umferðir. Þá byrjar aftur útprjón
með svörtum laufum eins og stofninn endaði á. Búið er
að fækka á um 1 1 á prjóni 6 umf áður, svo 26 1 eru á
prjóni á laufunum. Á eftir laufunum er 1 umf svört, síðan
koma 4 umf taflborð, blátt og rautt og eru í því 25 1
á prjóni. Á eftir því kemur 1 umf svört, síðan koma 2 umf
gular, þá 1 rauð og síðan kemur 8 umferða laufaviður,
blár á svörtum grunni með 22 1 á prjóni. Þá er fækkað
14
HUGUR OG HÖND