Hugur og hönd


Hugur og hönd - 01.06.1973, Page 15

Hugur og hönd - 01.06.1973, Page 15
um 2 1 á 1. og 3. prjóni, þegar komnar eru 6 umf af laufviðnum, þannig að það verði 7 1 bláar sarnan í síðustu 2 umf í staðinn fyrir 8 1 þá kemur 1 umf rauð 1 gul og 2 svartar. Næst eru stuðlar, rauðir og bláir með 18 1 á prjóni, síðan 1 umf svört og síðan stuðlar svartir og mó- rauðir með 15 1 á. Þá eru prjónaðar 6 umf mórauðar, í lok þeirra eru 10 1 á prjóni. Þá koma 2 umf bláar og síðast 5 umf svartar. Að lokum er dregið í gegnum síðustu lykkj- urnar 2 á hv. prjóni. Úrtökurnar eru aðallega í byrjun 1. og 3. prjóns og við endi 2. prjóns og 4., 2 1 eru fyrir utan úrtökurnar á hverjum prjóni. A þumlinum eru 40 1 (20 1 á hlið). Þegar komnar eru 14 umf mórauðar eru prjónaðir stuðlar, svartir og mó- rauðir 2 umferðir, síðan 1 umf svört, þá bláir og rauðir stuðlar 2 umf, síðan 1 umf svört og síðast aftur mórauðir og svartir stuðlar. Eftir það eru prjónaðar 14 mórauðar umf undir úrtökur. Teknar eru úr 4 1 í umferð: 1 1 á hvorum jaðri og 2 neðan á fingurgómnum, þar eru 4 1 á milli úrtaka. Prjónaðar eru yfir einu sinni 3 umf, einu sinni 2 og einu sinni 1 umferð. Totan er svört, 4 síðustu umferðirnar á þumlinum. Þessir vettlingar voru prjónaðir á smáa prjóna, líklega nr. lj/2- í þá var notað smátt tvinnað band úr góðu þeli, fallega mórauðu. Hér var alltaf talað um smátt band og stórt, en ekki fínt og gi'óft. í mynstrið í vettlingunum var litað hvítt þelband. í þcssum vettlingum eru mynst- urlitirnir samt ullargarn, nema sá svarti. Ingileif Ólafs- dóttir, amma mín, prjónaði þá á gamals aldri, en hún var fædd 1841 og dó 1937. Hún fitjaði stundum upp með öðrum lit heldur en hún hafði svo í brugðninguna, og hér hefur hún fitjað upp á rauðu. Hún sagðist gera það til að nota afganga, sem til féllu. Þegar ekki þurfti að vera svona mai'gt á vettlingunum, annað hvort af því, að þeir áttu að fara á minni hendi eða þá af því að bandið í þeirn var ekki eins smátt, þá voru hafðir í þá laufaviðir, sem færri lykkjur eru á. Nokkur tilbreytni var líka höfð í litum og öðru útprjóni, t. d. var stundum snar í staðinn fyrir taflborð, tungur eða stuðla. Stundum var gripinn hafður hvítur og jafnvel sást hann prjónaður með tafl- borðsprjóni, mórauður og svartur eða mórauður og hvít- ur. Þegar vettlingarnir voru búnir, voru þeir lóaðir eða þæfðir og sléttaðir með því að sitja á þeim, meðan þeir þornuðu úr þófinu. Jóhanna Kristjánsdóttir, Kirkjubóli. HUGUR OG HOND 15

x

Hugur og hönd

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Hugur og hönd
https://timarit.is/publication/1414

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.